Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 8

Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Stýrðu birtunni heima hjá þér PLÍ-SÓL GARDÍNUR Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is Eitt af því sem haldið er fram ítengslum við umræður um kjarasamninga er að ójöfnuður hafi farið vax- andi hér á landi. Þessi fullyrðing á svo að réttlæta kröfur um skattahækkun og áður óþekkta hækkun lægstu launa.    Staðreyndin er sú að hækkunlægstu launa hefur verið áhersluatriði í kjarasamningum á liðnum árum og á sinn þátt í því, þó að fleira komi til, að ójöfnuður hef- ur alls ekki farið vaxandi hér á landi.    Fullyrðingin um vaxandi ójöfnuðer einfaldlega röng.    Gini-stuðull, sem er mælikvarði áójöfnuð tekna sem Hagstofan hér heima og sambærilegar stofn- anir erlendis birta, sýnir að ójöfn- uður tekna hefur minnkað en ekki aukist á síðustu árum.    Það sem meira er, af ríkjum íEvrópu er ójöfnuðurinn minnstur hér á landi.    Þegar á þetta er bent færa mennsig stundum yfir í eignirnar og segja þær sýna vaxandi ójöfnuð. Þetta er líka rangt því að ójöfnuður eigna hefur farið minnkandi á síð- ustu árum.    Og þegar Ísland er borið samanvið önnur ríki má sjá að ójöfn- uður eigna er með allra minnsta móti hér á landi.    Er ekki kominn tími til að þessarstaðreyndir verði hafðar til hliðsjónar í umræðum um kjaramál? Ójöfnuður er lítill og minnkandi STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Árni Ísleifsson, hljóð- færaleikari og tónlist- arkennari, er látinn 91 árs að aldri. Árni fædd- ist í Reykjavík 18. sept- ember 1927. Foreldrar hans voru Ísleifur Árnason, hæstaréttar- lögmaður í Reykjavík, og Soffía Gísladóttir Johnsen húsmóðir. Árni ólst upp við Tún- götu, Bergstaðastræti og í Norðurmýri, og var í sveit í Móbergi í Langadal. Hann brautskráðist frá Verslunarskólanum 1946 og var í einkatímum í píanóleik hjá Matthildi Matthíasson, stundaði nám við Tón- listarskólann í Reykjavík og síðar Tónskóla þjóðkirkjunnar, og var einnig í einkatímum í píanóleik hjá Gísla Magnússyni og Rögnvaldi Sig- urjónssyni. Seinna lauk hann kenn- araprófi og tónmenntakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Árni bjó og starfaði lengi í Reykja- vík en hann vann um langt skeið við logsuðu hjá Ofnasmiðjunni í Reykja- vík. Um árabil var Árni þekktur hljóðfæraleikari og lék með ýmsum danshljómsveitum Reykjavíkur. Hann byrjaði árið 1945 sem píanisti hjá fyrstu alíslensku djasshljómsveitinni, sem Björn R. Einars- son stjórnaði. Hún lék m.a. í Listamannaskál- anum og Breiðfirð- ingabúð. Eftir að hann hætti í hljómsveitinni lék hann með fjölda hljómsveita, en flest- um stjórnaði hann sjálfur, auk þess að semja og útsetja. Mörg laga hans náðu miklum vinsældum og léku fremstu hljóðfæraleik- arar landsins með Árna og eru mörg þeirra verka varð- veitt á hljómplötum. Árni var í hljómsveit Svavars Gests um skeið, var með hljómsveit á gamla Röðli á sjötta áratugnum, í Þjóðleikhúsinu og víðar. Hann flutti síðar til Egils- staða og stundað tónlistarkennslu við Tónlistarskólann frá 1977 til 1999, Þá vann hann við kóra og stofnaði til Djasshátíðar Egilsstaða árið 1988 og stjórnaði henni í nær tvo áratugi. Eiginkona Árna var Kristín Ax- elsdóttir skrifstofumaður. Árni átti tvö börn með Kristínu, Ísleif og Ernu. Dætur Árna úr fyrra hjóna- bandi eru Soffía og Una. Andlát Árni Ísleifsson hljóðfæraleikari Árleg ráðstefna Atlantshafsbanda- lagsins, NATO, um afvopnun, eft- irlit og takmörkun á útbreiðslu gereyðingavopna hefst í dag en að þessu sinni fer hún fram hér á landi, í Reykjavík. Yfir eitt hundr- að sérfræðingar og embættismenn víðs vegar að úr heiminum sækja ráðstefnuna en þetta er í 14. sinn sem hún er haldin. Fjölmiðlum gefst kostur á að fylgjast með opnun ráðstefnunnar en þar flytja meðal annars ávörp Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík- isráðherra og Rose Gottemoeller, aðstoðarframkvæmdastjóri Atl- antshafsbandalagsins. Á morgun fer fram málþing á vegum Alþjóðamálastofnunar Há- skóla Íslands í samstarfi við for- sætisráðuneytið og utanríkisráðu- neytið í tengslum við ráðstefnu NATO. Verður þar fjallað um leið- ir til að fækka gjöreyðingarvopn- um og mikilvægi alþjóðasamstarfs í því samhengi, líkt og segir í lýs- ingu viðburðarins. Meðal ræðu- manna er Beatrice Fihn, fram- kvæmdastjóri ICAN, samtökum gegn kjarnavopnum, en samtökin hlutu friðarverðlaun Nóbels árið 2017. Máþingið hefst klukkan 14 á morgun í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands. Afvopnunarráðstefna NATO hefst í dag  Yfir hundrað erlendir sérfræðingar og embættismenn sækja ráðstefnuna Morgunblaðið/Eggert Ráðstefna Rose Gottemoeller, að- stoðarframkvæmdastjóri NATO.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.