Morgunblaðið - 29.10.2018, Side 9

Morgunblaðið - 29.10.2018, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fatnaður fyrir fagfólk Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is Heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum fyrir sjó- og landvinnslu u KASSAR u ÖSKJUR u ARKIR u POKAR u FILMUR u VETLINGAR u HANSKAR u SKÓR u STÍGVÉL u HNÍFAR u BRÝNI u BAKKAR u EINNOTA VÖRUR u HREINGERNINGAVÖRUR Allt á einum stað Í gær var íslensk-tékkneska tónlistarhátíðin Fullvalda í 100 ár haldin til að fagna 100 ára fullveldi beggja ríkjanna, Íslands og Tékklands, sem bæði hlutu full- veldi árið 1918. „Það tókst mjög vel til, það var fjölmenni og liðið var í góðum gír þannig að við erum mjög ánægð með þetta,“ segir Runólfur Oddsson, ræðismaður Slóvakíu á Íslandi, sem var viðstaddur hátíðina. „Tékkar og Slóvakar halda þetta saman. Ég held að það sé einfaldlega vegna þess að þjóðirnar tvær eru enn svo samtengdar,“ segir Runólfur en vert er að minnast á það að Tékkland og Slóvakía voru áður fyrr eitt land, Tékkóslóvakía. Hátíðin er samstarfsverkefni tónlistarhópanna Camerarctica, Caput og blásaraoktettsins Hnúkaþeys. Á hátíðinni var flutt íslensk og tékknesk tónlist, allt frá klassíska tímabilinu til frumflutnings á glænýrri tón- list. Á milli tónleika var svo flutt íslensk og tékknesk þjóðlagatónlist í Hörpuhorni. Markmið hátíðarinnar er að koma á framfæri tónlist sem Íslendingar hafa fengið í arf og bera hana saman við tékkneska tónlist byggða á fornum grunni. Hvað tengsl Íslands og landanna tveggja varðar seg- ir Runólfur þau vera sterk og að þau séu að styrkjast enn frekar. Til að mynda leggi fjöldinn allur af Íslend- ingum stund á læknanám í Slóvakíu og stefnt sé á að byrja að kenna slóvakísku á menntaskólastigi í ein- hverjum menntaskólum hérlendis. Runólfur segir að í janúar muni fleiri tékkneskir og slóvakískir listamenn koma til landsins og sýna listir sínar. „Það kemur mjög fær ungur píanóleikari og sömuleiðis gítarleikari sem er rosalega flinkur. Við ætlum líka að reyna að fá einn frægasta söngvara Sló- vakíu til landsins.“ ragnhildur@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Tónlist Á milli tónleika mátti hlýða á þjóðlagatónlist tékkneskra og íslenskra hljómsveita í Hörpuhorni. Tveimur hundrað ára af- mælum fagnað í Hörpu  Fjölmenni á íslensk-tékkneskri tónlistarhátíð Morgunblaðið/Eggert Kát Erika Halasova, Andrea Calkovska, Runólfur Odds- son og Denisa Frelichova voru viðstödd íslensk- tékknesku tónlistarhátíðina sem haldin var í Hörpu. Í byrjun næsta árs er útlit fyrir að fjórir gervigrasvellir verði í notkun í Kópavogi. Vellirnir eru í Fagralundi, inni og úti í Kórnum og innanhúss í Fífunni. Vellirnir eru í Fagralundi, inni og úti í Kórnum og innanhúss í Fífunni og fimmti knattsyrnuvöllur- inn, Kópavogsvöllur, á síðan að bæt- ast við næsta vor ef allt gengur sam- kvæmt áætlun. Nú er unnið á þrennum vígstöðv- um við framkvæmdir á þessu sviði. Verið er að endurleggja gervigras á völlinn í Fagralundi ásamt því að setja hitalögn undir völlinn og á þessum framkvæmdum að ljúka í nóvember. Flóðljós eru þegar til staðar í Fagralundi. Við Kórinn er verið að ganga frá tengivirki og grafa fyrir rafmagnslögnum, en hita- lagnir hafa ekki verið tengdar. Völl- urinn verður upplýstur og á flóðlýs- ing að vera tilbúin um áramót. Flóðlýsing á Kópavogsvelli er í deiliskipulagsferli, en síðan er fram- undan að reisa möstur fyrir ljós og setja gervigras á völlinn í stað nátt- úrulegs grass. Völlurinn var tekinn í notkun 1970 og hitalagnir í gras- sverðinum voru komnar á tíma þann- ig að nýjar lagnir verða lagðar í stað þeirra gömlu, samkvæmt upplýsing- um Jóns Júlíussonar, deildarstjóra íþróttadeildar hjá Kópavogsbæ. Fimm fótboltavellir verða með gervigrasi Morgunblaðið/RAX Kórinn Þar verða tveir gervigrasvellir fyrir knattspyrnumenn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.