Morgunblaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 GLÆNÝJAR LÚÐUSNEIÐAR Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn SÍLDIN FRÁ DJÚPAVOGI ER KOMIN KLAUSTUR-BLEIKJA GLÆNÝ LÍNUÝSA Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Kostnaður við að klóna gæludýr hleypur á milljónum króna en fyrir- tækið ViaGen Pets í Texas í Banda- ríkjunum býður upp á hundaklónun fyrir 50 þúsund Bandaríkjadali, um sex milljónir íslenskra króna. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi for- seti Íslands, greindi frá því í útvarps- þættinum Morgunkaffinu á Rás 2 á laugardag að Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, væri búin að senda erfðaefni forsetahundsins fyrrverandi, Sáms, til Texas í Banda- ríkjunum þannig að hægt verði að klóna hann þegar hann er allur. „Sámur er orðinn nokkuð gamall, hann er orðinn ellefu ára, þannig að Dorrit ákvað að láta klóna hann,“ sagði Ólafur Ragnar. Ekki alveg eins og Sámur Arnar Pálsson, prófessor í lífupp- lýsingafræði við Háskóla Íslands, segir að með klónun sé búinn til nýr einstaklingur með sömu erfða- samsetningu og frumgerðin. Nýi ein- staklingurinn hafi þannig sama erfðaefni og frumgerðin, rétt eins og eineggja tvíburar. Hann segir mjög sérhæfðan tækjabúnað þurfa til verksins og vel þjálfað starfsfólk. „Þetta hefur verið gert við töluverð- an fjölda dýra frá því að ærin Dollý var klónuð,“ segir Arnar en Dollý var klónuð árið 1996. Fyrsti hundur- inn var klónaður í Suður-Kóreu árið 2005. Á fréttavef Time kemur fram að suðurkóreska fyrirtækið Sooam Biotech Research Foundation hafi klónað að minnsta kosti 600 hunda árin 2006 til 2015 en bandaríska fyrirtækið ViaGen hafi klónað yfir hundrað hunda og ketti frá 2016. Í umfjöllun Time kemur fram að það kosti 100 þúsund Bandaríkjadali að klóna hund hjá suðurkóreska fyrir- tækinu, eða um 12 milljónir króna. Arnar segir að klónun sé fram- kvæmd með því að fjarlægja kjarna úr eggfrumu sem rennur saman við líkamsfrumu. Ef eggið virkjast og þroskun hefst getur ný lífvera vaxið, en í tilfelli spendýra þarf að flytja fósturvísinn í staðgöngumóður og bíða meðgönguna, eftir fæðingu klónsins. Hann segir ekki sjálfgefið að klónun takist, en ferlið við klónun á kindum, kúm, hundum og köttum sé orðið tiltölulega slípað. „Þú þarft nokkrar milljónir til að fara í þetta, og það er ekki víst að þetta heppn- ist,“ segir Arnar. Það vakti töluverða athygli fyrr á árinu þegar fréttir bárust af því að söng- og leikkonan Barbra Streisand hefði klónað tíkina Samönthu og fengið tvo hunda sem hún nefndi Miss Scarlet og Miss Violet. Arnar segir að Barbra hafi lýst yfir undrun sinni á því að hundarnir tveir væru ekki eins, sérstaklega ekki persónu- leikar þeirra. Arnar bendir á að klón- ar verði ekki nákvæmlega eins, líkt og að eineggja tvíburar eru ekki ná- kvæmlega eins. Í svari á Vísinda- vefnum segir Arnar: „Eiginleikar líf- vera eru tilkomnir vegna gena, umhverfis, samspils gena og um- hverfis og líka tilviljana. Í fyrsta lagi er erfðaefni tveggja einstaklinga, jafnvel klóna eða eineggja tvíbura, aldrei nákvæmlega eins. Við hverja skiptingu líkamsfruma geta orðið stökkbreytingar sem leiða til dæmis til erfðafræðilegs munar á eineggja tvíburum en einnig innan sama ein- staklings,“ skrifar hann á Vísinda- vefnum. „Í öðru lagi er umhverfi tveggja einstaklinga, jafnvel klóna eða ein- eggja, aldrei nákvæmlega eins. Ann- ar tvíburinn fékk tvo sleikjóa, hinn var lengur í sólinni og brann, annar veiktist af flensunni tveggja ára en hinn ekki og svo framvegis. Milljónir ólíkra umhverfisþátta móta þannig klóna og engin leið er að tryggja að tveir einstaklingar alist upp og þroskist á nákvæmlega sama hátt.“ Sámur er úr Fljótshlíð Ólafur Ragnar sagði í Morgun- kaffinu að hann hefði aldrei verið mikill hundamaður en áhuginn hefði kviknað eftir ferð þeirra Dorritar, ásamt dætrum og barnabörnum Ólafs, um Suðurland þar sem þau gistu m.a. í Fljótshlíð og kynntust hundi á bóndabæ í grenndinni. „Dorrit sá þessa tík sem var þarna á sveitabænum og hændist mjög að henni og áttaði sig á því að þetta væri mjög sérstakur hundur,“ sagði Ólafur og bætti við að hann hefði þá ákveðið að útvega Dorrit hund. Úr varð að hún eignaðist afkvæmi tíkar- innar á bænum sem eftir bestu heim- ildum Morgunblaðsins verður fyrsti íslenski hundurinn til að verða klón- aður. Ekki öruggt að klónunin beri árangur  Dorrit Moussaieff ætlar að láta klóna forsetahundinn Sám  Kostar ekki undir 6 milljónum króna  Búið að senda erfðaefnið út  Sérhæfðan tækjabúnað þarf til verksins og vel þjálfað starfsfólk Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Vinir Dorrit Moussaieff ásamt forsetahundinum fyrrverandi, Sámi. Þau Ólafur ætla að láta klóna Sám þegar hann er allur, en hann er nú ellefu ára.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.