Morgunblaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Funahöfða 7 | 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Kröfur samfélagsins tilíþróttafélaga og starfsþeirra aukast stöðugtog okkur er metnaðar- mál að mæta þeim. Hér hjá KR erum við sífellt að þróa félags- starfið áfram, efla menntaða þjálf- ara í starfi og setja ný viðmið sem eru byggð á bestu þekkingu. Höf- um þar byggt á viðmiðum sem ÍSÍ hefur sett og það hefur nú skilað okkur eftirsóknarverðri útnefn- ingu,“ segir Stefán Arnarson, íþróttafulltrúi KR. Fulltrúar Íþrótta- og Ólymp- íusambands Íslands afhentu í vik- unni fulltrúum nokkurra deilda KR viðurkenningu sem staðfestir að þau séu Fyrirmyndarfélag, eins og það er kallað. Þetta voru bad- minton-, borðtennis-, handknatt- leiks-, körfubolta-, knattspyrnu- og skíðadeildir en á vettvangi þeirra hefur verið skerpt á ýmsum vinnubrögðum starfinu til fram- dráttar. Allir aldurshópar „Starf KR er öflugt og um- fangsmikið. Nú í haust koma um 700 manns á dag á æfingar hér í Frostaskjóli. Hingað koma á morgnana í íþróttaskóla 2-6 ára börn úr tíu leikskólum hér í Vest- urbænum í Reykjavík. Sex ára fara krakkarnir svo að sækja al- mennar æfingar í deildunum hjá okkur en allt að 90% barna á aldr- inum 10-12 ára hér í hverfinu taka þátt í íþróttastarfi sem er alveg frábært. Hlutfallið er óvíða hærra,“ segir Stefán og heldur áfram: „Annars nær starfið til allra aldurshópa og núna síðustu árin hefur starf okkar með elsta ald- urshópnum verið að eflast. Verk- efnið Kraftur í KR er komið til að vera, en hingað mætir reglulega hópur í æfingar; göngur, styrktar- þjálfun og fleira og stundum koma líka sjúkraþjálfari og jógakennari. Þannig reynum við að koma til móts við sem flesta.“ Foreldrastarf í föstum farvegi ÍSÍ hleypti verkefninu Fyrir- myndarfélag af stokkunum árið 2003 og hefur það verið í stöðugri þróun síðan. Félög sem vilja fá Alveg til fyrirmyndar Viðmið eru sett. ÍSÍ útnefnir íþróttafélög sem eru til fyrirmyndar í starfsháttum og áherslum. KR er öflugt félag með mörgum deildum og í starfi þeirra var öllum steinum velt við. Fræðsla, forvarnir og jafnréttismál eru í deiglunni. Morgunblaðið/Sigurður Bogi KR-ingar Jónas Kristinsson framkvæmdastjóri er til vinstri á myndinni og við hlið hans Stefán Arnarson sem heldur utan um íþróttastarf félagsins. Leikfélag Kópavogs frumsýnir tryllingsfarsann Tom, Dick og Harry eftir feðgana Ray og Michael Cooney í þýðingu Harðar Sigurðarsonar 30. október næstkomandi. Ray Cooney hefur verið ókrýndur konungur farsans um áraraðir og leikrit hans þekkja allir. Með vífið í lúkunum, Úti að aka, Beint í æð og Nei, ráðherra, svo einhver séu nefnd, hafa verið sett upp um allan heim á undanförnum áratugum. Sonur hans, Michael Cooney, hefur getið sér orð sem handritshöfundur í Holly- wood. Hann hefur einnig spreytt sig á leikritaskrifum. Í Tom, Dick og Harry taka þeir feðgar höndum saman og útkoman er farsi af allra bestu gerð. Níu leikarar taka þátt í sýningunni sem Hörður Sigurðarson leikstýrir. María Björt Ármannsdóttir sér um leikmynd, búninga og leikmuni og Skúli Rúnar Hilmarsson lýsir. Sýnt er í Leik- húsinu í Funalind 2. Farsi frumsýndur í Funalind í Kópavogi Tom, Dick og Harry á fjölunum Agnes Hekla Árnadóttir og Högni Freyr Kristínarson sem hafa veg og vanda af sýningum á íslenska hest- inum og gangtegundum hans. Þau leggja áherslu á spennandi upplifun áhorfenda þar sem þau sýna fjöl- breytta hesta í einstakri ljósadýrð með 40 metra skjá í bakgrunni með lifandi náttúrmyndum, segir í tilkynn- ingu. Hestasýningarnar eru ætlaðar ferðamönnum og öðrum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér íslenska hestinn. Sýningar verða daglega klukkan 17.15 en einnig verður hægt að bóka sérstakar sýningar fyrir stærri hópa. Fákasel á Ingólfshvoli í Ölfusi hefur verið opnað á ný en þar er glæsilegur veitingastaður með nýjan fjöl- breyttan matseðil. Daglega verður boðið upp á stuttar hestasýningar í reiðhöllinni. Að rekstri veitingastað- arins standa þau Sindri Daði Rafns- son og Íris Dröfn Kristjánsdóttir sem áður ráku Sindrabakarí á Flúðum við góðan orðstír. Þau hafa nú þegar opnað veitingastaðinn sem tekur um 80 manns í sæti auk þess sem nýr og glæsilegur 160 manna veislusalur hefur verið tekinn í notkun fyrir stærri hópa og einkasamkvæmi. Í reiðhöllinni verða daglega 15 mín- útna hestasýningar. Það eru þau Sprett úr spori á Ingólfshvoli í Ölfusinu Fákaselsfólk Glöð á góðri stundu og hestamennskan er skemmtilegt sport. Opna aftur í Fákaseli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.