Morgunblaðið - 29.10.2018, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrirmyndir Frá vinstri talið Linda Hlín Þórðardóttir skíðadeild, Böðvar Guðjónsson körfubolti, Kristinn Kjærne-
sted knattspyrna, Áslaug Guðlaugsdóttir frjálsar íþróttir, Reynir Guðmundsson Badminton, Borðtennis Aldís Lár-
usdóttir borðtennis, Ella Rósa Guðmundsdóttir sund, Helgi Helgason handbolti, Árni Rúdólfsson keila, Gylfi Dal-
mann formaður aðalstjórnar KR og Þráinn Hafsteinsson sem afhenti viðurkenningarnar fyrir hönd ÍSÍ.
þessa staðfestingu á starfi sínu
þurfa þá að mæta ýmsum þeim
kröfum og viðmiðum sem ÍSÍ set-
ur. Þau fyrstu lúta að almennu fé-
lagsstarfi; að það sé skv. skipuriti,
markmiðasetning og siðareglur
séu til staðar og að í stjórn eigi
ungt fólk sinn áheyrnarfulltrúa.
Af öðrum atriðum má nefna
þá kröfu að þjálfarar hafi menntun
og laun þeirra séu samræmd, for-
eldrastarf sé í föstum farvegi og
að fyrir liggi stefna í fræðslu- og
forvarnamálum. Einnig að félagið
sinni til jafns kröfu beggja kynja
til íþróttaiðkunar. Viðurkenning
fyrir hvert félag og deild gildir til
fjögurra ára í senn en þá er komið
að endurnýjun. Þetta er með öðr-
um orðum sagt í áttina að því sem
Stuðmenn sungu forðum um sam-
band þeirra Stinna stuð og Hörpu
Sjafnar „alveg til fyrirmyndar“!
„Allt er þetta viðleitni til þess
að gera íþróttastarfið betra og
faglegra og þróunin er ótvírætt í
þá átt. Nú eru 30-35% þeirra sem
stunda íþróttir í landinu í fyrir-
myndarfélögum ÍSÍ sem fjölgar
jafnt og þétt,“ segir Viðar Sigur-
jónsson, verkefnisstjóri hjá ÍSÍ. Í
þessu sambandi nefnir hann til að
mynda Stjörnuna, KR, Ármann,
Akureyrarfélögin Þór og KA,
Ungmennafélag Selfoss, Gróttu og
Völsung en innan vébanda þess fé-
lags eru tíu deildir og starfið öfl-
ugt.
Staðall í starfi
„Það er mikilvægt fyrir félag
eins og KR að vera fyrirmyndar-
félag ÍSÍ og standast þær gæða-
kröfur sem ÍSÍ gerir til íþrótta-
félaga, samfélagið gerir miklar
kröfur til íþróttafélaga og það er
mikilvægt að starfa eftir nokkurs
konar gæðastaðli sem tekur til alls
okkar starfs,“ segir Jónas Krist-
insson framkvæmdastjóri KR.
Bætir við að þessu tengist svo
margvísleg uppbygging mann-
virkja og aðstöðu KR-svæðinu sem
elft geti starfið.
Morgunblaðið/Hari
Fótbolti Kröftugar KR-konur.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018
Silica Renew getur grynnkað ör-hrukkur
lagað húðskemmdir af völdum of mikils
ss. geoSilica Renew er sink- og koparbætt,
u tveggja eru lífsnauðsynleg steinefni sem
uðlað að styrkingu nagla og hárs auk þess
nka hárlos og klofna enda. Bætum heilsuna
á með geoSilica.
enew Fyrir húð, hár og neglur
tituteofmineralresearch.org/mineral-elements
www.geosilica.is
15%
afsláttur
af Renew
250 kr. af hverri sölu
renna til Krabba-
meinsfélagsins
geo
og
sólarljó
en hvor
geta st
að min
innan fr
R
*http://ins
GeoSilica kísilsteinefnið fæst í Heilsuhúsinu, öllum helstu apótekum, matvöruverslunum og í vefverslun geoSilica.is
Íslenska kísilsteinefnið
sem slegið hefur í gegn
Næstkomandi fimmtudagskvöld, 1.
nóvember kl. 19.30 verður opnuð í
Hallsteinssal í Safnahúsi Borgar-
fjarðar sögusýning um Hvítárbrúna
við Ferjukot. Hún var vígð þennan dag
árið 1928 og þykir tilhlýðilegt að
minnast tímamótanna, sem verður
gert með veggspjaldasýningu. Á
henni verður margvíslegur fróðleikur
um ýmislegt tengt brúnni og bygg-
ingu hennar á sínum tíma.
Hvítá í Borgarfirði er með straum-
harðari vatnsföllum á Íslandi og brú
yfir hana á sínum tíma skipti sköpum
í samgöngum, bæði innan héraðs í
Borgarfirði og á leiðinni norður í
land. Var brúin mikilvæg þjóðleið allt
þar til núverandi Borgarfjarðarbrú
var tekin í notkun fyrir um 40 árum.
Hönnun og smíði brúar yfir Hvítá
voru á sínum tíma afrek miðað við þá
verktækni sem þá var til staðar og
hún þykir með fallegri mannvirkjum
landsins. Var á vettvangi Verkfræð-
ingafélags Íslands á sínum tíma eitt
af merkustu mannvirkjum 20. aldar-
innar.
Sýningarstjóri er Helgi Bjarnason
frá Laugalandi í Stafholtstungum,
blaðamaður á Morgunblaðinu. Heiður
Hörn Hjartardóttir er hönnuður sýn-
ingarinnar, sem er hluti af dagskrá
Menningararfsárs Evrópu 2018 og
unnin í samvinnu við Minjastofnun Ís-
lands og Vegagerðina. Sýningin er
styrkt af Kaupfélagi Borgfirðinga.
Verkefnið er helgað minningu Þor-
kels Fjeldsted, fyrrum bónda í Ferju-
koti, sem lést árið 2014.
Á opnunardegi verður stutt dag-
skrá á neðri hæð Safnahúss og gest-
um boðið að skoða sýninguna að því
loknu. Sýningin stendur til 12. mars á
næsta ári.
Eitt af merkustu fallegustu mannvirkjum landsins
Bogabrúin yfir Hvítá 90 ára og
tímamóta minnst með sýningu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarfjörður Hvítárbrú setur sterkan svip á umhverfið og er enn í notkun.