Morgunblaðið - 29.10.2018, Side 14

Morgunblaðið - 29.10.2018, Side 14
● Tæknirisinn Microsoft varð aftur á föstudag næstverðmætasta hlutafélag Bandaríkjanna, á eftir Apple, en Ama- zon færðist niður í þriðja sætið. Stafar þetta af því að ársfjórðungsuppgjör Amazon olli fjárfestum vonbrigðum og lækkaði markaðsverð félagsins um 7% eða um það bil 65 milljarða dala. Jafn- gildir sú upphæð nærri þrefaldri lands- framleiðslu Íslands. Hlutabréfaverð Microsoft hækkaði aftur á móti um 4% síðastliðinn mið- vikudag þegar í ljós kom að ársfjórð- ungsframmistaða fyrirtækisins var betri en vænst hafði verið. Að sögn Reuters hefur verð hluta- bréfa Amazon hækkað um u.þ.b. 40% frá ársbyrjun en Microsoft hefur bætt við sig 25% á sama tíma. ai@mbl.is Amazon orðið minna virði en Microsoft 14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Rauðager ði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Kæli- & frystiklefar og allt tilheyrandiHurðirHillur Strimlahurðir Kæli- & frysti- kerfi Blásarar & eimsvalar Læsingar, lamir, öryggiskerfi ofl. Áratuga reynsla og þekking 29. október 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.36 120.94 120.65 Sterlingspund 153.95 154.69 154.32 Kanadadalur 91.53 92.07 91.8 Dönsk króna 18.295 18.403 18.349 Norsk króna 14.349 14.433 14.391 Sænsk króna 13.112 13.188 13.15 Svissn. franki 120.2 120.88 120.54 Japanskt jen 1.0746 1.0808 1.0777 SDR 166.48 167.48 166.98 Evra 136.52 137.28 136.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.8647 Hrávöruverð Gull 1236.05 ($/únsa) Ál 1980.0 ($/tonn) LME Hráolía 76.6 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á STUTT BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Mikill munur er á kynjahlutföllum stjórna í þeim Evrópulöndum þar sem kynjakvótar hafa verið gerðir að skyldu og í hinum þar sem hefur verið látið nægja að beina tilmælum til fyrirtækja um að hafa hlut kynjanna sem jafnastan. „Þar sem valkvætt er að huga að kynjahlut- föllum stjórnarmeðlima má reikna með að hlutfall kvenna í stjórnum sé um helmingi lægra en þar sem lagaleg skylda er að hafa ákveðið lágmarkshlutfall karla og kvenna,“ segir Caroline Zegers, meðeigandi hjá Deloitte í Hollandi. Caroline er væntanleg til Íslands til að flytja erindi á ráðstefnunni „Rétt‘upp hönd“ sem Jafnvægisvog FKA efnir til á Hilton Reykjavik Nordica 31. október næstkomandi. Í erindi sínu mun Caroline fara yfir þróunina í Evrópu og ræða áhrif kynjakvóta. Hún bendir á að á undanförnum árum hafi nokkrar Evrópuþjóðir skyldað skráð félög til að innleiða kynjakvóta í stjórn- um. Í Frakklandi og Noregi gildir t.d. 40% regla en þriðjungsregla í Belgíu og Ítalíu og hefur afleiðingin verið sú að konum hefur fjölgað hratt í stjórnum fyrirtækja á þess- um stöðum. Sitja konur núna í 22,6% sæta í stjórnum evrópskra fyrirtækja á meðan hlutfallið er ekki nema 15% á heimsvísu. Breytt menning og vinnubrögð Að sögn Caroline er of skammur tími liðinn til að fullyrða megi um hvaða áhrif nýju kynjakvótarnir kunna að hafa haft en eldri rann- sóknir sýni afdráttarlaust að fyr- irtæki með einsleitari stjórnir standa alla jafna verr að vígi en hin sem hafa fjölbreyttari hóp fólks í stjórn. „Það sem virðist gerast er að fleiri sjónarmið eru tekin til skoðunar við ákvarðanatöku og minni hætta á að stjórnarmeðlimir þrói með sér rörsýn á reksturinn. Það er samt ekki nóg að hafa t.d. bara eina konu í stjórn með fimm eða fimmtán karlmönnum heldur virðist hlutfallið þurfa að vera að lágmarki 30% til að megi fara að sjá breytingu á menningu og vinnu- brögðum stjórna,“ útskýrir Car- oline. Hitt virðist óhætt að fullyrða að mörg þau vandamál sem sumir ótt- uðust að kynjakvótar myndu hafa í för með sér urðu ekki að veruleika. „Fyrirtæki áttu t.d. ekki í vandræð- um með að finna konur sem voru nógu hæfar og reyndar til að sitja í stjórnum og leysa skyldur sínar vel af hendi.“ Skoði fjölbreytni eftir fleiri ásum Aðspurð segir Caroline að vert sé að skoða hvort gera megi stjórnir fjölbreyttari á fleiri vegu en eftir kynja-ásnum. „Ef við myndum skoða samsetningu dæmigerðrar stjórnar eru karlmenn ekki bara í meirihluta, heldur karlar með til- tekinn samfélagslegan og faglegan bakgrunn, og á tilteknum aldri. Rétt eins og það er til þess fallið að styrkja fyrirtæki að fá sjónarmið kvenna að borðinu gæti verið eft- irsóknarvert að auka líka fjöl- breytnina á stjórnarfundum með meðlimum sem eru t.d. á ólíkum aldri, með ólíkan uppruna og af ólíkum kynþáttum.“ Fjölbreytni aftrar rörsýn Jafnari Caroline Zegers hjá Deloitte í Hollandi segir það m.a. ekki hafa gerst, sem sumir höfðu spáð, að vegna kvótareglna myndu fyrirtæki eiga í erfiðleikum með að finna nógu margar hæfar konur til að taka sæti í stjórnum. Breytingar » Sum lönd Evrópu gera kröfu um 40% eða 1⁄3 kynjakvóta í stjórnum. » Rannsóknir benda til að ár- angur fyrirtækja með fjöl- breyttari samsetningu stjórn- armeðlima standi betur að vígi. » Fjölbreytnin á að draga fram fleiri sjónarmið við ákvarðana- töku.  Mikill munur er á samsetningu stjórna þar sem kynjakvótar hafa verið leiddir í lög  Vert er að huga líka að fjölbreytni stjórnarfólks m.t.t. aldurs, bakgrunns o.fl. Norski olíusjóðurinn hefur gefið út skrifleg tilmæli sem skerpa á þeirri stefnu sjóðsins að þau fyrirtæki sem sjóðurinn fjárfestir í láti ekki sömu manneskj- una gegna hlut- verki stjórnarfor- manns og forstjóra. „Við teljum að skýr aðgreining á hlutverkum og skyldum sé nauð- synleg til að sinna megi um- sjón og stjórnun á skilvirkan hátt. Á þetta m.a. sérstaklega við um eft- irlit með frammistöðu stjórnenda og ákvarðanir um launapakka forstjóra og æðstu yfirmanna,“ segir í yf- irlýsingu sjóðsins. Að sögn FT á Norski olíusjóð- urinn að meðaltali 1,4% hlut í öllum skráðum hlutafélögum í heiminum og getur beitt fyrirtæki töluverðum þrýstingi í krafti stærðar sinnar. Er það ekki síst í Bandaríkjunum að al- gengt er að forstjórar séu einnig formenn stjórna og á það t.d. við um Amazon, Bank of America og Morgan Stanley. Sjóðurinn mælist jafnframt til þess að almennir stjórnarmeðlimir sitji ekki í stjórnum fleiri en fimm félaga og að stjórnarformenn láti sér nægja að gegna formennsku hjá einu félagi. Leggur sjóðurinn líka til að félög haldi skrár um fundarsókn stjórnarmeðlima og að gefnar séu skýringar á öllum fjarvistum. Yngve Slyngstad, forstjóri olíu- sjóðsins, segir tilmælin með þeim mikilvægustu sem sjóðurinn hefur samið og að starf stjórnarmeðlima sé mun meira krefjandi í dag en það var fyrir 10 eða 20 árum. ai@mbl.is AFP Agi Mörg bandarísk félög sameina starf forstjóra og stjórnarformanns. Olíusjóðurinn vill bæta stjórnarhætti  Skýrari aðgreining verði á hlutverkum og skyldum stjórnenda Yngve Slyngstad

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.