Morgunblaðið - 29.10.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
M.BENZ C 180 CDI AVANTGARDE
nýskr. 02/2011, ekinn 199 Þ.km, dísel, sjálfskiptur.
TILBOÐ 2.190.000 kr.
Raðnúmer 258355
HYUNDAI I30 CLASSIC
nýskr. 05/2017, ekinn 57 Þ.km, bensín, 6 gíra.
TILBOÐ 1.790.000 kr.
Raðnúmer 258552
ÓSKUM EFTIR BÍLUMÁ SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI
M.BENZ E 350 E PLUG IN HYBRID
AVANTGARDE nýskr. 06/2017, ekinn 5 Þ.km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur (9 gíra). MJÖG MIKIÐ AF
AUKAHLUTUM! TILBOÐ 6.790.000 kr. Raðnr.258551
HYUNDAI I10 COMFORT
nýskr. 05/2016, ekinn 63 Þ.km, bensín, 5 gíra.
Verð 1.150.000 kr.
Raðnúmer 258628
CITROEN C3 AIRCROSS SHINE
nýskr. 04/2018, ekinn 26 Þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð 2.950.000 kr.
Raðnúmer 380160
Bílafjármögnun Landsbankans
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Ellefu manns létust í skotárás í Pitt-
sburgh í Bandaríkjunum á laugar-
daginn þegar maður hóf skothríð í
bænahúsi gyðinga. Hinn 46 ára Ro-
bert Bowers hefur verið handtekinn
og ákærður fyrir verknaðinn en
samkvæmt AFP-fréttaveitunni
öskraði Bowers „allir gyðingar þurfa
að deyja“ á meðan á árásinni stóð.
Hefur Bowers verið ákærður fyrir
ellefu morð og 18 önnur brot, meðal
annars hatursglæp og gæti hann átt
yfir höfði sér dauðarefsingu að sögn
saksóknara. Árásin er sú mann-
skæðasta sem beint er gegn gyðing-
um á síðustu áratugum í Bandaríkj-
unum.
Skiptist á skotum við lögreglu
Sex aðrir, þar af fjórir lögreglu-
menn, særðust í árás mannsins á
bænahúsið. Bowers var vopnaður
vélbyssu og þremur skammbyssum.
Sérsveit lögreglu mætti á vettvang
um 20 mínútum eftir að fyrst var til-
kynnt um árásina og var Bowers þá
á leið út úr bænahúsinu. Endaði það
með umsátri þar sem Bowers og lög-
reglan skiptust á skotum. Gafst
hann upp nokkru síðar og var fluttur
á sjúkrahús, en talið er að hann hafi
hlotið nokkur skotsár. Bowers vann
sem vörubílstjóri samkvæmt fjöl-
miðlum vestanhafs og var virkur á
samfélagsmiðlinum Gab sem er vin-
sæll meðal öfgamanna. Miðlinum er
lýst sem samfélagsmiðli sem ritskoði
ekkert efni. Skrifaði hann færslu á
vefinn nokkrum klukkutímum áður
en árásin átti sér stað þar sem hann
sagðist ekki geta lengur setið hjá á
meðan „fólkinu hans“ væri slátrað.
Hafði hann meðal annars skrifað
margar færslur þar sem tengdust
gyðingahatri og endurbirt færslur
þar sem gyðingum var sagt að yf-
irgefa landið. Skrifaði hann meðal
annars að gyðingar væru börn Sat-
ans. Bill Peduto, borgarstjóri Pitt-
sburgh, sagði í gær að Bandaríkin
þyrftu að skoða það hvernig ætti að
koma í veg fyrir að þeir sem hefðu
tjáð slík hatursfull ummæli kæmust
yfir skotvopn.
Trump fer til Pittsburgh
Donald Trump Bandaríkjaforseti
hefur sagt árásina óhugnanlegt
fjöldamorð og ætlar hann að heim-
sækja Pittsburgh. Þá hefur hann
gefið út skipun þess efnis að flaggað
verði í hálfa stöng á opinberum
byggingum til 31. október. Á kosn-
ingaviðburði seinnipart laugardags
sagði Trump að ekki væri hægt að
líta framhjá auknu hatri á gyðingum
og að gyðingahatur yrði ekki liðið.
Fyrr um daginn sagði hann ekki
þörf á að herða skotvopnalöggjöf
landsins heldur taldi hann rétt að
koma fyrir vörðum fyrir utan trúar-
leg samkomuhús.
Jonathan Greenblatt, fram-
kvæmdastjóri Anti-Defamation
League, samtaka gyðinga í Banda-
ríkjunum, segir í samtali við frétta-
stofu ABC að ofbeldi og áreitni gegn
gyðingum hafi aukist um 57% á síð-
asta ári. Hann segir félagsmenn
samtakanna slegna eftir árásina en
því miður séu þeir ekki hissa. Örygg-
isgæsla í kringum bænahús gyðinga
í New York og Washington var auk-
in um helgina.
Skotárás í bænahúsi
11 látnir og 6 særðir eftir skotárás í bænahúsi í Bandaríkjunum Mannskæð-
asta árás gegn gyðingum í áratugi Gyðingahatur verður ekki liðið, segir Trump
AFP
Bænahús Fjöldi fólks hefur lagt blóm fyrir utan bænahúsið í Pittsburgh til að sýna samstöðu með þeim sem létust.
Hægrimaðurinn
Jair Bolsonaro,
verður að öllum
líkindum næsti
forseti Brasilíu
en forsetakosn-
ingar fóru fram í
landinu í gær.
Valið stóð á milli
Bolsonaro og
Fernando Had-
dad, frambjóðanda Verkamanna-
flokksins. Samkvæmt útgönguspám
nær Bolsonaro kjöri. Í fyrri umferð
kosninganna fyrir þremur vikum
fékk Bolsonaro 46% atkvæða og
Haddad 29%. Langflestar skoðana-
kannanir bentu einnig til þess að
Bolsonaro yrði forseti þessa
stærsta ríkis Suður-Ameríku og 8.
stærsta efnahagskerfis heims. Að
kjósa í Brasilíu er skylda og eru 147
milljón manns á kjörskrá.
Sagður brasilíski Trump
Bolsonaro hefur verið lýst sem
„brasilíska Trump.“ Hann hefur
tjáð umdeildar skoðanir á kynja-
jafnrétti, samkynhneigðum, inn-
flytjendum og fátækum. Hann hef-
ur verið þingmaður frá því 1991 og
hefur bakgrunn í herþjónustu.
Góður árangur hans er eignaður
öflugri herferð á samfélagsmiðlum,
meðal annars í gegnum Facebook
og WhatsApp. Þá hefur Bolsonaro
lofað skilvirkum lausnum á gríðar-
hárri morðtíðni í Brasilíu og bágri
efnahagsstöðu landsins.
mhj@mbl.is
Bolsonaro
næsti forseti
Brasilíu
Lofar skilvirkum
lausnum á morðtíðni
Jair Bolsonaro
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Kristilegir demókratar (CDU), flokk-
ur Angelu Merkel Þýskalandskansl-
ara, misstu mikið fylgi í kosningum í
Hessen í Þýskalandi í gær. Sam-
kvæmt útgönguspám í Hessentapar
CDU 10% fylgi og fer fylgi flokksins
úr 38,3% í 28%.
Niðurstaða kosninganna setur
stöðu vinstri hægri-bandalagsins í
óvissu þar sem Sósíaldemókratar
misstu einnig um 11% fylgi. Frétta-
veitan AFP greinir frá því að ákvörð-
un Merkel um að hleypa milljón inn-
flytjendum inn til Þýskalands árið
2015 hafi aukið andstöðu Þjóðverja
gegn innflytjendum. Þjóðernisflokk-
urinn Alternative für Deutschland er
nú með þingmenn
í öllum 16 ríkjum
Þýskalands og
fékk flokkurinn
12% fylgi í kosn-
ingunum í Hessen
í gær. Þrátt fyrir
að Þýskaland hafi
hert innflytjenda-
löggjöf sína á síð-
ustu árum hefur
það ekki náð að
stöðva fylgistap CDU til þjóðernis-
flokksins. Óvissa ríkir um hvort ríkis-
stjórnarsamstarfið mun halda og þá
hvort blásið verður til kosninga að
nýju í Þýskalandi. Þá tvöfaldaði
Græningjaflokkurinn í Hessen fylgi
sitt frá kosningunum 2013 og hlaut
20% fylgi.
Flokkur Merkel tapar
miklu fylgi í Þýskalandi
Staða ríkisstjórnarflokkanna veikist
Angela
Merkel