Morgunblaðið - 29.10.2018, Side 16

Morgunblaðið - 29.10.2018, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ ÍþættinumÞingvöllum áK100 var í gær rætt um kjaramál og ýmis- legt þeim tengt. Umræðan barst að þeim hástemmdu kröfum sem heyrst hafa frá verkalýðshreyfingunni og augljóst var að Þröstur Ólafs- son, hagfræðingur og fyrrver- andi framkvæmdastjóri verkamannafélagsins Dags- brúnar, og Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, höfðu áhyggjur af að ekki væri grundvöllur fyrir slíkum kröfum og að þeim myndi fylgja leiðrétting í gegnum lækkun krónunnar og verðbólgu. Sú leið er þekkt frá fyrri tíð og þeir sem muna aftur fyrir síðustu samningalotur, eins og þeir Þröstur og Eyjólfur Árni gera, skynja þá hættu sem er á ferðum og þær af- leiðingar sem það hefur þegar samið er umfram það sem at- vinnulífið stendur undir. Launamenn og landsmenn allir hafa verið mjög lánsamir á nýliðnum árum. Gerðir hafa verið kjarasamningar sem við hefðbundnar aðstæður hefðu stuðlað að verðbólgu, en að- stæður, einkum ytri að- stæður, komu í veg fyrir slíkt og tryggðu áður óþekktan kaupmáttarbata. Nú láta sumir eins og það lán sem lék við þjóð- ina á undan- förnum árum þýði að lögmál efnahagslífsins hafi verið tek- in úr sambandi og að hægt sé að semja um hvað sem er í komandi kjarasamningum án þess að það hafi afleiðingar í efnahagslífinu. Þó vita allir, líka þeir sem þannig tala til að slá keilur í ákveðnum hópum innan eigin stéttarfélaga, að efnahagslífið lýtur sömu lögmálum og fyrr. Knýi verkalýðshreyfingin fram samninga sem eru um- fram það sem atvinnulífið þol- ir – og staðreyndin er sú að atvinnulífið er nú þegar við þolmörkin – þá tapast kjara- bæturnar í gegnum hækkandi verðlag og þá kaupmáttar- rýrnun sem slíkri þróun fylgir. Því til viðbótar dregur úr hagvexti og lán almennings hækka, þannig að þegar upp er staðið verður tap launþega mikið. En það er gott tækifæri nú til að semja af hófsemd, verja kaupmáttinn og stuðla að áframhaldandi hagvexti og lífskjarabata til framtíðar. Það er sú leið sem mun duga best, ekki skammsýni og koll- steypur. Atvinnulífið er þegar við þolmörkin}Lögmálin gilda enn Þróun veiði-gjalda hefur verið ískyggileg á síðustu árum og fjárhæð þeirra er orðin sligandi, einkum fyrir minni og meðal- stórar útgerðir. Í Við- skiptamogganum var í gær sagt frá því að veiðigjöldin á Vestfjörðum hafa ríflega þre- faldast á milli ára, en á sama tíma hefur afkoma útgerðanna fyrir vestan dregist saman um 80%. „Þetta hefur sérstaklega slæm áhrif á útgerðir sem ein- göngu mega stunda króka- veiðar, en rekstrargrundvöll- ur þeirra er annar en þeirra útgerða sem stunda t.a.m. tog- veiðar,“ segir í umsögn Fjórð- ungssambands Vestfirðinga um nýtt frumvarp til breyt- inga á lögum um veiðigjöld. Þar er einnig bent á að óum- deilt sé „að sjávarútvegur er burðarásinn í flestum sam- félögum á Vestfjörðum. Áhrif stóraukinna veiðigjalda eru augljós og munu leiða til fækkunar starfa, minni veltu og samdráttar í atvinnulífinu á Vestfjörðum.“ 200 mílur ræddu við Aðalstein Ósk- arsson, sviðsstjóra byggðasviðs Vest- fjarðastofu, sem segir gott árferði fyrir tveimur ár- um koma mjög harkalega niður á fyrir- tækjum í ár: „Þó svo að í ein- hverjum draumaheimi eigi menn að búa í haginn, þá hafa þeir um leið lent í því að gengi krónu hefur hækkað mjög, ásamt því að erfiðleikar hafa verið á mörkuðum erlendis, og ekki síst hefur kostnaður og laun þar með talin hækkað mikið. Þessar breytingar hafa í raun étið upp það sem menn reyndu að halda til hliðar.“ Sú staða sem þarna er lýst er grafalvarleg fyrir Vestfirði en á vitaskuld við miklu víðar þó að ranglæti veiðigjaldanna komi misjafnlega illa við ein- stök byggðarlög eða fyrir- tæki. Nauðsynlegt er í þeim breytingum á veiðigjöldum sem nú eru til umræðu að þessi byggðaskattur verði lækkaður verulega áður en hann veldur meira tjóni en orðið er. Veiðigjöld á Vest- fjörðum hafa marg- faldast þrátt fyrir hrun í afkomu fyrirtækjanna} Skatturinn þrefaldaður T raust á stjórnmálum hefur verið í sögulegu lágmarki síðastliðinn áratug. Traust verður ekki endur- unnið á einni nóttu heldur gerist það með þrotlausri vinnu þeirra sem starfa á vettvangi stjórnmála. Síðasta vika jók ekki traustið. Þá féllu tveir dómar vegna ólögmætra ákvarðana Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra. Viðbrögð hennar og flokkssystkina hennar voru að drepa alvarleika málsins á dreif, afvegaleiða umræðuna, bera saman ólíka þætti og á köfl- um fara með ósannindi til varnar ólögmætum gjörðum hennar. Það var ekki verið að dæma dómsmálaráðherra sem fyrirsvarsmann vegna ákvarðana undirstofnana heldur var verið að dæma íslenska ríkið bótaskylt vegna beinna aðgerða Sigríðar. Viðbrögðin minnka enn traust á stjórnmálum. Sigríður ætlar enga ábyrgð að bera né gerir flokkur hennar eða samstarfsflokkar í ríkisstjórn kröfu um það. Vera VG og Framsóknarflokks í ríkisstjórn skiptir þau meira máli en ábyrgð ráðherra og heiðarleiki. Einnig birtust nýjar upplýsingar um fjármálagerninga Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra eftir að hann tók sæti á Alþingi og fram að hruni haustið 2008. Í heilt ár hefur lögbann hvílt á upplýsingagjöf um aðkomu hans en nú loksins birtust þær almenningi. Fyrir ári sagði Bjarni engar nýjar upplýsingar vera í ítarlegri umfjöllun Stund- arinnar, The Guardian og Reykjavík Media um fjármála- gerninga hans og fjölskyldu hans í aðdraganda hrunsins. Það sama segir hann í dag. Þetta er rangt því nú fáum við að sjá svart á hvítu að þvert á orð hans kom hann ítrekað fram fyrir hönd fjöl- skyldunnar í fjármálagerningum þeirra löngu eftir að hann settist á þing og fram að hruni að minnsta kosti. Þær upplýsingar sem hann hafði, umfram almenning, gerðu það að verk- um að hann og fjölskylda hans seldu hlutabréf sín fyrir hátt í þrjú þúsund milljónir í aðdrag- anda falls bankanna. Hann sjálfur seldi hluti að verðmæti 50 milljónir króna í sjóði 9 síð- ustu dagana fyrir fall Glitnis en hafði áður neitað því. Seinna bar hann við að ástæða ósannindanna væri sú að það væri svo langt um liðið að hann hefði bara gleymt því, enda má segja að 50 milljónir séu ekki há fjárhæð miðað við þrjú þúsund milljóna sölu fjölskyld- unnar. Þá kemur einnig fram í nýrri umfjöllun að Bjarni var í beinu sambandi við yfirstjórn bankans fyr- ir hönd fjárfestingafélags fjölskyldunnar, sem meðal ann- ars átti stóran hlut í bankanum, árum saman eftir að hann tók sæti á Alþingi. Sjálfur hefur hann neitað því. Er þá ekki minnst hér á umfjöllun um eignir í skattaskjólum og Vafningsmálið. Traust verður ekki endurreist nema með heiðarleika og ábyrgð. Ef við viljum endurreisa virðingu Alþingis og traust á stjórnmálum er bara ein leið fær. Katrín Jak- obsdóttir verður að marka leiðina. Helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Traust fæst með heiðarleika og ábyrgð Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Fjölmargar umsagnir hafaborist um frumvarp tilnýrra laga um manna-nöfn. Frumvarpið er nú endurflutt með lítilsháttar breyt- ingum, en fyrsti flutningsmaður er Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar og fv. ráðherra. Mjög skiptar skoðanir hafa ver- ið um frumvarpið. Þar er m.a. lagt til að mannanafnanefnd verði lögð nið- ur og fólk hafi rétt til að velja sér nafn sjálft. Deilt er um hvort breyt- ingarnar hafi slæm áhrif á íslenska tungu og einnig eru uppi áhyggjur af því að börn geti fengið nöfn sem valdi þeim ama. Eftirlit talið nauðsynlegt Umboðsmaður barna fagnar því að frumvarpið feli í sér aukinn sjálfs- ákvörðunarrétt barna þegar kemur að nafngiftum, en breyting á nafni barns undir 18 ára aldri er háð því skilyrði að barnið samþykki hana, hafi það náð aldri og þroska til að taka afstöðu til hennar. Umboðsmaður barna ítrekar jafnframt nauðsyn þess að ákveðið eftirlit verði með nafngiftum barna. Í frumvarpinu sé engum opinberum aðila falið það vald. Samkvæmt frumvarpinu er Þjóðskrá gert skylt að skrá öll nöfn sem henni berast. „Það að bera nafn sem er barni til ama getur haft í för með sér mikla vanlíðan og neikvæð áhrif á sjálfs- mynd þess,“ segir í umsögn umboðs- manns, sem vill að horft verði til reynslu Svía, en þar þurfa foreldrar að sækja um skráningu á eiginnafni barns hjá Skatteverket, sem svipar til Þjóðskrár hér á landi. Hefur sú stofnun heimild til að synja skrán- ingu ef nafnið er talið líklegt til að vekja hneykslan eða valda barninu óþægindum og vanlíðan. Svipuð sjónarmið koma fram í umsögn Barnaverndarstofu, sem telur mikilvægt að hægt verði að stöðva nafngiftir sem geta valdið börnum sálrænu og líkamlegu tjóni. Þá bendir Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur á í sinni umsögn að hagsmunir barna séu fyrir borð bornir í frumvarpinu. Enginn gaum- ur sé heldur gefinn að ráðgefandi hlutverki aðila á borð við trúfélög og mannanafnanefnd. Í stað þeirra geri höfundar frumvarpsins ráð fyrir að sækja megi foreldra til saka sam- kvæmt barnalögum fyrir ofbeldi og vanvirðandi háttsemi eftir að hafa skráð í Þjóðskrá nöfn sem verði börnum þeirra til ama. „Við blasir að slíkt fyrirkomu- lag er órökrétt og stenst engin lög, en jafnframt að engir möguleikar yrðu eftir til að verja börn fyrir ónefnum ef frumvarpið yrði sam- þykkt,“ segir Lára í sinni umsögn. Íslenskufræðingar ósammála Núverandi og fyrrverandi fulltrúar í mannanafnanefnd hafa skilað inn umsögnum þar sem gerð- ar eru fjölmargar athugasemdir við frumvarpið. Þá eru skiptar skoðanir meðal íslenskufræðinga. Eiríkur Rögnvaldsson, prófess- or emiritus í íslenskri málfræði, ótt- ast ekki að íslenskri tungu stafi hætta af breytingum. Erlend mannanöfn eigi nú þegar greiða leið inn í málið og ekki hafi verið sýnt fram á að þau hafi valdið mál- spjöllum. „Fyrirliggjandi frumvarp er veruleg réttarbót og afnemur þá mismunun sem felst í gildandi lögum og er í raun mannréttindabrot,“ seg- ir Eiríkur. Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum, segir frum- varpið grundvallað á rangri for- sendu, þeirri að hinn frjálslyndi andi komi best fram í því að láta íslensk- una lönd og leið og minnist þannig hvergi á tungumálið í lögum sem snúist þó um tungumálið. Hvetur Ármann Alþingi til að veita málinu ekki brautargengi. Frekar skuli end- urskoða núverandi mannanafnalög með tilliti til ýmissa sjónarmiða sem fram komi í frumvarpinu. Telja mikilvægt að geta stöðvað nafngiftir Morgunblaðið/Golli Mannanöfn Nái frumvarp Þorsteins Víglundssonar fram að ganga verð- ur nafngiftum gefinn laus taumur, t.d. fengi karlmaður að heita Sigríður. Samkvæmt frumvarpi Þor- steins og fimm annarra þing- manna á að leggja niður ákvæði gildandi laga um tak- mörkun á fjölda nafna sem einstaklingur getur borið í þjóðskrá. Í umsögn sinni telur Þjóð- skrá Íslands nauðsynlegt að tryggja heimild til að geta áfram skráð og miðlað styttri ritun nafna, þar sem ljóst sé að tölvukerfi sem vinna með nöfn fólks geti ekki borið óendanlegan fjölda stafbila. Kerfi Þjóðskrár voru upp- færð fyrir nokkrum árum, til að geta skráð fullt nafn ein- staklinga án takmörkunar á stafbilum. Var stafbilum fjölg- að úr 31 í 44. Bendir Þjóðskrá á að tölvukerfi margra annarra stofnana sé enn miðað við 31 stafbil. Vegabréfin, sem Þjóð- skrá gefur út, bera að hámarki 38 stafbil. Þannig væri hægt að skrá í þjóðskrá nafnið Guðmundur Sigurður Jóhannes Metúsal- emsson. Væri Þór bætt við myndi tölvukerfi Þjóðskrár ekki ráða við það, eða 45 stafbil. Pláss fyrir 44 stafbil LENGD NAFNA Í ÞJÓÐSKRÁ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.