Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 17

Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Líf og fjör Tíkin Steina naut þess að fara út að ganga í Grafarholtinu með Emmu Karen, Unni Maríu og Elvari Bjarka, sem hoppaði upp á hárréttu augnabliki fyrir ljósmyndarann. Eggert Ekki má í nafni upplýsingasamfélags- ins opna úti í bæ skrár með upplýsingum sem ganga nálægt almenn- ingi án frekari mála- lenginga. Nútíminn veitir margs konar persónuvernd og setur rafrænni vinnslu per- sónugreinanlegra upp- lýsinga skilyrði. Þótt fjárhagsupplýsingar séu ekki viðkvæmar persónu- upplýsingar í skilningi persónu- verndarlaganna er rafræn vinnsla skattaupplýsinga engu að síður svo viðkvæm að skýrar lagaheimildir þurfa að vera fyrir hendi. Þá er hún leyfisskyld og háð ýmsum skil- yrðum. Sjónarmið takast á Opinberir aðilar þurfa að mæta andstæðum sjónarmiðum almanna- hagsmuna og persónuverndar í þessum málum með ótvíræðum hætti þannig að ekki ríki lagaleg óvissa um umdeildar aðgerðir. Þá þyrfti að sætta sjónarmið eftir því sem hægt er. Ef opnun persónugreinanlegra gagna um fjármál er gerð með rétt- mætum sjónarmiðum getur það verið í takt við vilja nýrra persónu- verndarlaga, t.d. um gagnvirka upplýsingagjöf, og laga um endurnot op- inberra upplýsinga en setja þarf um hana ákvæði í skattalög. Munum að heimildir samkvæmt þeim eru til birtingar á prent- aðri skrá sem liggur frammi á hentugum stað í tvær vikur eftir álagningu. Rök með birtingu Krafan um eftirlit með skattgreiðendum styður birtingu skattskrár. Þá er átt við aðhald með því að allir greiði samkvæmt sömu reglum í sameiginlega sjóði. Það er vissulega mjög mikilvægt sjónarmið sem nor- rænar þjóðir hafa gert að sínu og réttmætt er að segja að sá sem svíkur undan skatti á ekki rétt á því að ganga gjaldfrjálst um göt- urnar. Við búum nú í þjóðfélagi þar sem menn þekkja ekki endilega ná- granna sína, það þekkja ekki allir alla og aðstæður annarra, eins og áður var. Því þarf aðhald frá vinnu- stað, frá viðskiptaaðilum og ekki síst launþegum, t.d. í ljósi frétta af meðferðinni á erlendu vinnuafli. Þetta er hagsmunamál allra sem eru á frjálsum mörkuðum; þeir sem eru heiðarlegir eiga ekki að gjalda þess með hærri gjöldum til hins op- inbera en hinir óheiðarlegu. Rök gegn birtingu En andstæð sjónarmið eiga líka rétt á sér. Heyrst hafa þau rök fyrir birt- ingu að hún sé í takt við kröfur tímans um gagnkvæmt gagnsæi op- inberra upplýsinga í lýðræðislegu samfélagi. Skoðum þetta aðeins nánar. Gagnsæi í nútímaþjóðfélagi er gagnkvæmt þannig að almenn- ingur gerir kröfur um að ríkið birti meira af upplýsingum sínum eink- um með þeirri röksemd að ríkið gangi nú þegar mjög nálægt al- menningi. „Ef þú sem stóri bróðir veist allt um okkur ættum við að vita meira um starfsemi þína.“ Ekki er formálalaust hægt að segja að gagnsæi um tekjur almennings sé krafa upplýsingasamfélagsins. En leiðandi aðilar, s.s. stjórnmála- menn og æðstu stjórnendur, þurfa eðlilega að gera grein fyrir hags- munatengslum sínum. Þá hefur komið fram að mikil- vægt sé að fylgjast með misskipt- ingunni í samfélaginu og hvernig hún þróast. Það er rétt. En minnt skal á að Hagstofan veitir ítarlegar upplýsingar sem í sjálfu sér svara þeim spurningum og þeir sem vinna við rannsóknir á misskiptingu hafa þannig aðgang að þeim gögn- um sem máli skipta. Að vísu tekur Hagstofan gjald fyrir sérkeyrslur, sem er hindrun nema fyrir stærri aðila, s.s. stéttarfélög og stjórn- málaflokka. En vefur um tekjur al- mennings bætir litlu við fyrir rann- sakendur því hann er um einstakl- inga, en ekki um þróun eða um lýðfræðilega hópa. Þá er að sjálfsögðu átt við að tekjuvefur veiti aðeins upplýsingar um einstaklinga, en fari ekki langt út fyrir hlutverk sitt, t.d. með veit- ingu tölfræðiupplýsinga. Skilyrði birtingar Ef og þegar skattskrá yrði að- gengileg allt árið á netinu þyrfti að gera það með ströngum skilyrðum. Þá þyrfti birtingin að mæta meðal- hófi, þ.e. að vægasta úrræði væri beitt til þess að ná settu markmiði. Markmið birtingarinnar þarf því augljóslega að liggja fyrir. Hér er sett fram dæmi um skil- yrði sem ríkið gæti sett fyrir slíkri birtingu:  Vinnslan verði gjaldfrjáls og kerfið rekið af Ríkisskattstjóra. Einkaaðilar selja oft upplýsingar og eyða ekki gögnum þótt skilyrði séu sett um tímabundna birtingu – sem kæmi vel til mála í þessu tilviki, t.d. mætti miða við fyrningafresti skattalagabrota.  Gera þarf þeim sem flett er upp viðvart um uppflettingu og þá með notkun þjóðaranetfangs. Ein færsla verði til fyrir hverja uppflettingu. Þetta er lykilatriði í gagnkvæmu gagnsæi.  Upplýsingar séu ekki veittar þriðja aðila. Ef notandi kerfisins finnur eitthvað aðfinnsluvert getur hann gert skattinum viðvart, sem ekki er þriðji aðili, en ekki gert vitneskju sína opinbera. Fyrir þessu eru fordæmi, t.d. í bankalög- um. Með þessu væri komið í veg fyrir að fólk væri úthrópað. Ekki ætti að setja slíkum ábendingum frekari skilyrði.  Tölvuvinnsla opnar á stórfellda upplýsingamiðlun, t.d. með sam- keyrslu. Því verði aðeins mögulegt að fletta upp einum aðila í einu, ekki væri hægt að mynda lista og ekki hægt að taka niðurstöður leit- ar úr kerfinu til sín á sjálfvirkan hátt. Þá þyrfti að loka á uppflett- ingar frá forritum og koma í veg fyrir fjöldaárásir á gögn um ein- staka skattgreiðendur.  Takmarkaða þarf aðgang við ís- lykil og ekkert annað. Hann tengist eðlilega nýju póstkerfi á island.is sem byggist á þjóðarnetföngum – þetta eru mikilvægir innviðir í upp- lýsingasamfélaginu. Eftir Hauk Arnþórsson » Góð samfélags áhrif geta fylgt birtingu skattskrár á netinu. En varla nema hún sé birt með ströngum skil- yrðum. Haukur Arnþórsson Höfundur er stjórnsýslufræðingur. haukura@haukura.is Andstæð sjónarmið um birtingu skattskrár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.