Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 19

Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 19
fyrr á þessu ári var bílalest hans heils- að með sprengjuflaugum – skilaboðin voru skýr. Að segja fréttir af þessari deilu án þess að falli á glansmyndina af Palest- ínumönnum hlýtur að vera stöðug áskorun. Hvernig skal t.d. segja fréttir af niðurskurði Bandaríkjamanna á framlögum til UNRWA og alþjóðaað- stoð til Palestínumanna án þess að minnast á Taylor Force-lögin sem voru samþykkt á Bandaríkjaþingi á þessu ári en þau takmarka greiðslur til Palestínumanna nema þeir afnemi af- kastatengdar verðlaunagreiðslur fyrir morð á ísraelskum borgurum og öðr- um (PA Martyrs Fund) og án þess að minnast á að UN Watch telji kennslu- efni í skólum UNRWA brjóta gegn stofnsáttmála SÞ með hvatningu til Um miðjan síðasta mánuð hélt Jonathan Sacks (Rabbi Sacks) tölu í lávarðadeildinni bresku og talaði um að gyðingahatur væri að taka á sig svipaða mynd og það gerði á myrkum tíma í sögu Evrópu. Hann talaði um þrjá ein- kennisþætti sem ættu jafn vel við nú sem þá: a) gyðingaandúð verður ríkjandi í opinberri umfjöllun, b) stjórnmálamenn verða ekki fyrir fylg- istapi viðri þeir slíkar skoðanir, c) þeir sem mótmæli verði fyrir aðkasti. Samkvæmt nýlegri könnun hafa 40% breskra gyðinga íhugað að flytja úr landi og aðeins 22% þeirra finnst þau velkomin í Bretlandi. Sama þróun hefur sést víðar. Í BNA fjölgaði atvik- um gyðingaandúðar, s.s. kroti á graf- hýsum, um 57% milli áranna 2016-17. Í Danmörku hafa hermenn gætt allra stofnana gyðinga frá því á síðasta ári og í Þýskalandi varaði forseti ráðs gyð- inga þar, Josef Schuster, menn við því fyrr á þessu ári að ganga með kippah í þýskum stórborgum. Í Frakklandi flytja þúsundir gyðinga úr landi á hverju ári sakir hótana og óvildar. Gyðingar í Svíþjóð hafa ekki farið varhluta af þessari þróun. Árið 2010 gaf Simon Wiesenthal-stofnunin út viðvörun til gyðinga er hygðust fara til S-Svíþjóðar og í desember 2017 birti New York Times greinina „Hinn óþægilegi sannleikur um gyðingahatur í Svíþjóð“ en þar segir m.a. frá því að skothelt gler sé í öllum leikskólum gyðinga í Malmö og að svipaðar örygg- isráðstafanir séu við sýnagógurnar þar og eru viðhafðar á flugvöllum. Sumir hafa kennt hægri öfgamönn- um um þessa þróun en samkvæmt könnun Kantor Centre frá 2013 töldu aðeins 4-7% fórnarlamba hatursárása í Frakklandi, Svíþjóð og Bretlandi að hægri öfgamenn hefðu staðið fyrir árásum á sig. Múslimar voru þar efstir á blaði en næstir komu vinstri öfga- menn. Andúð á gyðingum hefur lengi verið viðloðandi hérlendis og er viðhaldið af RÚV sem í marga áratugi hefur haldið uppi einhliða áróðri gegn Ísraelsríki og útmálað það sem árásaraðilann í deil- um þeirra við Palestínumenn. Ég verð að viðurkenna að ég smitaðist af þess- ari óvild er læddist inn með áhorfi og hlustun á fréttatíma RÚV og það var ekki fyrr en ég hlustaði á innhringiþátt frá BBC um deiluna þar sem ung kona í Ísrael lýsti því hvernig væri að búa við daglega hryðjuverkaógn að skoð- anir mínar tóku að breytast. Hún lýsti sundursprengdum strætisvögnum og öðrum hryðjuverkaárásum sem hún og vinkonur hennar höfðu upplifað og hún talaði svo rólega og skynsamlega að það náði til mín og ég fór að horfa með gagnrýnni augum á gerðir Palest- ínumanna. Í allt sumar hefur RÚV flutt einhliða og innihaldslitlar fréttir frá Gaza – helst er sagt frá því hve marga Ísraels- menn hafi fellt eða sært og reynt að láta líta út fyrir að mótmæli Palest- ínumanna hafi verið frið- samleg. Ef 50.000 manna hópur vopnaður hnífum, sveðjum, hand- sprengjum, röra- sprengjum og mólotóv- kokteilum reynir að brjóta sér leið yfir landa- mæri annars ríkis, eins og gerðist 14.- 15. maí í sumar, þá kallast það stríð en ekki mótmæli. Þá daga féllu 50 Ha- masliðar fyrir kúlum Ísraelsmanna. Aldrei sagði RÚV frá því og ekki held- ur frá eldhernaði Gazabúa sem hafa mánuðum saman brennt skóga og akra bænda við landamærin. Ekki er sagt frá tilraunum Egypta til að koma á vopnahléi á Gaza eða andstöðu Abb- as við þær tilraunir. Ekki er heldur minnst á höfnun Hamas á því að Abb- as fái aftur yfirráð á Gaza og að þeir af- vopnist. Er Rami Hamdallah, for- sætisráðherra Palestínu, kom til Gaza Um gyðingahatur og fréttamennsku RÚV Eftir Ingibjörgu Gísladóttur » Óvild og hatur erbeinist gegn gyð- ingum eykst stöðugt í heiminum. RÚV hefur með hlutdrægum frétta- flutningi skapað slíkt andrúmsloft hérlendis Ingibjörg Gísladóttir Höfundur starfar við umönnun aldraðra. vopnaðs jíhads gegn Ísrael? Í viðleitni sinni til að segja hlutdrægar fréttir grípa fréttamenn stundum til að vitna í Erdogan Tyrklandsforseta eða Aljazeera-fréttastöðina. Nýlega var haft eftir Erdogan að lokun sendiskrifstofu Palestínumanna í New York væri mjög bagaleg fyrir þá en málið er að Abbas hefur frá því á síðasta ári neitað að hafa nein sam- skipti við Bandaríkjamenn, ekki einu sinni við demókrata, þótt hann haldi áfram að krefjast peninga frá þeim. Því hefur ekki verið nein starf- semi í þessari skrifstofu og tilgangs- laust að halda henni opinni. Er það eðlileg fjölmiðlun að vitna í hlutdrægustu aðila sem hægt er að finna en tefla engum fram á móti? Samkvæmt siðareglum blaðamanna ber þeim að segja frá báðum/öllum hliðum máls. RÚV er sagt vera mið- ill allra landsmanna. Á það þá ekki að flytja hlutlausar fréttir? Er bæt- andi á gyðingahatur í heiminum? Er ekki þörf á að fram fari úttekt á fréttaflutningi RÚV á öllum sviðum? UMRÆÐAN 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Til í mörgum stærðum og ge Nuddpottar Fullkomnun í líkamlegri vellíðan rðum Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177 byggingar, slagorð og fleira gotterí í baráttunni – og fyllt fangelsin í stað- inn. Ókeypis húsnæði og fæði. En að öllu gamni slepptu þá er ég ótrúlega ánægð með samstarf Ör- yrkjabandalags Íslands og stéttar- félagsins Eflingar. Mér finnst það skref í rétta átt. Ég er afar stolt af starfi Öryrkjabandalagsins, þessa hagsmunafélags okkar öryrkja og styð þá í þeirra góða starfi. Það get ég gert. En ég á mér þann draum að einhvern tímann geti það orðið að stéttarfélagi og geti gert raunveru- lega samninga en ekki aðeins verið þrýstihópur. Og draumar eru til alls fyrstir. Það get ég gert – og vonast til þess að einhvern tímann geri fyrir- tæki, fjármagnseigendur, ríki og sveitarfélag öryrkjum kleift að starfa að hluta á vinnumarkaði, eftir ein- staklingsmiðuðum lausnum því það get ég fullyrt að næstum hver einasti öryrki vill vera það í stað þess að þjást að auki í félagslegri einangrun. En núna er næsta verkefni, að hækka laun (bætur eru ekki til í íslenskri orðabók) öryrkja, hækka persónu- afslátt, draga úr skerðingum og hætta að láta eins og öryrkjar séu heilsu- lausir að gamni sínu. „Því Samningar kallast yfer Hofud allt þad sem Menn verda aasaater umm, hverju Nafne sem heiter.“ Og ef viljinn er fyrir hendi þá ætti það að vera hægt! Allt er hægt! Það er hægt! Höfundur er kennari, blaðamaður, með diploma í fötlunarfræði og ör- yrki. uhj@simnet.is heyrandi vanlíðan allra. Í öllum þessum tilfellum hefur tekist að greiða úr flækjum á einfaldan hátt með þeirri einföldu aðferð að greina, greiða og gefa. Greina með því að lesa fólk og hlusta til að heyra öll sjónarmið og frá sem flestum hliðum. Greiða úr sam- skiptaflækjum með samtölum sem og teymisvinnu deilenda. Gefa fólki tækifæri til að sýna sig og getu sem og mennta, styrkja og rækta einstaklinginn sem hópinn. Um leið og byrjað er að greiða úr samskiptaflækjum og ýtt er við fólki rakna hlutirnir oftast upp af sjálfu sér og fljótlega man ekki margur hvað var í veginum fyrir góðu samstarfi og jákvæðum vinnu- staðaanda. Við erum sem betur fer flest þeim eiginleika búin að gleyma fljótlega leiðindum en muna hið já- kvæða. Það á að vera gaman í vinnunni. Höfundur hefur starfað lengi við stjórnun. valli57@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.