Morgunblaðið - 29.10.2018, Side 23

Morgunblaðið - 29.10.2018, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 ákvörðunartöku, ekki síst þegar úr vöndu var að ráða við ábyrgð- armikil stjórnunarstörf. Hann haggaðist hvergi þó að menn ókyrrðust í kringum hann sem er afar mikilvægur eiginleiki. Eiríkur hafði brennandi áhuga á þjóðmálum og yfir- burðaþekkingu á því sviði. Hann var einn af stofnendum Viðreisn- ar og á þeim vettvangi áttum við ánægjulega samleið. Eiríkur var jafnaðarmaður af norrænu gerð- inni er skildi mikilvægi einka- framtaks og öflugs atvinnulífs sem undirstöðu velferðar ásamt þróttmiklu alþjóðlegu samstarfi. Sem slíkur hafði hann trú á manninum, dómgreind hans og siðgæðisvitund. Sannleikur og réttlæti voru að hans mati horn- steinar góðs samfélags. Eiríkur var ljúfmenni sem alltaf var hægt að treysta á, ekki síst þegar taka þurfti til hend- inni við flutninga og annað slíkt. Þar gekk hann manna vaskleg- ast fram og af mikilli ósérhlífni, jafnvel stundum svo að keyrði fram úr hófi, og fór ekki alltaf vel með sig. Hann var líka einkar úrræðagóður. Auðsótt var að leita ráða hjá honum, hann réð heilt og var vel að sér i flestum málum. Einn mikilvægasti þáttur mannlegrar reisnar er æðruleys- ið. Eiríkur æðraðist aldrei hvað sem á bjátaði. Hann tók alvar- legum veikindum sínum af ein- stakri hetjulund og var miklu tamara að gleðjast yfir vel- gengni annarra en að harma eig- in örlög. Þau Eiríkur og Guðrún voru afar samheldin hjón og gagn- kvæm ást þeirra leyndi sér ekki. Þessi grunngildi eru máttarstoð- ir fjölskyldu þeirra og verða um ókomna tíð. Við kveðjum ein- stakan vin og samferðamann með virðingu og þökk fyrir allt sem hann var okkur og biðjum fjölskyldu hans Guðs blessunar. Valý Helga Ragn- arsdóttir, Jón Þorvalds- son og fjölskylda. Ég vil minnast mágs míns og vinar Eiríks Briem með fáeinum orðum, en hann lést 12. október sl. eftir erfið veikindi. Eiríkur kom inn í líf okkar í Auðarstræti 19, sem var æsku- heimili mitt, þá ungur og glæsi- legur maður um tvítugt. Hann hafði þá nýlega kynnst Gunnu systur minni, sem er elst okkar systkinanna. Með þeim urðu strax miklir kærleikar og þau giftu sig og stofnuðu fjölskyldu. Þau voru alla tíð einstaklega samhent og náin hvert öðru. Þau eignuðust þrjú mannvænleg börn og fallegt heimili. Eiríkur var einstakur heiðurs- maður og höfðingi heim að sækja. Ævinlega var gott að koma inn á fallega heimilið þeirra hjónanna í Selvogsgrunni. Á menntaskólaárunum átti ég því láni að fagna að starfa með honum, er við unnum saman í sumarvinnu við raflínumælingar hjá RARIK. Þar reyndist hann mér sem og öðrum einstaklega vel. Síðar fóru fjölskyldur okkar saman í ferðalög til útlanda og er síðasta ferðin sem farin var til Ítalíu fyrir rúmum tveimur ár- um ákaflega minnisstæð. Þá var Eiríkur fullfrískur og hrókur alls fagnaðar. Eiríkur veiktist fyrir rúmu ári af illvígum sjúkdómi og þrátt fyrir hetjulega baráttu varð hann að láta í minni pokann. Hann sýndi ótrúlegt æðruleysi í þessari erfiðu baráttu. Harmur Guðrúnar systur minnar og fjölskyldu er mikill og ég bið að góður Guð styðji þau og styrki á þessum erfiðu tím- um. Hvíl í friði, kæri vinur. Lárus Ragnarsson. Við gengum inn hver á hæla öðrum; fyrst ég, síðan Eiríkur Briem og loks sérfræðingur á vegum Eiríks Briem. Ég veit ekki hvað aumingja konan sem vildi selja okkur Dóru húsið sitt hefur haldið. Sérfræðingurinn skoðaði eignina í hólf og gólf og að því búnu kvöddum við og ók- um sem leið lá niður í fjöru á Kjalarnesi til að hlýða á úr- skurðinn. Á því augnabliki hef ég líklega komist næst því í mínu lífi að finnast ég heyra til mafíunni. Ég meina, þrír frakka- klæddir menn að ráða ráðum sínum í flæðarmálinu. Þessi atburðarás mun aldrei líða mér úr minni og það sem meira er, hún lýsir Eiríki svila mínum alveg ofboðslega vel; vantaði mann aðstoð var hann strax mættur á svæðið og vant- aði mann sérfræðing útvegaði Eiríkur manni sérfræðing. Aldr- ei var það mál, alltaf sjálfsagður hlutur. Í góðum hópi okkar mága minna og svila var Eiríkur stundum nefndur stórvesírinn; engum manni hef ég kynnst sem fer sá titill betur. Úrskurður sérfræðingsins var jákvæður; húsið var í góðu lagi og vart mátti á milli sjá hvort við Dóra kættumst meira eða Eiríkur. Hann hafði lifað sig svo innilega inn í kaupferlið. Það kom svo sem ekki á óvart, Eirík- ur hafði djúpan áhuga á falleg- um húsum, að innan sem utan, að ekki sé talað um ef góður garður fylgdi með. Garðinn á Kjalarnesi þekkti hann alla tíð betur en ég sjálfur. Og fagurkeri var hann, fram í fingurgóma. Fallegra heimili en þeirra Gunnu í Selvogsgrunni höfum við Dóra varla séð. Og garð. Þegar ég kom inn í fjölskyld- una fyrir um aldarfjórðungi smullum við Eiríkur strax sam- an. Hann var skarpgreindur maður, fjölfróður og fylgdist grannt með umræðunni, innan lands sem utan. Fyrir vikið var sérstaklega gaman að spjalla við hann og útilokað að koma að tómum kofunum. Þegar fjör færðist í leikinn hitnaði Eiríki stundum í hamsi, ekki síst ef pólitíkin var annars vegar, en húmorinn var þó aldrei langt undan. Eiríkur var lífsglaður og hafði sérstakt yndi af því að skoða samfélagið í spéspegli. Spjaldaði mig raunar einu sinni í því sambandi. „Þú skrifaðir al- varlegan ljósvakapistil í Mogg- ann um daginn. Láttu það ekki koma fyrir aftur, frændi!“ Það voru ekki bara þjóðmálin sem vöktu áhuga Eiríks; hann hafði líka brennandi áhuga á öllu sem sneri að fjölskyldu og vin- um. Vildi vita allt um alla. Nokkrum dögum áður en hann dó sátum við Dóra á sjúkrabeð- inum hjá honum og helsjúkur spurði hann okkur spjörunum úr um börnin og allt heila galleríið. Meira að segja nýja hundinn. „Hvernig gengur með þennan fræga hund?“ Þá vafðist okkur tunga um tönn. Sárt er að kveðja eftir langt ferðalag sem aldrei bar skugga á. Dóra var rétt fjögurra ára þegar Eiríkur og Gunna felldu hugi saman og man fyrir vikið ekki eftir sér öðruvísi en að Ei- ríkur hafi verið til staðar. Hann var meira eins og bróðir hennar en mágur. Og betri fyrirmyndir er ekki hægt að hugsa sér í þessu lífi; svo samstiga, glæsileg og ástfangin sem þau alla tíð voru. Það var aldrei bara Gunna og aldrei bara Eiríkur. Alltaf Gunna og Eiríkur. Þau gerðu allt saman. Missir Gunnu, barna þeirra og barnabarna er vitaskuld mestur; kletturinn í hafinu er horfinn. En minningin lifir. Minningin um einstakan dreng. Orri Páll Ormarsson og Halldóra Anna Ragnarsdóttir. Menntaskólaárin eru í huga margra skemmtilegustu árin í lífi hvers og eins. Eftir þriðja bekk í MR (sem eins og flestir vita er í raun fyrsti bekkur) komu tveir piltar í fjórða bekk- inn okkar haustið 1966, þeir Ei- ríkur og Magnús. Þar sem þeir voru nýliðar í bekknum voru þeir látnir sitja saman og var það upphafið að ævilöngum vin- skap þeirra. Eiríkur féll strax ágætlega inn í hópinn, var þétt- ur á velli og léttur í lund. Hann naut þeirra forréttinda að mega sleppa dönskunni, því sænska var hans móðurmál í orðsins fyllstu merkingu. Það var ekki laust við að margir öfunduðu hann vegna þess. Skólaárin voru ótrúlega fljót að líða og fyrr en varði var komið að útskrift vorið 1969 og við tók endalaus gleð- skapur í tilefni hennar. Okkur bekkjarfélögunum var þá boðið heim til Eiríks í Snekkjuvoginn í stúdentsfagnað. Þar var glatt á hjalla og faðir Eiríks, Eiríkur eldri, var hrókur alls fagnaðar. Eftir menntaskólann skildi leiðir og það vildi þannig til að ég kynntist föður Eiríks ágætlega í gegnum starf mitt hjá Lands- virkjun, en hann var þá forstjóri fyrirtækisins. Eiríkur eldri var höfuðsnillingur og hagyrðingur góður. Það var svo árið 1986 að raunveruleg vináttubönd urðu til er ég gerðist gildur limur í spila- klúbb Eiríks og tveggja sameig- inlegra vina okkar úr MR, þeirra Magnúsar og Þórðar. Við spiluðum brids á tveggja vikna fresti að jafnaði yfir vetrartím- ann og áttum saman ótrúlega margar og ljúfar gleðistundir bæði við spilaborðið og á öðrum vettvangi æ síðan. Eiríkur og Guðrún eiginkona hans voru höfðingjar heim að sækja og við minnumst margra glæsiboða sem haldin voru í Selvogsgrunni og Neðstabergi. Eiríkur helgaði orkugeiranum starfskrafta sína, fyrst hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, svo hjá Rafmagns- veitum ríkisins, síðan Lands- virkjun í stuttan tíma, en lauk svo starfsferli sínum hjá Lands- neti. Lengst af var hann fjár- málastjóri þessara fyrirtækja, að Landsvirkjun undanskilinni. Ei- ríkur var grandvar maður, hald- inn ríkri réttlætiskennd og hann var vinur vina sinna. Hann var mikill gleðimaður og naut sín í góðra vina hópi. Fjölskyldan var honum allt og hann vildi veg hennar sem mestan. Við kveðj- um Eirík með sárum söknuði og vottum Guðrúnu og börnum þeirra og barnabörnum okkar dýpstu samúð. Stefán og Þórunn. Kær vinur er fallinn frá langt um aldur fram eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm sem læknavísindin eiga enn lítil svör við. Ég kom utan af landi og settist í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík haustið 1968 og þekkti engan af nýju bekkjar- félögunum. Við hlið mér settist myndarlegur ungur maður. Þetta var Eiríkur Briem, bjartur yfirlitum og hreystin uppmáluð, en hann var einnig nýr í bekkn- um. Við urðum upp frá því sessunautar öll menntaskólaárin og tókst með okkur einlæg vin- átta sem varað hefur æ síðan. Það var einstakt lán fyrir mig að fyrstu kynni okkar bar að með þessum hætti. Við áttum saman margar skemmtilegar stundir á þessum árum bæði í skólanum og utan hans. Við sóttum m.a. bíóhúsin og skemmtistaði borg- arinnar sem á þessum árum voru Hótel Borg, Glaumbær og Sigtún. Ljúfar minningar frá þessum árum hrannast nú upp við fráfall míns kæra vinar. Skömmu eftir að Eiríkur kom heim úr sínu háskólanámi er- lendis stofnuðum við félagarnir spilaklúbb sem hefur verið mjög virkur fram á þennan dag og veitt okkur öllum mikla gleði. Nú er höggvið stórt skarð í þennan góða hóp. Að Eiríki stóðu sterkir ís- lenskir stofnar, en oft fannst mér eins og sænsku genin úr móðurættinni væru samt sem áður töluvert áberandi í fari hans. Hann var jafnaðarmaður og Evrópusinni og tók þátt í störfum íslenskra jafnaðar- manna um skeið og ég er viss um að þar hefur hann lagt gott til mála eins og jafnan. Það var einstaklega gefandi að ræða við Eirík um stjórnmál sem og önn- ur mál líðandi stundar. Mjög oft kom hann með sjónarmið sem ekki höfðu heyrst áður og reyndust rétt. En það var aldrei langt í gamansemina og spaugi- legar hliðar mannlífsins þegar Eiríkur var nærri. Eiríkur helgaði starfsævi sína íslenska orkugeiranum og þá sérstaklega rafmagnsframleiðslu og flutningi rafmagns. Hann var maður vatnsaflsins sem hann taldi sjálfbært, mun frekar en nýtingu jarðhitans. Það er eft- irtektarvert í umræðunni um loftslagsbreytingar að fram- leiðsla endurnýjanlegrar orku er jafnan talin eitt mikilvægasta skrefið sem Ísland hefur stigið hingað til í þágu loftslagsvernd- ar. Eiríkur var mikill fjölskyldu- maður og það var mikil gæfa þegar hann kynntist eiginkonu sinni Guðrúnu Ragnarsdóttur. Þau voru einstaklega samhent hjón og börn þeirra bera þeim fagurt vitni. Barnabörnin voru Eiríki mjög kær og hann naut þess að vera með þeim, styrkja þau og styðja á þroskabraut. Missir þeirra allra er mikill. Við fráfall Eiríks er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa kynnst honum og átt hann sem einstakan félaga og vin í rúm- lega hálfa öld. Við Ragnheiður sendum Guðrúnu og fjölskyld- unni allri hugheilar samúðar- kveðjur. Minning um góðan dreng mun lifa með okkur um ókomna tíð. Magnús Jóhannesson. Gamall æskuvinur er látinn úr óvægnum sjúkdómi rétt rúmlega sjötugur. Hann lést í æsku sinni eins og sagt var einhvern tíma um annan mann, enda er þetta enginn aldur nú á dögum. Dauð- inn er hins vegar stundvís þegar sá gállinn er á honum. Við Eirík- ur kynntumst í barnaskóla og vorum miklir mátar. Síðan skildu leiðir eins og gengur, við fórum hvor í sinn skólann, sótt- um nám sitt hvorum megin Atl- antshafsins. Hins vegar var ætíð strengur á milli okkar, fagnaðar- fundir þegar við hittumst, stund- um á förum vegi, og síðast fyrir rétt rúmlega mánuði. Þá var ljóst í hvað stefndi. Strengurinn er nú slitinn en minningin lifir. Ég votta Guðrúnu, börnum þeirra og öllum aðstandendum djúpa samúð. Skaði okkar sem eftir sitjum er sár, þeirra enn sárari. Sigurður Guðmundsson. Haustið 1955 settust tveir sjö ára drengir á skólabekk í Lang- holtsskóla í Kleppsholti í Reykjavík. Þá óraði ekki fyrir því að leiðir og lífið myndu tvinnast svo þétt saman sem raunin varð með okkur, mig og æskuvin minn og einstakan fé- laga Eirík Briem. Árin í gegnum barnaskólann þróuðust eins og gengur og gerist; lærdómur, leikur, og gleði út í eitt. Öll þau ár vorum við báðir og nokkru lengur í sveit á sumrin. Eftir á vorum við sammála um að sú vist hefði aukið þroska og sjálf- stæði, sem kom sér vel seinna í lífinu. Strax á barnaskólaárum komu í ljós flugskarpar gáfur Eiríks, sem og mikill líkamlegur kraftur, enda var hann títt feng- inn til að taka glímutök, sem tíðkaðist í þá daga, og hafði nær alltaf betur. Einnig við okkar eldri skólabræður. Við vorum áfram samferða gegnum gagnfræðaskóla, og síð- ar Menntaskólann í Reykjavík. Á þeim árum unnum við þétt saman á sumrin í raflínumæling- arverkefnum hjá Rarik og síðar Landsvirkjun og var oft glatt á hjalla hjá okkur. Eiríkur kynnt- ist eiginkonu sinni, Guðrúnu Ragnarsdóttur, á þessum árum og voru þau til fyrirmyndar samstæð. Eftir stúdentspróf héldum við báðir til náms í Skandinavíu, þar sem Eiríkur nam hagfræði í Linköping. Eftir að heim var komið og börnum fjölgað voru fjölskyldur okkar alltaf í miklum samskiptum. Við ferðuðumst mikið saman víða um land, ósjaldan að Kleifum og að Búrfelli þar sem mikið var spjallað og leikið. Allt varð það til þess að börn okkar öll eru miklir vinir og halda enn þéttu og góðu sambandi. Stjórnmál áttu sterkan sess í hjarta Eiríks, og vildi hann þar sjá breytingar og hafði þann kjark sem þurfti til að láta verk- in tala. Við komum ásamt fleir- um að stofnun Bandalags jafn- aðarmanna, þar sem markmiðið var að tekið yrði á pólitískum breytingum, sem bæta mættu umræðu og framgang stjórnmál- anna. Þar lagði Eiríkur sann- arlega framtíðarlóð á þær vog- arskálar. Stjórnmálahjarta Eiríks hélt áfram að slá og hann kom fyrir fáeinum árum að stofnun Viðreisnar, var þar dyggur bakhjarl og lagði ekki síst áherslu á að horfa til breyt- inga gjaldmiðils. Eiríkur hafði alltaf þor og dug að tala hrein- skilið og segja hlutina umbúða- laust. Það er mikill harmur kveðinn að ótímabæru fráfalli Eiríks, sem engan grunaði að svo færi þegar veikindin komu fyrst upp fyrir tæpu ári. En sterkur per- sónuleiki og afburðagreind veittu honum jafnvægi og skyn- semi til að takast á við þennan illvíga sjúkdóm af miklum styrk og æðruleysi. Hann barðist eins og hetja til síðasta dags. Okkar djúpa og einstaka vin- átta spannaði rúma sex áratugi. Hún byggði á trausti og trúnaði og þar sýndi Eiríkur sinn mikla styrk þegar á þurfti að halda. Það er erfitt að sitja eftir og hugsa til þess að geta ekki leng- ur tekið upp símtólið eða hringt dyrabjöllu hjá þér, minn kæri vinur. Ósjaldan áttum við samtöl um allt milli himins og jarðar, sem og djúp persónuleg mál. Ávallt var Eiríkur boðinn og bú- inn að taka slíka umræðu og veita góð ráð. Þess mun ég sakna en minnast þeirra og allra okkar stunda saman með kær- leik og miklu þakklæti. Hvíldu í góðum friði, minn gamli góði og einstaki vinur, betri vin var ekki hægt að eign- ast. Takk fyrir allt. Ég votta Guðrúnu, börnunum Maj Britt, Eiríki og Katrínu og barnabörn- um alla mína samúð. Einnig votta ég samúð Haraldi, Snjó- laugu og Óla, sem og ekkju móð- urbróður Eiríks, Maj Britt, í Örebro í Svíþjóð. Þórður H. Ólafsson. Við ólumst upp í „Litlu götu“ sem í opinberum gögnum telst vera Snekkjuvogur 3 til 17 í Reykjavík. Tvö raðhús standa þar hvort andspænis öðru, og þarna var helsti vettvangur æsk- unnar. Frumbyggjarnir, foreldr- ar okkar, voru á svipuðum aldri, og það sama átti við um okkur börnin; til dæmis vorum við fjögur á sama árinu og öll í sama bekk allan barna- og gagnfræða- skólann: Solla, Hallgunnur og við Eiríkur. Þrjár mæðranna voru skandínavískar, og allir feðurnir höfðu menntast á Norð- urlöndum á stríðsárunum. Lífleg og sérstök stemning í götunni mótaðist eflaust af þessum stað- reyndum þótt við börnin værum ekkert að hugsa um það. Maja-Greta móðir Eiríks var frá Örebro í Svíþjóð, listmálara- dóttir, og veggirnir í Snekkju- vogi 7 voru skreyttir myndum föður hennar. Eiríkur var sagð- ur nauðalíkur móðurafanum, sem lést um það leyti sem dótt- ursonurinn fæddist; sagt var að frænkur og nágrannakonur ömmunnar í Svíþjóð hefðu rekið upp undrunaróp þegar drengur- inn lyfti hægri hendi að höfðinu með nákvæmlega sömu hreyf- ingu og afinn hafði gert. Eiríki var margt gefið. Hann var listrænn eins og svo margir í ætt hans. Og margar lýsingar á helstu köppunum í okkar gömlu skræðum gætu vel átt við um hann enda gat hann gengið á höndum langar leiðir og tekið heljarstökk afturábak og áfram. Hann var hvers manns hugljúfi. Foreldrum mínum þótti afar vænt um hann; og þegar þannig stóð á að foreldrar hans voru er- lendis var hann ævinlega vel- kominn gestur á heimilinu hjá okkur. Seinna unnum við mörg sum- ur hjá RARIK. Þetta var draumastarf; við fórum um allt land í félagsskap eftirminnilegra manna. Þetta sumarstarf var upphafið að ævilöngum afskipt- um Eiríks af málefnum raf- magnsveitna. Á þeim vettvangi gegndi hann forystustöðum, m.a. hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, RARIK og Landsneti. Svíþjóð átti löngum hug fjöl- skyldunnar í Snekkjuvogi 7. Í Örebro bjó Anders, bróðir Maju- Gretu, og Maj-Britt, kona hans. Þau voru barnlaus og af þeirri ástæðu hafa þeir bræður, Har- aldur og Eiríkur, sennilega verið þessum góðu hjónum þeim mun kærari. Eftir að Guðrún og Ei- ríkur fóru í háskólanám til Sví- þjóðar styrktust enn vinaböndin – og ný Maj-Britt kom til sög- unnar. Maj-Britt eldri lifir enn í hárri elli og syrgir nú góðan dreng. Eiríkur átti stóran vinahóp, enda hrókur alls fagnaðar ef því var að skipta, snillingur í að skil- greina þjóðfélagsástand á líð- andi stund og góður ráðgjafi þegar til hans var leitað; oft fékk ég að reyna það. En kannski naut hann sín best í faðmi sinnar góðu fjölskyldu. Aðdáunarvert var hvað Guðrún og hann voru samhent í öllu sem laut að nán- asta umhverfi og ættingjum. Og hvergi hef ég séð smekklegri garð en hjá þeim í Selvogs- grunni eða fallegri híbýli. Mér fannst ég skynja þar sænskan anda öðru fremur. Við Finna minnumst Eiríks með söknuði en líka með gleði yfir því að hafa átt hann fyrir vin. Baldur Hafstað. Í dag kveðjum við með trega góðan vin og félaga, Eirík Briem, hagfræðing og fyrrver- andi framkvæmdastjóra fjár- málasviðs RARIK. Við höfum um margra ára skeið verið sam- ferða á lífsins vegi, bæði í starfi og leik. Eiríkur starfaði hjá RA- RIK með hléum í um tvo ára- tugi, fyrst við línumælingar og áætlanagerð á sumrin, síðan sem rekstrarhagfræðingur á fjár- máladeild, en 1987 var hann ráð- inn sem forstöðumaður fjár- málasviðs RARIK. Við skipulagsbreytingar 1996 tók hann síðan við stöðu fram- kvæmdastjóra fjármálasviðs RARIK og hlutverki staðgengils rafmagnsveitustjóra. Hann hætti störfum hjá RARIK í árs- lok 2004 og fór til starfa hjá Landsneti, þar sem hann starf- aði þar til hann fór á eftirlaun. Eiríkur var traustur maður sem stóð við sitt, smátt eða HINSTA KVEÐJA Góður drengur er geng- inn. Við vottum fjölskyldu hans innilega samúð okkar. Megi góður Guð vera þeim líknsamur og lina sorgir þeirra. Þórunn, Bergljót og Soffía Wathne. SJÁ SÍÐU 24

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.