Morgunblaðið - 29.10.2018, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rúta
fer frá Vesturgötu kl. 10.10 og Aflagranda kl. 10.20. Félagsvist kl. 13.
Útskurður kl. 13. Kapitólurnar kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Ganga
um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16.
Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið
fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-
15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Áskirkja Jólabasar Áskirkju, Vesturbrún 30, verður haldinn þann
sunnudaginn 11. nóvember að aflokinni messu, um kl. 12. Ef þið viljið
gefa muni á basarinn þá endilega komið þeim til kikjunnar, kirkju-
vörður mun taka á móti. Ef þið hafið tök á að gefa okkur kökur eða
annað kruðerí á kökuborðið okkar þá endilega komið með í efri sal
kirkjunnar sunnudaginn 11. nóvember milli kl. 10 og 11.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Myndlist kl. 12.30. Félagsvist kl. 13. Vatns-
leikfimi kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Samprjón kl. 13.30-14.30. Bútasaums-
hópur kl. 13.-16. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverksstofa kl. 9. Upplestur
kl. 10.10. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10. Núvitund kl. 10.30-
11.30. Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-13.30. Handaband, skapandi
vinnustofa með leiðbeinendum kl. 13-15.30. Söngstund við píanóið kl.
13.30-14.15. Frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Línudans kl. 15-16.
Söguhópur kl. 15.30-16.15. Verið velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59,
sími 411-9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi. kl. 7.30 /8.15 /15.15. Kvennaleikfimi
Sjálandi kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði
kl. 11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Saumanámskeið í Jónshúsi kl. 14.10. Smiðja Kirkjuhvoli opin kl. 13
–16, allir velkomnir. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með leið-
beinanda kl. 9-16. Leikfimi Maríu kl. 10-10.45. Leikfimi Helgu Ben kl.
11-11.30. Qigong kl. 10.30-11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30. Handavinna / brids kl.
13. Jóga kl. 17. Félagsvist kl. 20.
Hraunsel Myndmennt kl. 9. Tyffanis í föndurstofu kl 9-12. Gaflara-
kórinn kl. 11. Félagsvist kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga með Carynu kl. 10 og samverustund kl.
10.30. Hádegismatur er kl. 11.30, tálgun og listasmiðja kl. 13. Frjáls
spilamennska kl. 13. Liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.15
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum, ganga kl. 10 frá
Borgum og inni í Egilshöll, dans í Borgum kl. 11. í dag, vonumst til að
sjá sem flesta. Skartgripagerð kl. 13 í Borgum og félagsvist í Borgum
kl. 13. Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum og kóræfing Korpusyst-
kina kl. 16. í dag í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest-
ur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl.14, bíó á 2.
hæð kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 –15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Zumba Gold námskeið fyrir styttra komna/byrjendur
kl. 9.45. ZUMBA Gold framhald kl. 10.30. STERK OG LIÐUG leikfimi kl.
11.30. Tanya leiðir alla hópana.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
frændsystkinum til að leika við
eða þá að maður kúrði í rólegheit-
unum inni í stofu og skellti víd-
eóspólu í tækið.
Þegar ég var að komast á ung-
lingastigið fluttum við fjölskyldan
til ömmu og bjuggum hjá henni
um stund. Ég gerði mér löngu
seinna grein fyrir hvað þessi tími
var dýrmætur, því á viðkvæmu
stigi fann ég öryggi í nærveru
ömmu. Við vorum vanafastar og
horfðum alltaf á sömu þættina og
sátum löngum stundum við að
hekla veski sem ég seldi í skól-
anum fyrir vasapening. Seinna út-
vegaði hún mér vinnu á Borgar-
spítalanum og þar unnum við
saman tvö sumur. Það var gaman
að vera með ömmu í öðru um-
hverfi en líka notalegt, og auðvitað
fann ég hvað hún náði vel til allra,
svo indæl, samviskusöm og bros-
mild. Já, við náðum vel saman og
oft fór ég heim með henni og gisti
þegar við unnum á sömu vöktum.
Við vorum vinkonur.
Svo liðu árin og amma fór á
eftirlaun. Ég veit ekki hvor var
spenntari, hún eða við. Hún hafði
alltaf gefið sér góðan tíma til að
rækta áhugamálin en núna gat
hún gert nákvæmlega það sem
hana langaði til að gera, hvenær
sem hún vildi. Hún tók allt með
trompi: kórinn, dansinn, eldri-
borgarastarfið, ferðalögin, ævin-
týrin.
En svo var hún líka mamma, og
hún var amma og langamma. Og
mikið sem hún leysti þau hlutverk
vel af hendi. Hugsaði svo ósköp
vel um allt og alla í kringum sig.
Jólaboðin sem hún hristi fram úr
erminni enda skipulögð með ein-
dæmum. Afmæli og veisluhöld,
gjafir og prjónaskapur fyrir öll
litlu krílin. Hún elskaði af öllu
hjarta fólkið sitt og sýndi því
áhuga og umhyggju.
Þetta var hún amma mín, elsku
besta sem ég á eftir að sakna svo
sárt. Sakna þess að geta ekki sagt
henni frá öllum heimsins áhyggj-
um á meðan hún hlustar róleg með
athygli yfir kaffibolla og gjarnan
lagköku. Fá hjá henni uppskrift.
Spyrja um gamla tíma og hlusta á
sögur frá því þegar hún var ung.
Hlusta á hana spjalla glaðlega við
barnabarnabörnin, jú eða syngja
fyrir þau. Ég er svo þakklát og
glöð fyrir allar fallegu og góðu
minningarnar um dásamlega
ömmu. Megi Guð og góðir englar
vaka yfir henni um ókomna tíð.
Helga Valdís.
Minningarnar streyma fram í
hugann og hjartað fyllist þakklæti
er ég kveð þig í hinsta sinn, elsku
amma mín. Þakklæti fyrir öll árin
sem ég fékk að eiga með þér og
fyrir að hafa átt fyrirmynd í þess-
ari fallegu, sterku, kærleiksríku
og lífsglöðu konu sem þú varst.
Þegar ég horfi til baka í átt að
æsku minni eru það samveru-
stundirnar hjá ömmu í Melgerði
sem standa hvað mest upp úr. All-
ar þessar óteljandi stundir með
þér, dætrum þínum fimm og risa-
stórum frændsystkinahópi þar
sem allir gátu fundið leikfélaga við
sitt hæfi. Þið mæðgur voruð ötul-
ar við að finna upp allar og engar
sérstakar ástæður til þess að hitt-
ast. Heimsóknir, sumarbústaða-
ferðir, útilegur, jólaboð, afmælis-
veislur, sundferðir, bíltúrar,
nestisferðir, berjatínsluferðir, sól-
baðsdagar á risastóru svölunum í
Melgerðinu og svona mætti lengi
telja. Þvílík gullnáma fyrir okkur
krakkana! Það var alltaf mikið líf
og fjör í Melgerðinu og þegar þú
fluttir svo í litlu íbúðina þína í Nú-
palindinni þá einfaldlega þjöppuð-
um við okkur betur saman.
Árin liðu og það kom smám
saman að því að samverustundum
fjölskyldunnar fækkaði. Barna-
börnin þín öll orðin fullorðin, dæt-
ur þínar sjálfar orðnar ömmur og
þú orðin margföld langamma.
Eðlilega fóru fjölskylduhitting-
arnir að færast meira inn í hverja
fjölskyldu fyrir sig. En amma hélt
áfram að flakka á milli, mæta í af-
mæli, allskyns viðburði og bara
einfaldar heimsóknir. Þú ferðaðist
landanna á milli til þess að hitta
börn, barnabörn og langömmu-
börn, vildir fylgjast með öllum og
vera hluti af og þátttakandi í lífi
okkar allra. Í hvert skipti sem við
frændsystkinin hittumst, hvort
sem það var öll saman eða bara
2-3 að fara í bíó saman, þá gladdist
hjarta þitt. Fjölskylduböndin
skiptu þig meira máli en allt annað
og það var ekki nóg fyrir þig að þú
sjálf værir tengd okkur öllum
sterkum böndum heldur vildir þú
að við ættum öll sterk tengsl okk-
ar á milli. Ekkert gladdi þig meira
en að sjá börnin þín öll mynda
tengsl sín á milli, njóta lífsins sam-
an og elska hvert annað. Ég hef
alltaf talið mig vera svo heppna að
tilheyra þessari frábæru fjöl-
skyldu og hver einasta manneskja
á sérstakan stað í mínu hjarta. Þó
svo að lífið beri okkur oft á mis-
munandi slóðir og samverustund-
irnar séu ekki alveg jafn margar
og þær voru í gamla daga þá eru
tengsl okkar og ást til hvert ann-
ars alltaf sterk vegna þess að fjöl-
skyldubönd okkar eru byggð á
sterkum grunni og það eigum við
þér að þakka. Þú varst stórkostleg
kona og fordæmi þitt er mér
ómetanlegt.
Sofðu rótt, elsku amma mín. Þú
verður ávallt í hjarta mínu og þar
munt þú lifa áfram um ókomin ár.
Þín
Hanna Karitas.
Fallin er frá kær samferða-
kona.
Það er ótrúlegt hvað tíminn líð-
ur hratt. Við kynntumst í leikfimi
hjá Margréti Bjarnadóttur og
kom fljótlega í ljós að hún var frá
Suðureyri, þar sem maðurinn
minn ólst líka upp. Þar af leiðandi
þekktum við oft sama fólkið þegar
Súgfirðinga bar á góma. Hún var
einn af stofnfélögum Íþrótta-
félagsins Glóðar og hefur verið
virkur félagi frá stofnun þess
2004. Við höfum átt margar góðar
samverustundir á liðnum árum.
Við spiluðum ringó, dönsuðum og
fórum saman á landsmót UMFÍ,
til Gran Canaria og Portúgal með
félaginu okkar, einnig tókum við
þátt í sýningum, m.a. í Þjóðleik-
húsinu, Borgarleikhúsinu og Ráð-
húsi Reykjavíkur. Hún missti hins
vegar af stórsýningu sem haldin
var í tilefni af 10 ára afmæli Glóð-
ar í Smáranum. Hún veiktist ein-
mitt á æfingu fyrir hana. Við vor-
um saman í herbergi í flestum
ferðum sem farnar voru innan-
lands sem utan á vegum félagsins.
Sambúðin gekk vel hjá okkur.
Hún hefur átt langan starfsdag
og komið upp mannvænlegum
börnum. Barnabörnin og lang-
ömmubörnin voru henni mikils
virði og hún hefur verið dugleg að
sinna þeim. Hún hefur haft
ánægju af hreyfingu hvers konar
og alltaf verið jákvæð, glöð og hlý-
leg. Við höfum haldið hópinn
nokkrar ringókonur og farið í
menningarferðir til Reykjavíkur
og byrjuðum oftast ferð okkar í
Hallgrímskirkju og eitt sinn fór-
um við upp í turninn og nutum út-
sýnisins. Veður var gott þennan
dag og glampandi sólskin. Eitt
sinn fórum við líka í bæinn þegar
það var myndlistarsýning á Skóla-
vörðustíg, sem var virkilega gam-
an. Við vorum á fornum slóðum
því að tvær okkar ólust upp í mið-
bænum og Kristjana átti heima
þar sín fyrstu búskaparár og einn-
ig vann hún í kjötbúð Tómasar,
sem var á horni Laugavegs og
Skólavörðustígs. Við lentum í
ýmsum ævintýrum, hittum þjóð-
þekkt fólk á förnum vegi, sem gaf
sig á tal við okkur og höfðum við
gaman af. Þess skal getið að við
völdum alltaf góðviðrisdaga til
þessara ferða. Kristjana hafði
yndi af söng, var í kór Trésmíða-
félags Reykjavíkur, Glæðunum og
nú seinni árin hefur hún sungið
með Söngvinum, sem er kór aldr-
aðra í Kópavogi. Hún mætti á all-
ar æfingar svo fremi að hún hefði
heilsu til. Hún vann á Borgarspít-
alanum í mörg ár og einnig vann
hún með manni sínum við bólstrun
og fleira. Hún var mikil handa-
vinnukona og var dugleg að
prjóna ýmsar flíkur handa afkom-
endur sínum, en þeir eru yfir 50.
Vinkonur hennar í Glóð sakna
hennar sárt.
Ég vil þakka henni góð kynni
og hlýju í minn garð. Samúðar-
kveðjur sendi ég dætrunum og
fjölskyldum þeirra.
Blessuð sé minning mætrar
konu.
Sigríður Bjarnadóttir.
arkveðjur. Hugur minn er hjá
ykkur á þessum erfiðu tímum.
Elsku vinkona, takk fyrir allar
góðu stundirnar okkar. Ég bið
alla englana mína að hugsa vel um
þig og þig að passa þá.
Ég elska þig og við sjáumst
seinna.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þín æskuvinkona,
Kristjana Ósk.
Í dag kveðjum við vinkonu okk-
ar, Birgittu Rós, sem féll frá í
blóma lífsins eftir baráttu við ill-
vígan sjúkdóm. Eftir sitjum við
með sorg í hjarta en þakklátar
fyrir að hafa fengið að njóta sam-
vista við Birgittu.
Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
(Hjálmar Freysteinsson.)
Þetta vísukorn kom upp í hug-
ann nú þegar Birgitta okkar verð-
ur lögð til hinstu hvílu. Við vinkon-
urnar eigum okkur fallega sögu.
Við erum ólíkur hópur kvenna
sem hafa átt því láni að fagna að
vinátta okkar hefur blómstrað og
þróast. Kynni okkar hófust þegar
við, sjö mæður sem komum allar
hver úr sinni áttinni og áttum lítið
sameiginlegt, höfðum verið kosn-
ar í stjórn foreldrafélags Hraun-
vallaskóla. Það er óhætt að segja
að það hafi verið gaman hjá okkur
því þegar aðrir tóku við keflinu
gat engin okkar hugsað sér að
missa sambandið við þennan góða
hóp.
Við héldum því áfram að hitt-
ast, einu sinni í mánuði. Við vorum
samt ekki í hefðbundnum sauma-
klúbbi heldur skvísuklúbbi! Þar
héldum við áfram að skeggræða
ýmislegt, segja sögur og hlæja
bæði dátt og innilega. Þessi frá-
bæri hópur hefur hist reglulega
síðastliðin ár og á þeim tíma höf-
um við brallað ýmislegt, vináttan
orðið dýpri og minningarnar fleiri.
Birgitta hafði orð á því oftar en
einu sinni að henni þættu kvöld-
stundirnar okkar skemmtilegar.
Hún hlakkaði til að kasta frá sér
áhyggjum, ræða saman og hlæja.
Hennar eigin orð eftir eina slíka
kvöldstund voru:
„Takk æðislega fyrir kvöldið,
elsku vinkonur. Mikið er ég glöð
að hafa ákveðið að skrá mig í for-
eldrafélagið hérna um árið og
hitta akkúrat á ykkur gullmolana.
Mér þykir afskaplega vænt um
ykkur elskur og vona að mánaðar-
legu saumaklúbbshláturkvöldin
okkar komi til með að haldast
lengi enn, þar til hrukkurnar
verða orðnar svo margar að við
hættum að geta talið þær, sumar
komnar með bleyju, aðrar með
heyrnatæki og hinar tannlausar.
Hlakka mikið til að hitta ykkur
næst …Luv ya.“
Nú síðast hittumst við allar í
lok ágúst og það fór ekki framhjá
okkur vinkonunum að Birgitta var
orðin mjög lasin. Hún kom samt
fyrst og fór síðust.
Það hefur verið höggvið skarð í
góða hópinn okkar. Birgitta er
flutt yfir í Sumarlandið en við hin-
ar ætlum sannarlega að halda
áfram að hittast, hlæja og ylja
okkur yfir góðum minningum um
leið og við sköpum nýjar.
Við vottum Camillu, Andra og
öðrum fjölskyldumeðlimum okkar
innilegustu samúð. Minning um
góða vinkonu lifir.
Bára, Bryndís, Fríða, Jór-
unn, Linda og Zanný.
Elsku Birgitta okkar. Við eig-
um svo erfitt með að trúa því að
þú sért farin. Hvernig getur það
verið satt? Við höfum haldið hóp-
inn síðan á menntaskólaárunum.
Við komum allar úr mismunandi
áttum en urðum mjög fljótt þéttur
hópur. Við höfum átt svo margar
góðar stundir saman, ferðast bæði
hérlendis og erlendis og haldið
ótal hittinga. Þvílík lukka að hafa
átt þig að elsku Birgitta, með
bjarta brosið þitt, jarðbundin, hlý
og alltaf tilbúin að ræða öll okkar
vandamál. Þú varst svo hugrökk
og jákvæð í gegnum veikindin og
tókst á við þau af æðruleysi og
auðmýkt. Þvílík fyrirmynd. Takk
fyrir vináttuna og minningarnar
sem við eigum, þú munt alltaf eiga
stað í hjörtum okkar allra. Við átt-
um eftir að gera svo margt
skemmtilegt saman vinkonurnar,
en það mun bíða þar til við hitt-
umst á ný.
Þó styttist dagur, daprist ljós
og dimmi meir og meir,
ég þekki ljós, sem logar skært,
það ljós, er aldrei deyr.
(Margrét Jónsd.)
Elsku Andri, Camilla og fjöl-
skylda, ykkur vottum við okkar
dýpstu samúð og vonum að þið
finnið styrk á þessum erfiðu tím-
um.
Þínar vinkonur,
Adda, Ásdís, Elísa, Hrefna
F., Hrefna H. og María.
Ávinningur - ástríða - ánægja
Samvera - sátt - sameining
Trúnaður - traust - tryggð
Það getur hvert okkar sem
þekkti til sambands Birgittu og
Andra fundið þessum orðum eða
öðrum rímorðum ástarinnar stað
í hjónabandi þeirra. Ástvina sem
örlög lífs og dauða hafa nú aðskil-
ið. En ást er aðeins orð uns tvær
manneskjur hafa gefið því merk-
ingu og gert það að leiðarstefi
lífsins. Tvær sálir er speglast í
einkalífi og athöfnum daglegs
lífs. Sú mynd verður okkur sam-
starfsfólki Andra ævinlega föst í
minni. Hvernig þau Birgitta voru
í glöðum hóp ávallt nálæg hvort
öðru. Hvernig þau héldust í hend-
ur, skiptust á glettnum athuga-
semdum, skellihlógu, bentu hvort
öðru á það sem fyrir augu bar eða
tóku þátt í samræðum okkar
hinna.
Birgitta Rós Björgvinsdóttir
kom okkur fyrir augu sem fremur
hlédræg stúlka. Hógvær, en gam-
ansöm á sinn stillta hátt. Fögur
ung kona með sposkan svip og
blikandi spékoppa í augnkrókun-
um. Með sterka og gefandi nær-
veru sem smitaði með mildum
hætti í hjarta hvers manns. Í þau
hjörtu sem nú gráta.
Birgitta Rós var sannarlega
rósin í lífi Andra vinar okkar og
Camillu dóttur þeirra. Það er
hverjum manni til eftirbreytni
sem hefur heyrt Andra tala um
konuna sína. Þar leiddi ástin
hvert orð. Af styrk og æðruleysi
annaðist hann og studdi Birg-
ittu í veikindum hennar, dag
hvern.
Þolgæði og kjarkur er það sem
við minnumst Birgittu fyrir síð-
asta árið. Hvernig hún sem taldi
niður dagana sendi okkur hinum
þau skilaboð að lífið er núna. Eða
eins og hún skrifaði: elskum og
njótum því lífið er dýrmætt.
Okkar hjartfólgni Andri, Ca-
milla, foreldrar, tengdaforeldrar
og ástvinir allir. Við sem fylgjum
Birgittu í dag minnumst hugrekk-
is hennar, glaðværðar og hlýju.
Hugur okkar og bænir eru tileink-
aðar ykkur.
Vélfangsfjölskyldan.
Skarphéðinn K.
Erlingsson.