Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 33

Morgunblaðið - 29.10.2018, Page 33
DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Varastu stóryrtar yfirlýsingar og skuldbindingar sem kunna að koma þér í koll. Ef eitthvað er ekki skemmtilegt skaltu sleppa því. 20. apríl - 20. maí  Naut Einhverra hluta vegna eru allir stað- ráðnir í að koma sjónarmiðum sínum á fram- færi í dag. Styttu þér stundir við lestur, gönguferðir eða bara það sem gleður þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Í dag er rétt að huga að mark- miðum og væntingum. Svo virðist sem allir séu til í að rétta þér hjálparhönd. Gamall vin- ur skýtur upp kollinum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Farðu vel að því fólki sem þér er kært því þú vilt hafa alla góða. Brostu framan í heiminn og taktu hlutunum hæfilega alvar- lega. Mismæli geta dregið dilk á eftir sér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú átt erfitt með að fyrirgefa það sem gert var á þinn hlut. En langrækni fer bara verst með þig. Láttu ekki segja þér það tvisv- ar að fara í frí. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Í dag er notalegt að rækta vinskap og blanda geði við aðra. Með lagni tekst þér að ryðja öllum hindrunum úr vegi. Vandaðu til verka. 23. sept. - 22. okt.  Vog Reyndu að standa á móti öllum löng- unum til þess að eyða peningum í hluti sem þú ekki þarft bráðnauðsynlega á að halda. Það skiptir þig engu þótt þú sért á milli tann- anna á fólki. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Einhver gæti sakað þig um eigin- girni og sjálfselsku í dag. Vertu því ekki smeyk/ur þótt þér sýnist margt snúið við fyrstu sýn í verkefni sem þér var úthlutað. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er mikilvægt að þú haldir áfram að einfalda hlutina í lífi þínu. Nú er rétti tíminn til að sleppa tökunum á öllu því sem hefur haldið aftur af þér sl. ár. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það getur tekið í að þurfa stöðugt að sýna einbeitni gagnvart öðrum. Sýndu umburðarlyndi en haltu þínu striki. Öfund er ekki til í þinni orðabók. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gættu tungu þinnar því aðrir kunna að vera mjög auðsærðir. Þú svífur um á bleiku skýi, það er í lagi í einhvern tíma, en ekki of langan. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hugmyndaauðgi þín er mikil í dag og það skaltu notfæra þér meðan er. Þú stendur á vegamótum, taktu þér þinn tíma til að ákveða framhaldið. Borgarfulltrúi Viðreisnar í Reykja-vík Pawel Bartosek kynnti í síð- ustu að hann ætlaði héðan í frá ekki að svara erindum fjölmiðlamanna strax þegar þau berast heldur gefa sér allt að tvo sólarhringa til að melta málin og svara þá. Einnig að hætta öllu huggulegheitaspjalli við fjöl- miðlamenn og gauka að þeim upplýs- ingum. Því til viðbótar að vera með opinbert bókhald um mætingar sínar á mannamót og fundi með hags- munaaðilum. Með þessu ætlar borg- arfulltrúinn að hafa allt í starfi sínu yfir vafa. x x x Fyrir nokkrum dögum var frá þvígreint að í grunnskólum hafa nú verið settar víðtækar reglur um per- sónuvernd; aðgangi að skólunum er vandlega stýrt og foreldrum gert að gæta þagmælsku um starfið í skóla barna sinna. Allt sem þar fari fram sé trúnaðarmál. En munum nú samt að þegar krakkar koma heim úr skól- anum og mamma og pabbi spyrja hvernig dagurinn hafi verið segja börnin frá því; bæði ljúfu og leiðu. Því er útilokað að grunnskólinn sé eða megi verða vé launhelga. x x x Heilbrigð skynsemi segir okkur aðsumt svo sem í skólastarfi – rétt eins og lífinu sjálfu – á ekki að vera fóður í almennum kjaftagangi, svo sem ef nemendur eiga á brattann að sækja, gengur illa í námi, eiga við veikindi að stríða og svo framvegis. Að vera ekki að blaðra um slíkt telj- ast almennir mannasiðir. x x x Að stjórnmálamaður setji sér form-legar reglur í samskiptum við fjölmiðla og persónuverndarreglur verði ráðandi í skólastarfi er annars hluti af almennt leiðinlegri þróun; það er að formbinda alla mögulega hluti og setja í regluverk. Slíkt getur undir mörgum kringumstæðum átt rétt á sér en við erum illa stödd þegar og ef prótókollur á að gilda um hvunndagsleg samskipti almennings og þeirra sem eiga meira undir sér. Við erum öll jöfn og múrar milli fólks að hverfa en tilhneigingin sem Vík- verji lýsir hér að framan er öll á hinn veginn. vikverji@mbl.is Víkverji Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. (Sálm: 106.1) Fyrir hálfum mánuði rúmumbirti Geir Thorsteinsson „Stökur um ást“ á Boðnarmiði, – einlægar og fallegar: Þú sífellt huga seiðir minn sem ég fyrir töfrum finn. Ætíð brennur koss á kinn kossinn mjúki, ljúfi þinn. Elsku hjartans yndið mitt, ástar ljúfa kona. Enga hef ég áður hitt sem í mér kveikir svona. Þú ert rósin, rósin mín rós í mínu hjarta. Ávallt betur, skýrar skín skæra ástin bjarta. Yndisfalleg rauða rósin er roða slær á blöðin sín kemur til þín, kærleik ber kossa sendir, ástin mín Rósirnar eru farnar að fölna og fella blöðin sín. Allt sem lifir, um síðir mun sölna seinast þú, ástin mín. Á meðan fölur máninn skín merlar endurminning. Um þig eina ástin mín okkar fyrsta kynning. Emil Als býr nú í Félagsbústöð- um við Dalbraut. Hann sendi mér þessa athyglisverðu stöku sem vel má verða okkur til umhugsunar: Má nú kallast léttingi, áður var hann hetja, er þá mælt á málþingi hvar skal manninn setja. Með lausn sinni á gátunni á laug- ardag bað Helgi Seljan fyrir kveðju til Guðmundar gátusmiðs: Gátuvísurnar gleði veita ef gefst við þeim réttast svar. Í Guðmundarhaugi gullsins leita og gullkornin finnast þar. Mér finnst þessar vísur Jónasar Hallgrímssonar alltaf jafn skemmtilegar: Bósi! geltu, Bósi minn! En bíttu ekki hundur! ella dregur einhver þinn illa kjaft í sundur. Hafðu ekki á þér heldra snið höfðingja, sem brosa, en eru svona aftan við æru manns að tosa. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Stökur um ást og gullkorn „MÁ BJÓÐA ÞÉR AÐ KAUPA SÆLGÆTISSTYKKI OG HJÁLPA MÉR AÐ VERÐA LÖGHLÝÐINN Á NÝ?“ „ÞÚ VIRÐIST HAFA ÞÁ KOSTI SEM VIÐ ERUM AÐ LEITA EFTIR Í BÓKHALDARA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... stundum að taka upp brotin og byrja upp á nýtt. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG SEGI PÚKA ÖLL LEYNDARMÁLIN MÍN ÞAÐ MÁ EKKI NEYÐA BANGSA TIL AÐ BERA VITNI GEGN EIGANDA SÍNUM ÞAÐ ER TALIÐ AÐ FULLT TUNGL GETI BREYTT SKAPI MANNS! ER ÞAÐ EKKI ÓTRÚLEGT? MEH. FULL FLASKA GERIR ÞAÐ SAMA!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.