Morgunblaðið - 29.10.2018, Side 34

Morgunblaðið - 29.10.2018, Side 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018 VÖNDUÐ JEPPADEKK Á FRÁBÆRU VERÐI STÆRÐ 315/70R17 49.600,- kr. STÆRÐ 285/70R17 46.900,- kr. ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900 WWW.ARCTICTRUCKS.IS ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR! Þjóðleikhúsið frumsýndi Samþykki eftir Fagmenn Oft eru leikarar duglegir að mæta. F.v Guðrún Jóna Stefáns- dóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Sigurður Þór Óskarsson og Sonja Jónsdóttir. Glatt á hjalla Örn Árnason, Ari Matthíasson, Pálmi Gestsson og Sigurlaug Halldórsdóttir. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Er ekki merkilegt að það gerist enn á 21. öld að til verða nýjar sögur um álfa og huldufólk sem búa í steinum og hólum? Þjóðfræðingurinn Bryn- dís Björgvinsdóttir komst meðal annars að þessu þegar hún rannsak- aði álfabyggðir vegna nýrrar bókar: Krossgötur – álfatrú, álfabyggðir og bannhelgi á Íslandi. „Dæmi um þetta er Ófeigskirkja í Gálgahrauni í Garðabæ sem var færð til vegna vegalagningar út á Álftanes árið 2015. Álfasjáandi kom að ferlinu enda hafði steininn verið kallaður álfakirkja. Eftir samninga- viðræður sættust hinar huldu verur á að Vegagerðin fengi að færa stein- inn og koma honum niður á nýjum stað. Sagt var að flutningarnir hefðu verið gerðir í sátt og samlyndi við álfana sem í hrauninu búa. Þá má einnig nefna Grástein í Grafarholti en fjölmiðlafár varð í kringum hann árið 1971 vegna vegalagningar. Urðu ýmis óhöpp og slys svo að menn vildu síður færa steininn vegna íbúa hans – en þegar málið var kannað kom í ljós að engar álfasögur voru til tengdar þessum steini til þessa dags. Sumir vildu einnig meina að óhöpp sem tengd voru flutningunum hefðu orðið áður en steininn var færður,“ segir Bryndís. „Því má segja að nýir álfasteinar geti orðið til enn þann dag í dag rétt eins og fyrr á tímum og að sama skapi gleymast aðrar álfabyggðir. Ég skoðaði ýmsar heim- ildir um álfabústaði og fann t.d. eina frásögn í bók frá 1963. En þegar ég hringdi á staðinn virtist þessi saga hafa gleymst. Í öðrum tilvikum lifir bannhelgin lengur, eins og kom í ljós þegar ég hringdi á Skriðuklaustur til að grennslast fyrir um álagakjarr sem nefnt var í sömu heimild. Þá fékk ég það svar að bragði að það væri ekkert kjarr lengur heldur myndarleg tré.“ Mannfólkið lagar sig að huldufólkinu Bryndís er þjóðfræðingur og rit- höfundur og hefur unnið að bókinni í fjögur ár í samstarfi við Svölu Ragn- arsdóttur ljósmyndara. Þær hafa ferðast um landið til að kortleggja og ljósmynda svæði þar sem heimar mannfólksins og huldufólksins mæt- ast, s.s. þar sem skipulagi eða hönn- un og staðsetningu húsbygginga hef- ur verið breytt til að raska ekki ró álfasteina og annarra bannhelgra staða. „Fljótlega komumst við að því að þessa staði má finna um allt land og ekki er bara um að ræða álfa- steina heldur líka huldufólkskletta, álagabletti, álagasteina, dverga- steina, fornmannahauga og völvu- leiði,“ útskýrir Bryndís og segir að bókin sé fjarri því tæmandi upptaln- ing á slíkum stöðum. „Við fjöllum um 54 staði í okkar bók en sagt hefur verið að álagablettir hafi verið við hvern sveitabæ hér áður fyrr. Það væri því ævistarf að ætla að taka saman alla þá bannhelgu staði sem hér hafa verið.“ Bara á höfuðborgarsvæðinu má finna allmörg dæmi þar sem hefur þurft að laga byggð mannanna að kröfum álfa og huldufólks. „Stund- um eru áhrif hjátrúarinnar mjög greinileg, þó að fólk pæli kannski ekki í því í dag af hverju tiltekin gata liggur eins og hún gerir, eða ákveðið hús sé staðsett á skjön við önnur hús í hverfinu. Í Ármúlanum er t.d. að finna huldumannastein á miðju bíla- stæði á bak við parketverslun. Sum sé: í miðju bílastæðinu er þetta bann- helga svæði sem fær að vera í órækt enda á mannfólk ekki að koma ná- lægt því,“ segir Bryndís. „Annar álfasteinn er í Merkurgötu í Hafnar- firði og átti að sverfa af honum en það gekk erfiðlega svo að m.a. bor sem notaður var til verksins brotnaði og stendur ennþá pikkfastur í stein- inum. Hann minnir dálítið á sverðið Excalibur svona hálfur upp úr stein- inum.“ Samviska og sjálfbærni Um allan heim má finna sögur um dularfullar verur og anda sem virðast lifa í hliðstæðum heimi og stundum hjálpa mannfólkinu eða hrella það. Í Taílandi má t.d. finna lítið musteri við flest hús, eða borða bundna utan um tré til að marka staðina þar sem andar búa. Í arabalöndum eru það djinn sem hafa sams konar stöðu og Írarnir eru þekktir fyrir uppátækjasama búálfana sína. Bryndís segir hægt að finna ýms- ar skýringar á því að Íslendingar, eins og aðrar þjóðir, búa til sögur um hulduverur. Ein tilgáta er að trú á álfa og huldufólk hafi verið leið fyrir for- feður okkar að líta á eigin gjörðir út frá sjónarhorni annarra: „Hulduverurnar eru iðulega nágrannar mannfólksins, og búa oftast í túnfætinum. Þær geta verndað og hjálpað ef vel er komið fram við þær en hefnt sín grimmilega ef þeim er misboðið. Í þessum verum gat fólk endurspeglað ákvarðanir sínar og framkvæmdir, og kannski gætt sín á að láta þá ekki bara sérhagsmuni sína ráða för eða velja þann kost sem myndi skila þeim skjótfegnum gróða á kostnað annarra.“ Segir Bryndís að trúin á álfa hafi jafnvel þjónað n.k. sjálfbærnihlutverki og knúið fólk til að reyna að sjá hlutina í stærra samhengi, og út frá þörfum samfélags og samferðafólks til lengri jafnt sem skemmri tíma. „Við sjáum það stundum í þeim refsiaðgerðum sem verur eins og álfar beita, að þeir hefna sín ekki endilega á þeim sem braut gegn þeim heldur á börnum þeirra eða samferðafólki: er það þá næsta kynslóð sem geldur fyrir tillits- leysi eða athæfi þeirra sem eldri eru.“ Álfatrúin kann líka að hafa þjónað Nágrannar okkar huldufólkið  Víða hefur byggð mannanna verið breytt til að raska ekki ró álfasteina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.