Morgunblaðið - 29.10.2018, Qupperneq 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2018
»SNIP SNAP SNUBBUR, mynd-
listarsýning Guðmundar Thorodd-
sen, var opnuð í aðalsal Hafnarborgar
í fyrradag. Guðmundur sýnir þar mál-
verk, teikningar og skúlptúra. Á und-
anförnum árum hefur hann fjallað um
karlmennsku og stöðu feðraveldisins í
verkum sínum með gagnrýnum og
gamansömum hætti. Nú kveður við
annan tón en karlarnir sem einkennt
hafa verk hans lauma sér þó enn inn í
verkin sem eru mun óhlutbundnari en
fyrri verk Guðmundar.
Sýning á verkum Guðmundar Thoroddsen var opnuð í Hafnarborg um helgina
Kát Ágústa Kristófersdóttir og Ólafur Kvaran brostu breitt.
Mætt Bragi Bergþórsson og Rakel Björt Jónsdóttir létu sjá sig. Bros Sigríður Björk Jónsdóttir og Rósa Guðbjartsdóttir.
Geislandi Elín Fanney
Leósdóttir og Steinunn
Sveinsdóttir voru sann-
arlega ánægðar með
daginn og sýninguna.
Ákveðið hefur verið að Sænska aka-
demían (SA) muni ekki taka inn
fleiri nýja meðlimi það sem eftir lifir
árs. Þetta segir Anders Olsson,
starfandi ritari SA, í samtali við
sænsku fréttaveituna TT.
„Það er okkar mat að við séum
komin eins langt og þörf er á þetta
haustið. Það er tilfinning okkar að
við höfum náð ákveðnum stöðug-
leika í akademíunni og að við þurfum
því ekki að flýta okkur með fram-
haldið. Það mikilvægasta er að við
vöndum okkur eins mikið og mögu-
legt er og að við komumst að
almennilegu samkomulagi um það
hvernig standa skuli að valinu inn í
akademíuna,“ segir Olsson. Sam-
kvæmt frétt SVT hafa meðlimir SA
á síðustu mánuðum unnið markvisst
að því að fylla sætin sem losnuðu
þegar Sara Stridsberg, Klas Öster-
gren, Lotta Lotass og Kerstin Ek-
man hættu formlega.
Fyrr í þessum mánuði var til-
kynnt að samkomulag hefði náðst
um að bjóða Jilu Mossaed, Eric M.
Runesson og Mats Malm að taka
sæti í SA, sem þau þáðu öll. „Okkur
hefur tekist vel til í valinu á þessum
þremur og við ættum ekki að flýta
okkur. Við höldum ferlinu áfram
snemma í vor – það er að minnsta
kosti niðurstaðan núna,“ segir Ols-
son. Spurður hvort biðstaðan nú í
vali á nýjum meðlimum sé til komin
vegna þess að mál Katarinu Frost-
enson, eiginkonu Jean-Claude
Arnault sem nýverið hlaut tveggja
ára fangelsisdóm fyrir nauðgun, sé
enn óútkljáð vísar Olsson því á bug.
„Við munum halda áfram að vinna
með mál Katarinu Frostenson,“ seg-
ir Olsson. Eins og nýverið var greint
frá hefur SA skriflega hvatt Frost-
enson til að draga sig tafarlaust út
úr öllu starfi SA til frambúðar, að
öðrum kosti verði hafin sjálfstæð
rannsókn á ásökunum þess efnis að
Frostenson hafi rofið trúnað við SA.
silja@mbl.is
Ekki fleiri nýir með-
limir valdir inn í ár
AFP
Starfandi ritari Anders Olsson.
Áfram unnið með mál Frostenson
ICQC 2018-20
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
föstudaginn 30. nóvember
Við komum víða við í ár, heimsækjum
fjölda fólks og verðummeð fullt af
spennandi efni fyrir alla aldurshópa.
PÖNTUN AUGLÝSINGA: til 26. nóvember.
Morgunblaðsins kemur út
Jólablað
Litrík Þau Natalía Jóhannsdóttir og Auðunn Kvarann nutu sín vel.
Morgunblaðið/Eggert
Flottir Ármann Reynisson og lista-
maðurinn Guðmundur Thoroddsen.