Morgunblaðið - 29.10.2018, Side 40
Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræð-
ingur segir frá þeim ævintýrum
sem hægt er að kalla „stjúpusögur“
á Borgarbókasafninu í Spönginni í
dag kl. 17.15. Í ævintýrum vilja
stjúpur oft valda stjúpbörnum
sínum skaða á einhvern hátt.
Rósa kynnir einnig til leiks sögur
af góðum stjúpum, sem þrátt fyrir
að vera jafnvel af skessukyni hjálpa
stjúpbörnum sínum í vanda við að
sigrast á ýmsum erfiðleikum.
Vondar stjúpur, góðar
stjúpur og skessur
MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 302. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Íslenska landsliðið í handknattleik
karla lék við hvern sinn fingur þegar
það mætti Tyrkjum í undankeppni
EM í handknattleik í Ankara í gær.
Liðið vann 11 marka sigur, 33:22, og
situr eitt í efsta sæti þriðja riðils
undankeppninnar að loknum tveim-
ur umferðum. Framúrskarandi varn-
arleikur í síðari hálfleik lagði grunn
að sigrinum. »2
Stórsigur í Ankara
og efsta sæti í höfn
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Það er mjög sérstakt að fá þær
fréttir allt í einu að yfirmanninum
þínum hafi verið stungið í stein-
inn. Þetta hefur fyrst og fremst
verið bæði erfitt og skrítið fyrir
leikmenn liðsins en félagið tók þá
ákvörðun um helgina að reka
Maes. Þegar hlutirnir æxlast þann-
ig er það oftast þannig að
aðstoðarþjálfarinn tekur
við,“ segir Arnar Þór
Viðarsson sem var í
gærmorgun ráðinn þjálf-
ari belgíska knatt-
spyrnu-
liðsins
Loke-
ren. »1
Fyrst og fremst erfitt
og skrítið fyrir alla
ÍSLAND
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Breiðholtið er fjölmenningarsam-
félag með öllum þeim félagsauði
sem því fylgir. Mér finnst hverfið
hafa þróast vel sem og menning
þess. Mér finnst mikil gæfa að börn-
in mín alist upp við að heyra og sjá
ólík tungumál. Það er dýrmætt
veganesti fyrir lífið,“ segir Sara
Björg Sigurðardóttir Breiðholtsbúi.
22 tungumál í skólanum
Á laugardag var í Breiðholtsskóla
haldin í þriðja sinn fjölmenningar-
hátíð Bakka- og Stekkjahverfis, en í
þeirri byggð er fjöldi íbúa af erlend-
um uppruna. Á hátíðinni gafst m.a.
gott tækifæri til tala saman, smakka
á fjölbreyttum mat, upplifa dans af
ýmsum toga, syngja í karókí og
fleira. Heiðursgestur var forseti Ís-
lands, Guðni Th. Jóhannesson.
Í Breiðholtsskóla eru töluð 22
tungumál auk íslensku og um þriðj-
ungur barna er með annað móður-
mál en íslensku. Sú staðreynd lýsir
vel að í Neðra-Breiðholti er al-
þjóðlegt samfélag sem er í sífelldri
þróun. „Ég hitti daglega fólk með
annað móðurmál en íslensku; í skól-
anum, íþrótta- og tómstundastarfi
og víðar. Það breytist margt þegar
maður eignast börn. Með börnum
fylgja vinir,“ segir Sara og heldur
áfram: „Flestir foreldrar vilja
þekkja til foreldra vina barna sinna
og kynnast þeim. Í Breiðholtsskóla
hefur starf foreldrafélagsins verið
mjög öflugt. Börnin tengja okkur
saman og það er samfélagsleg
ábyrgð okkar foreldra að reyna gera
allt sem við getum gert til að láta
öllum börnum líða vel, þannig að
þau finni sig í skóla og frístunda-
starfi.“
Fullt af áskorunum
Að þessu sinni var þema hátíðar-
innar heilsa í sinni víðustu mynd
sem sé líkamleg, andleg og félags-
leg. Upphafið er umfjöllun um
aukna vanlíðan og kvíða meðal
barna og unglinga sem og vonda
þróun í vímuefnaneyslu. „Forvarnar-
starf fyrir heilsueflingu þarf að
byrja sem fyrst. Fyrsta og annað
skólastigið er kjörinn vettvangur til
þess. Lífið er fullt af áskorunum. Þá
er gott að vita að margvíslegar leiðir
eru til að leysa úr vanlíðan aðrar en
vímuefni. Samtalið þarf að eiga sér
stað. Börn eru opin og úrræðagóð.
Það þarf að skapa þeim svigrúm til
að finna sér þá leið sem hentar
hverju og einu, hvort sem það eru
íþróttir, dans, söngur, skátastarf eða
listsköpun,“ segir Sara og heldur
áfram:
„Í undirbúningi okkar fyrir hátíð-
ina í ár kom í ljós að við erum alls
ekki svo ólík þrátt fyrir ólíkan upp-
runa. Það skiptir ekki máli hvort
uppruni okkar er úr Borgarfirði eða
frá Srí Lanka. Öll reynum við að
finna leiðir til að láta okkur líða
vel.“
Eykur víðsýni
Sara var í forystuhlutverki við
undirbúning hátíðarinnar sem marg-
ir komu að. „Það er dýrmætt vega-
nesti fyrir börnin okkar, sem alast
upp í alþjóða- og upplýsinga-
samfélagi 21. aldar, að fá að vaxa úr
grasi með börnum af ólíkum upp-
runa, heyra önnur tungumál og sjá
framandi stafróf. Það eykur víðsýni,
fyllir þau þekkingu og síðast en ekki
síst fær þau til að bera virðingu fyr-
ir uppruna félaga sinna og vina,“
segir Sara að síðustu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjölmenning Dýrmætt veganesti fyrir börnin að alast upp í alþjóða- og upplýsingasamfélagi, segir Sara Björg Sig-
mundsdóttir. Í baksýn sjást veggspjöld og myndir nemenda í Breiðholtsskóla þar sem hátíðin var haldin.
Víðsýni og vinátta
Alþjóðlegt Breiðholtshverfi Tugir tungumála í skól-
anum Börnunum fylgja vinir Látum okkur líða vel