Morgunblaðið - 04.10.2018, Qupperneq 1
FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta
HLEYPUR AF ÞVÍ AÐ HÚNGETUR ÞAÐÓTRÚLEGVIÐBRÖGÐ
hebys býður upp sérstakt Porche skrifborð síðar í október 4
Heiðveig María Einarsdóttir vill með
formannsframboði sínu efla samstöðu
meðal verkalýðsfélaga sjómanna. 6
VIÐSKIPTA
Árlega les Rúna Hauksdóttir Hvannberg bókina um
Bangsímon, til að tengja við barnið í sér og minna
sig á að líta á heiminn út frá vináttu. 4
ot
Unnið í samvinnu við
S
Takast á um Haffjarðará
Þegar einkahlutafélagið Dreisam
ehf. hafði gengið frá undirritun
samnings um kaup á 50% hlut í hinni
rómuðu laxveiðiá, Haffjarðará, af fé-
laginu Akurholti ehf., ákvað eigandi
félagsins Geiteyrar að stíga inn í
kaupin og draga á forkaupsrétt-
arákvæði sem skrifað hafði verið
undir í hluthafasamkomulagi milli
aðila. Heimildir ViðskiptaMoggans
herma að Dreisam ehf. hafi farið
fram á lögbann á því að Geiteyri gæti
nýtt sér forkaupsréttinn en hluthafa-
samkomulagið mun ekki hafa verið
meðal þeirra gagna sem lágu til
grundvallar þegar gengið var frá
samningi milli Dreisam og Akur-
holts. Heimildir ViðskiptaMoggans
herma að eigandi Akurholtshafi
ákveðið að draga til baka ákvörðun
sína um söluna á eignarhlut sínum í
ánni í kjölfar þess að eigandi Gei-
teyrar gerði sig líklegan til þess að
nýta fyrrnefndan forkaupsrétt.
Þar sem fullgild skjöl, er vörðuðu
fyrrnefnt hluthafasamkomulag, voru
lögð fyrir embætti sýslumanns var
lögbannskröfunni hins vegar vísað
frá.
Félagið Dreisam ehf. er í 100%
eigu Jónasar Hagan Guðmunds-
sonar. Hafði félagið gengið frá kaup-
um á fyrrnefndum hlut í ánni af
Akurholti hf. sem er í eigu Einars
Sigfússonar, sem lengi rak versl-
unina Sportkringluna. Einar eign-
aðist hlutinn í ánni í árslok 1996.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur
ViðskiptaMogginn ekki fengið stað-
fest hvert kaupverð hlutar Akurholts
í Haffjarðará átti að vera. Eignar-
hlutdeild félagsins í ánni tengist
helmingseign í jarðeignunum við
Haffjarðará og Oddastaðavatn á
Snæfellsnesi annars vegar og hins
vegar helmingi stangveiðiréttar í
ánni og vatninu.
Viðræður enn í gangi
Þrátt fyrir þá staðreynd að Geit-
eyri ehf. hafi með inngripi sínu komið
viðskiptum Akurholts ehf. við Drei-
sam ehf. í Haffjarðará í uppnám
munu fjárfestar enn leita leiða til
þess að tryggja sér eignarhald á
ánni. Þannig mun Dreisam ehf. enn
stefna að því að leggja fram tilboð í
ánna og nærliggjandi jarðir. Heim-
ildir ViðskiptaMoggans herma að
fleiri fjárfestar renni hýru auga til
árinnar.
Haffjarðará hefur lengi verið með
fengsælustu laxveiðiám landsins og
um langt árabil var hún eina á lands-
ins þar sem aðeins var leyfilegt að
veiða á flugu. Samkvæmt tölum sem
birtar voru í Morgunblaðinu 22. sept-
ember síðastliðinn höfðu 1.545 laxar
komið á land í Haffjarðará á þeim
tímapunkti. Var hún þar með í sjötta
sæti yfir aflahæstu ár þessa árs.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Allt stefnir í að félagið
Geiteyri ehf. eignist allan
veiðirétt í Haffjarðará en
félagið hyggst nýta for-
kaupsrétt að helmingshlut
Akurholts ehf. í ánni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Haffjarðará er ein þekktasta laxveiðiá landsins og við hana standa veiðihús
sem tengjast meðal annars sögu Thors-ættarinnar órjúfanlegum böndum.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
4.4.‘18
4.4.‘18
3.10.‘18
3.10.‘18
1.755,11
1.623,02
135
130
125
120
115
121,35
131,15
Októbermánuður árið 2008 var ör-
lagaríkur í sögu íslensku þjóðar-
innar. Gengi krónunnar hrundi,
bankarnir fóru í þrot, einn af öðrum,
og íslenskt fjármálakerfi liðaðist í
sundur. Atburðarás fór af stað sem
enginn vissi hvernig myndi enda.
ViðskiptaMogginn rekur hina ör-
lagaríku atburði í október í miðopnu
blaðsins í dag, sem hófust 29. sept-
ember þegar íslenska ríkið yfirtók
75% hlut í Glitni banka til að forða
honum frá gjaldþroti. Í kjölfarið
fylgdu fleiri yfirtökur og mál sem
þróuðust út í milliríkjadeilur. Við
tóku miklir óvissutímar hjá þjóðinni
sem beið á milli vonar og ótta eftir
því sem koma skyldi. Lífskjör al-
mennings áttu eftir að versna til
muna, skuldastaða heimilanna
stökkbreyttist og gjaldþrot blasti við
einstaklingum sem margir brugðu á
það ráð að freista gæf-
unnar erlendis.
Örlagaríkir dagar í október 2008
Morgunblaðið/Golli
Fundað var í Stjórnarráðinu um
miðjar nætur haustið 2008.
ViðskiptaMogginn stiklar á
stóru í atburðarásinni í
október 2008 í tilefni þess
að 10 ár eru liðin frá hruni.
8
USMCA-samkomulagið á eftir
að hvetja Bandaríkjaforseta
til að halda uppteknum hætti í
samskiptum við
önnur lönd.
Trump komst upp
með fautaskapinn
10
Eftirlitsstofnanir munu vænt-
anlega hella sér yfir bankann
og kannski verður Danske
sektaður um allt að
einn milljarð evra.
Lex: Kaldir haust-
mánuðir hjá Danske
11