Morgunblaðið - 04.10.2018, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018FRÉTTIR
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
ARION
-5,63%
82,1
ORIGO
+4,39%
21,4
S&P 500 NASDAQ
-0,05%
8.042,409
+0,77%
2.936,44
+0,00%
7.510,28
FTSE 100 NIKKEI 225
4.4.‘18 4.4.‘183.10.‘18 3-10.‘18
1.800
802.400
1.993,53
2.175,95
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
85,35
-0,04%
24.110,96
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
67,64
60
Samkvæmt nýrri rannsókn sem
Páll Melsted Ríkharðsson, prófess-
or og deildarforseti viðskiptadeild-
ar Háskólans í Reykjavík vann
með Carsten
Rohde og Leif
Christensen hjá
Copenhagen
Business School,
þá eru íslensku
bankarnir nú
mun betur búnir
undir annað
bankahrun af
þeirri stærðar-
gráðu sem varð hér á landi árið
2008. „Rannsókn okkar tók meira
en eitt ár og fór fram með sam-
tölum við tugi bankamanna og
bankastjórnenda í þremur íslensk-
um og þremur dönskum bönkum,“
segir Páll í samtali við Morgun-
blaðið.
Unnu bæði fyrir og eftir hrun
Viðmælendur í rannsókninni
áttu það sameiginlegt að sögn
Páls, að hafa unnið í bankakerfinu
bæði fyrir og eftir hrun.
Hann segir að höfundar hafi
reynt að átta sig á því hvað hefði
breyst í stjórnarháttum bankanna
frá hruni. Páll segir að rannsóknin
hafi leitt í ljós að bankarnir, eink-
um þeir íslensku, hafi breyst mik-
ið, og þeir séu í dag miklu sterkari
stofnanir en þeir voru fyrir hrun.
Páll segir að stjórn- og eftirlits-
kerfi bankanna fyrir hrun hafi ver-
ið árangursdrifið með öflugum
umbunar- og hvatningarkerfum,
og þess hafi séð stað í öllum mæli-
kvörðum og menningu. Allt miðaði
að því að skapa sem mesta sölu og
ná sem mestum árangri í að auka
umsvif í fjárfestingum og öðru.
„Eftir hrun hinsvegar hefur starf-
semin breyst í að vera meira
áhættustýrð. Til dæmis eru
áhættudeildir íslensku bankanna
með um 40 starfsmenn, á meðan
það eru enn um 5 – 6 í dönsku
bönkunum. Áhættustýringin er því
margfalt meiri hér en þar.“
Þá segir Páll að aðhald hafi stór-
aukist í lögum og reglum. Fjár-
málaeftirlitið sé sterkara og með
meira valdsvið en það hafði. Aukin
áhersla sé á innri endurskoðun og
reglusetningu. Ennfremur segir
hann að stjórnunarinnviðirnir séu
sterkari og betur búnir undir
hvers konar áföll. „Fyrir hrun
voru gildi bankanna gjarnan með
vísun í hraða og áhættusækni, en
eftir hrun hefur áherslan verið
meira á forsjálni, sem segir sína
sögu.“
Mælikvarðarnir breyttir
Páll segir að það kerfi bónus-
greiðslna sem átti þátt í að kynda
undir fjármálahrunið, hafi líka ver-
ið afnumið. „Það er því erfiðara að
koma svona stemmningu á aftur.“
Hann bætir við að mælikvarðar-
nir hafi breyst sömuleiðis. Áður
hafi mikið verið mælt í sölu, vexti
og prósentuaukningu, en í dag séu
mælikvarðarnir meira áhætta, lög,
reglur og siðagildi.
Páll segir að niðurstöður rann-
sóknarinnar hafi verið birtar í er-
lendum vísindaritum, auk þess sem
bankarnir hafi fengið skýrslur.
„Svo notum við þetta í kennslu,
bæði hér heima og í Danmörku.“
Bankarnir betur búnir
undir annað hrun
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Áhættudeildir íslenskra
banka eru orðnar marg-
faldar að stærð miðað við
sambærilega banka í Dan-
mörku, samkvæmt nýrri
rannsókn íslenskra og
danskra prófessora.
Bornir voru saman þrír íslenskir bankar og þrír danskir bankar af sömu
stærð, en miðað var við eignasafn og starfsmannafjölda við val á bönkum.
PENINGAMÁL
Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands hefur ákveðið að halda stýri-
vöxtum óbreyttum og verða þeir því
áfram 4,25%. „Það er að hægja á í
hagkerfinu. En spurningin er um
hraðann,“ sagði Rannveig Sigurð-
ardóttir, aðstoðarseðlabankastjóri á
kynningarfundinum í gær. Í yfirlýs-
ingu peningastefnunefndar kemur
fram að bráðabirgðatölur þjóðhags-
reikninga gefi til kynna að hag-
vöxtur á síðasta ári og fyrri hluta
þessa árs hafi verið meiri en gert var
ráð fyrir. Því gæti spennan í þjóðar-
búskapnum verið meiri en spáð var.
Að mati nefndarinnar benda aftur á
móti bæði hátíðnivísbendingar á
borð við verðbólguvæntingar fyr-
irtækja og kortaveltutölur, og kann-
anir, til þess að mögulega dragi
hraðar úr vexti eftirspurnar en áður
var talið. Greiningardeild Arion
banka telur líkt og peninga-
stefnunefnd að þessar vísbendingar
trompi tölur um liðinn hagvöxt.
Burtséð frá 7,2% hagvexti á öðrum
ársfjórðungi sé hagkerfið því að
kólna. Haukatónn nefndarinnar um
að hún hafi „bæði vilja og tæki“ til
þess að halda verðbólgu við mark-
mið var ítrekaður.
peturhreins@mbl.is
Óbreyttir vextir en það
hægir á hagkerfinu
Morgunblaðið/Ómar
Peningastefnunefnd Seðlabankans
heldur stýrivöxtum óbreyttum.
FLUGREKSTUR
„Við teljum mjög líklegt miðað
við EBITDA-hagnaðinn sem við
erum að horfa á að kvaðirnar
muni falla,“ segir Bogi Nils Boga-
son, starfandi forstjóri Icelandair
Group, en samstæðan sendi frá
sér tilkynningu í gær þess efnis
hún hygðist fara í viðræður við
skuldabréfaeigendur sem eiga
óveðtryggð skuldabréf að nafn-
virði 190 milljónir bandaríkjadala.
Morgunblaðið greindi frá því 29.
ágúst síðastliðinn að skilmálar
sem í gildi væru vegna skulda-
bréfaútgáfu félagsins kynnu að
vera í uppnámi vegna versnandi
horfa í rekstri. Skilmálarnir kveða
á um að vaxtaberandi skuldir Ice-
landair megi á engu reiknings-
tímabili fara yfir hlutfallið 3,5.
Neðri mörk EBITDA-spár Ice-
landair eru 80 milljónir dala og
það virðist vera líklegur rekstrar-
hagnaður fyrir árið. Í tilkynningu
kemur fram að félagið meti þá
möguleika sem eru í stöðunni. Þeir
eru m.a. að óska eftir tímabund-
inni undanþágu frá hinum fjár-
hagslegu kvöðum, breytingar á
skilmálum skuldabréfanna eða
uppgreiðslu þeirra að hluta til eða
öllu leyti. Allt er opið í þeim efn-
um að sögn Boga og hefur félagið
mikinn sveigjanleika. „Staðan er
mjög sterk. Þetta er verkefni sem
við klárum auðveldlega og hefur
engin áhrif á önnur plön.“ pet-
urhreins@mbl.is
Brostnir skilmálar hafa
engin áhrif á önnur plön
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
TÖLVULEIKIR
Vefsíðufyrirtækið Dress Up
Games á Ísafirði sem er í eigu
eina starfsmanns fyrirtækisins og
stofnanda, Ingu
Maríu Guð-
mundsdóttur,
hagnaðist um
tæpar tíu millj-
ónir króna á síð-
asta ári. Það er
meiri hagnaður
en árið á und-
an, þegar fé-
lagið hagnaðist
um rúmar fimm milljónir.
Eins og fram kemur í ársreikn-
ingi félagsins munar mest um hag-
stæðan gengismun upp á 600 þús-
und í fyrra, en gengismunurinn
var neikvæður um átta milljónir
árið 2016. Hagnaður félagsins fyr-
ir fjármunatekjur og fjármagns-
gjöld var þannig 6,5 milljónir á
árinu samanborið við 13,5 millj-
ónir árið á undan.
Tekjur félagsins drógust mikið
saman á árinu. Þær voru tæpar 27
milljónir króna, en til saman-
burðar voru þær tæpar 38 millj-
ónir króna árið á undan.
Eigið fé félagsins nam í árslok
2017 um 139 milljónum króna og
eignir námu 148 milljónum og
lækkuðu um rúmar 26 milljónir
milli ára. Eiginfjárhlutfall er 94%.
Tekjur koma af auglýsingum
Dress Up Games var stofnað ár-
ið 1998 og hefur frá upphafi boðið
upp á samsafn af dúkkulísu-
leikjum sem hægt er spila ókeypis
á vefnum. Tekjur vefjarins koma
af auglýsingum, en aðsókn hefur
frá upphafi verið mjög góð, þó hún
hafi tekið að dala á síðustu árum,
eins og fram kom í samtali Morg-
unblaðsins við Ingu í byrjun þessa
árs. Ástæðan er að hennar sögn
að mestu sú að yngri krakkar eru
mikið til farnir að nota spjaldtölv-
ur og síma. „Þau tæki spila ekki
flash-leiki, en það leikjaformat
hefur verið algengast meðal vef-
leikja sem eru spilaðir í netvöfr-
um.
Ég byrjaði árið 2016 að fram-
leiða html5-leiki sem er hægt að
spila á símum og spjaldtölvum, en
það hefur verið erfitt að fá not-
endur til að nota vafra til að spila
leiki í símatækjum, snjallforritin
virðast vera ráðandi,“ sagði Inga
María í samtali við Morgunblaðið í
byrjun ársins. tobj@mbl.is
Dress Up Games hagnast
um tíu milljónir króna
Inga María
Guðmundsdóttir
Páll
Melsted