Morgunblaðið - 04.10.2018, Page 6

Morgunblaðið - 04.10.2018, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018SJÁVARÚTVEGUR Er blaðamaður náði tali af Heiðveigu var hún á leið um borð í Engey, tog- ara HB Granda. Hún segist lengi hafa fylgst með málum sjómanna af hliðarlínunni, fyrst sem sjómanns- dóttir á Vestfjörðum og á Norður- landi, en síðan meir er hún var á sjó í kringum aldamótin, á Flæmska hatt- inum. Þá tók við nokkurra ára dvöl í landi. „Við erum sex manna fjölskylda og allir hafa farið út á sjó nema litla syst- ir mín, þannig segja má að þetta sé í blóðinu. Og svo núna, þegar börnin eru orðin eldri og allt orðið sveigjan- legra, þá sótti ég aftur um að komast á skip, fékk starfið og fór í kjölfarið að fylgjast meira með gangi mála, enda auðveldara þegar maður á tíð samskipti og miklar samræður við fé- laga manns í sjómannastéttinni. Ég fylgdist enda mjög vel með síðustu samningaviðræðum, verkfallinu og öllu sem því fylgdi,“ segir Heiðveig. Þungavigtarlið hinum megin „En þegar ég var að fylgjast með verkfallinu vakti það um leið athygli mína, og sömuleiðis þeirra sem í kringum mig starfa, hversu illa undir- búin sjómannafylkingin var fyrir kjaraviðræðurnar. Ég tek nú ekki svo djúpt í árinni að fullyrða að það hefði ekki þurft að verða verkfall, en ég hugsa að það hefði verið hægt að und- irbúa þetta ferli mun betur. Það skildi svo mikið á milli hvað varðar fagleg vinnubrögð beggja samningsaðila,“ bætir hún við og útskýrir nánar: „Það hefur verið þannig í gegnum tíðina að útgerðirnar eru með pen- ingana og völdin, og þar af leiðandi með algjört þungavigtarlið í öllu sem skiptir máli í kjaraviðræðum; hag- fræði, lögfræði og samningatækni. Það er líka mjög skiljanlegt af þeirra hálfu, að nálgast viðræðurnar með þessum hætti. En á sama tíma finnst mér að þetta hafi skort okkar megin borðsins, í sjómannafélögunum.“ Heiðveig tekur fram að ekki þurfi þó að líta á viðsemjendur sjómanna sem einhvers konar ógnarafl. „Þetta eru bara viðsemjendur okkar og við þurfum að mæta þeim á jafnrétt- isgrundvelli. Það er kominn tími til þess.“ Hún segir að efla þurfi samstöðu félaganna um þessi mál áður en geng- ið sé að samningaborðinu, og að sam- tal þurfi að eiga sér stað á milli for- ystu sjómannafélaga annars vegar og sjómanna hins vegar, til að forystan sé betur upplýst um það sem almenn- um sjómönnum finnst að betur megi fara. Taki loturnar á heimavelli „Forystan hefur verið veik. Það sést best á því hvernig samstaðan hefur sundrast. Og þá stöndum við veikar gagnvart samningsaðilunum. Þá finnst mér núna kominn tími til að við tökum þessar samningalotur á heimavellinum okkar, eða á hlut- lausum vettvangi, en ekki á heima- vellinum þeirra.“ Hún víkur þá talinu að eftirlits- frumvarpinu svokallaða, sem verið hefur í bígerð í atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytinu og varðar auk- ið eftirlit með þeim sem veiða og vinna fisk. „Formaður Sjómanna- sambandsins kom fram í fjölmiðlum og sagði að þetta væri fínt og flott frumvarp. Þvert á móti. Þetta frum- varp varðar störf okkar allra og það eru mjög skiptar skoðanir um þetta. En þegar rýnt er í umsagnir og lög- skýringargögn með frumvarpinu þá er ekki að finna umsögn frá einu ein- asta sjómannafélagi. Hvorki hósti né stuna. Hver var málsvari okkar sjó- manna við gerð þessa frumvarps? Enginn, nema mögulega SFS, af því við deilum þarna líklega sömu áhyggjum.“ Fengið virkilega góð viðbrögð Heiðveig tekur fram að hennar framboð snúist ekki um að ná einhvers konar völdum eða yfirtöku, „heldur til að fá vettvang til að koma okkar mál- efnum á framfæri, bæði gagnvart stjórnvöldum og viðsemjendum.“ Heiðveig tilkynnti framboð sitt á þriðjudag og segist hafa fengið virki- lega góð viðbrögð frá sjómönnum. „Viðbrögðin hafa verið ótrúleg og það eru margir sem eru að hvetja mig áfram og spyrja hvar þeir geti skrifað undir meðmælalista. Ég finn því fyrir miklum stuðningi. Stjórnendur í öðr- um félögum hafa svo haft samband við mig til að ræða ýmis mál á fagleg- um nótum.“ Spurð hvenær kosningar verði um forystu félagsins segist hún búast við að þær verði frá nóvembermánuði og fram í janúar. Vill bæta hag sjómanna „Kosningin er þó ekki rafræn, heldur fer hún fram á skrifstofu fé- lagsins. Það er eitt af því sem ég vil lagfæra, og um leið taka félagið nokk- ur skref fram á við og inn í árið 2018. Störf félagsmanna eru einfaldlega þess eðlis að við erum mikið fjarver- andi og það er erfitt að ná okkur öll- um saman. Aðalfundur er til dæmis alla jafna á milli jóla og nýárs, því þá eru mestar líkur á að sem flestir kom- ist. En eins og í mínu tilfelli, þá fór ég út á sjó annan í jólum í fyrra og kom til baka á gamlársdag, þannig að ég náði ekki á fundinn,“ segir Heiðveig. „En mest vil ég fá að starfa með þeim sem vilja vinna að því að bæta hag sjómanna. Mér finnst vera viss skortur á því. Þetta þarf ekki að vera neins konar stríð – það þarf bara að vinna þessa vinnu.“ Vill upplýsta samstöðu sjómanna Skúli Halldórsson sh@mbl.is Efla þarf samstöðu á með- al verkalýðsfélaga sjó- manna og forysta þeirra þarf að vera betur upplýst um það sem hinum al- menna sjómanni finnst að betur megi fara. Þetta segir Heiðveig María Einars- dóttir, sem ákveðið hefur að bjóða sig fram í emb- ætti formanns Sjómanna- félags Íslands. Morgunblaðið/Eggert Heiðveig var á leið um borð í Engey er blaðamaður náði tali af henni. Hún stefnir á framboð til formanns í vetur. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Afurðaverð á markaði 3. okt. 2018, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 368,70 Þorskur, slægður 317,71 Ýsa, óslægð 210,06 Ýsa, slægð 246,77 Ufsi, óslægður 93,55 Ufsi, slægður 120,75 Djúpkarfi 124,00 Gullkarfi 202,74 Blálanga, óslægð 224,68 Blálanga, slægð 146,07 Langa, óslægð 209,13 Langa, slægð 178,19 Keila, óslægð 92,35 Keila, slægð 112,88 Steinbítur, óslægður 307,53 Steinbítur, slægður 418,75 Skötuselur, slægður 474,12 Grálúða, slægð 382,11 Skarkoli, slægður 321,43 Þykkvalúra, slægð 457,79 Langlúra, slægð 150,00 Sandkoli, óslægður 48,72 Bleikja, flök 1.571,00 Gellur 912,64 Hlýri, óslægður 260,41 Hlýri, slægður 298,08 Lúða, óslægð 308,00 Lúða, slægð 378,47 Lýsa, óslægð 75,29 Lýsa, slægð 67,95 Skata, slægð 165,46 Tindaskata, óslægð 17,34 Undirmálsýsa, óslægð 122,18 Undirmálsþorskur, óslægður 154,94 Undirmálsþorskur, slægður 162,06

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.