Morgunblaðið - 04.10.2018, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2018SJÁVARÚTVEGUR
Er blaðamaður náði tali af Heiðveigu
var hún á leið um borð í Engey, tog-
ara HB Granda. Hún segist lengi
hafa fylgst með málum sjómanna af
hliðarlínunni, fyrst sem sjómanns-
dóttir á Vestfjörðum og á Norður-
landi, en síðan meir er hún var á sjó í
kringum aldamótin, á Flæmska hatt-
inum. Þá tók við nokkurra ára dvöl í
landi.
„Við erum sex manna fjölskylda og
allir hafa farið út á sjó nema litla syst-
ir mín, þannig segja má að þetta sé í
blóðinu. Og svo núna, þegar börnin
eru orðin eldri og allt orðið sveigjan-
legra, þá sótti ég aftur um að komast
á skip, fékk starfið og fór í kjölfarið
að fylgjast meira með gangi mála,
enda auðveldara þegar maður á tíð
samskipti og miklar samræður við fé-
laga manns í sjómannastéttinni. Ég
fylgdist enda mjög vel með síðustu
samningaviðræðum, verkfallinu og
öllu sem því fylgdi,“ segir Heiðveig.
Þungavigtarlið hinum megin
„En þegar ég var að fylgjast með
verkfallinu vakti það um leið athygli
mína, og sömuleiðis þeirra sem í
kringum mig starfa, hversu illa undir-
búin sjómannafylkingin var fyrir
kjaraviðræðurnar. Ég tek nú ekki svo
djúpt í árinni að fullyrða að það hefði
ekki þurft að verða verkfall, en ég
hugsa að það hefði verið hægt að und-
irbúa þetta ferli mun betur. Það skildi
svo mikið á milli hvað varðar fagleg
vinnubrögð beggja samningsaðila,“
bætir hún við og útskýrir nánar:
„Það hefur verið þannig í gegnum
tíðina að útgerðirnar eru með pen-
ingana og völdin, og þar af leiðandi
með algjört þungavigtarlið í öllu sem
skiptir máli í kjaraviðræðum; hag-
fræði, lögfræði og samningatækni.
Það er líka mjög skiljanlegt af þeirra
hálfu, að nálgast viðræðurnar með
þessum hætti. En á sama tíma finnst
mér að þetta hafi skort okkar megin
borðsins, í sjómannafélögunum.“
Heiðveig tekur fram að ekki þurfi
þó að líta á viðsemjendur sjómanna
sem einhvers konar ógnarafl. „Þetta
eru bara viðsemjendur okkar og við
þurfum að mæta þeim á jafnrétt-
isgrundvelli. Það er kominn tími til
þess.“
Hún segir að efla þurfi samstöðu
félaganna um þessi mál áður en geng-
ið sé að samningaborðinu, og að sam-
tal þurfi að eiga sér stað á milli for-
ystu sjómannafélaga annars vegar og
sjómanna hins vegar, til að forystan
sé betur upplýst um það sem almenn-
um sjómönnum finnst að betur megi
fara.
Taki loturnar á heimavelli
„Forystan hefur verið veik. Það
sést best á því hvernig samstaðan
hefur sundrast. Og þá stöndum við
veikar gagnvart samningsaðilunum.
Þá finnst mér núna kominn tími til að
við tökum þessar samningalotur á
heimavellinum okkar, eða á hlut-
lausum vettvangi, en ekki á heima-
vellinum þeirra.“
Hún víkur þá talinu að eftirlits-
frumvarpinu svokallaða, sem verið
hefur í bígerð í atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytinu og varðar auk-
ið eftirlit með þeim sem veiða og
vinna fisk. „Formaður Sjómanna-
sambandsins kom fram í fjölmiðlum
og sagði að þetta væri fínt og flott
frumvarp. Þvert á móti. Þetta frum-
varp varðar störf okkar allra og það
eru mjög skiptar skoðanir um þetta.
En þegar rýnt er í umsagnir og lög-
skýringargögn með frumvarpinu þá
er ekki að finna umsögn frá einu ein-
asta sjómannafélagi. Hvorki hósti né
stuna. Hver var málsvari okkar sjó-
manna við gerð þessa frumvarps?
Enginn, nema mögulega SFS, af því
við deilum þarna líklega sömu
áhyggjum.“
Fengið virkilega góð viðbrögð
Heiðveig tekur fram að hennar
framboð snúist ekki um að ná einhvers
konar völdum eða yfirtöku, „heldur til
að fá vettvang til að koma okkar mál-
efnum á framfæri, bæði gagnvart
stjórnvöldum og viðsemjendum.“
Heiðveig tilkynnti framboð sitt á
þriðjudag og segist hafa fengið virki-
lega góð viðbrögð frá sjómönnum.
„Viðbrögðin hafa verið ótrúleg og
það eru margir sem eru að hvetja mig
áfram og spyrja hvar þeir geti skrifað
undir meðmælalista. Ég finn því fyrir
miklum stuðningi. Stjórnendur í öðr-
um félögum hafa svo haft samband
við mig til að ræða ýmis mál á fagleg-
um nótum.“
Spurð hvenær kosningar verði um
forystu félagsins segist hún búast við
að þær verði frá nóvembermánuði og
fram í janúar.
Vill bæta hag sjómanna
„Kosningin er þó ekki rafræn,
heldur fer hún fram á skrifstofu fé-
lagsins. Það er eitt af því sem ég vil
lagfæra, og um leið taka félagið nokk-
ur skref fram á við og inn í árið 2018.
Störf félagsmanna eru einfaldlega
þess eðlis að við erum mikið fjarver-
andi og það er erfitt að ná okkur öll-
um saman. Aðalfundur er til dæmis
alla jafna á milli jóla og nýárs, því þá
eru mestar líkur á að sem flestir kom-
ist. En eins og í mínu tilfelli, þá fór ég
út á sjó annan í jólum í fyrra og kom
til baka á gamlársdag, þannig að ég
náði ekki á fundinn,“ segir Heiðveig.
„En mest vil ég fá að starfa með
þeim sem vilja vinna að því að bæta
hag sjómanna. Mér finnst vera viss
skortur á því. Þetta þarf ekki að vera
neins konar stríð – það þarf bara að
vinna þessa vinnu.“
Vill upplýsta samstöðu sjómanna
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Efla þarf samstöðu á með-
al verkalýðsfélaga sjó-
manna og forysta þeirra
þarf að vera betur upplýst
um það sem hinum al-
menna sjómanni finnst að
betur megi fara. Þetta segir
Heiðveig María Einars-
dóttir, sem ákveðið hefur
að bjóða sig fram í emb-
ætti formanns Sjómanna-
félags Íslands.
Morgunblaðið/Eggert
Heiðveig var á leið um borð í Engey er blaðamaður náði tali af henni. Hún stefnir á framboð til formanns í vetur.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Afurðaverð á markaði
3. okt. 2018, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 368,70
Þorskur, slægður 317,71
Ýsa, óslægð 210,06
Ýsa, slægð 246,77
Ufsi, óslægður 93,55
Ufsi, slægður 120,75
Djúpkarfi 124,00
Gullkarfi 202,74
Blálanga, óslægð 224,68
Blálanga, slægð 146,07
Langa, óslægð 209,13
Langa, slægð 178,19
Keila, óslægð 92,35
Keila, slægð 112,88
Steinbítur, óslægður 307,53
Steinbítur, slægður 418,75
Skötuselur, slægður 474,12
Grálúða, slægð 382,11
Skarkoli, slægður 321,43
Þykkvalúra, slægð 457,79
Langlúra, slægð 150,00
Sandkoli, óslægður 48,72
Bleikja, flök 1.571,00
Gellur 912,64
Hlýri, óslægður 260,41
Hlýri, slægður 298,08
Lúða, óslægð 308,00
Lúða, slægð 378,47
Lýsa, óslægð 75,29
Lýsa, slægð 67,95
Skata, slægð 165,46
Tindaskata, óslægð 17,34
Undirmálsýsa, óslægð 122,18
Undirmálsþorskur, óslægður 154,94
Undirmálsþorskur, slægður 162,06