Morgunblaðið - 04.10.2018, Blaðsíða 16
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTA OGGINN
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Yfirlýsingagleði þrátt fyrir vandræðin
Ákvörðun tekin í ljósi þungbærra ........
Arion tapar háum fjárhæðum
WOW hættir flugi til þriggja..................
Tíu sagt upp hjá WOW air
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Fjölgun félagsmanna í lággjalda-
stéttarfélaginu Félagi lykilmanna
stefnir í að verða 50% milli ára. 400
voru í félaginu um síðustu áramót, en
verða 600 um áramót ef svo fer sem
horfir.
Gunnar Páll Pálsson, forsvars-
maður félagsins og stjórnarformað-
ur, segir að ástæður hinnar miklu
fjölgunar séu tvíþættar: „Bæði heyra
sífellt fleiri af félaginu og svo hlýtur
sá herskái tónn sem er í komandi
kjaraviðræðum að vera einhver skýr-
ing á þessari auknu aðsókn,“ segir
Gunnar Páll.
Hann segir að félagsmenn í félag-
inu, sem stofnað var árið 2012, séu að
mestu það fólk sem stefnt var að í
upphafi að fá inn í félagið, stjórn-
endur og sérfræðingar sem standa
utan stéttarfélaga.
Kostar 3 þúsund krónur á ári
Félagið er öllum opið að sögn
Gunnars. Athygli vekur hve lág fé-
lagsgjöldin eru, en félagsmenn
greiða einungis 0,05% af launum sín-
um til félagsins á ári. Til útskýringar
þá greiddi félagsmaður sem er með
500 þúsund krónur í mánaðarlaun
þrjú þúsund krónur á ári til félags-
ins.
Gunnar segir að í upphafi hafi sú
stefna verið mörkuð fyrir félagið að
einbeita sér að rekstri sjúkrasjóðs
fyrir félagsmenn, en vinnuveitandi
greiðir 1% af launum starfsmanns í
þann sjóð. Sjóðurinn brúi bilið frá því
að veikindarétti launþega lýkur hjá
vinnuveitanda, sem að jafnaði sé þrír
mánuðir, og þar til örorkulífeyrir
greiðist frá lífeyrissjóði. Þetta tíma-
bil geti varað í allt að níu mánuði og
jafnvel lengur í einhverjum tilfellum.
Morgunblaðið/Eggert
FLM gerði nýverið kjarasamning við Félag atvinnurekenda. Gunnar Páll
segir að einnig hafi verið leitað eftir samningi við Samtök atvinnulífsins.
50% fjölgun
félaga í FLM
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Félögum í Félagi lykil-
manna hefur fjölgað mikið
á þessu ári, en félagið er
svokallað lággjaldastétt-
arfélag.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Á síðustu vikum hafa hressileg við-töl birst við tvo atkvæðamikla út-
gerðarmenn. Fyrst Guðmund Krist-
jánsson í HB Granda og svo Sigurgeir
Brynjar Kristgeirsson, Binna í Vinnslu-
stöðinni. Nokkurt vopnaskak hefur
komið upp milli þessara gömlu félaga af
Snæfellsnesi á síðustu árum en nú hafa
vopnin verið kvödd. Guðmundur er
horfinn úr eigendahópi Vinnslustöðv-
arinnar og hefur stefnt á önnur mið.
Það hefur verið fróðlegt að fylgjastmeð Guðmundi á umliðnum mán-
uðum. Það eru ekki margir menn í við-
skiptalífinu sem efna til margra tug-
milljarða viðskipta á nokkurra mánaða
tímabili eins og hann hefur gert. Fyrst
með kaupunum í HB Granda, svo söl-
unni á Ögurvík og nú síðast Vinnslu-
stöðinni. En hann lætur ekki þar við
sitja.
Nú hefur hann ráðist í mikla hag-ræðingu hjá HB Granda og hann
hefur breytt nafni Brims í Útgerð-
arfélag Reykjavíkur.
Manni segir svo hugur að innanskamms muni HB Grandi
skipta um nafn og eftir það nefnast
Brim. Það er eina haldbæra skýringin á
nafnabreytingunni fyrrnefndu.
En skýringarinnar á nafnabröltinuer eflaust að leita í fyrrnefndu við-
tali við Guðmund í ViðskiptaMogga.
Hann sagði fyrri tengingar HB Granda
við hvalveiðar hafa staðið fyrirtækinu
fyrir þrifum í markaðsstarfi erlendis.
Nýtt nafn, Brim, gæti létt róðurinn í
þeim efnum.
Enn nýjar
vendingar
Því verður ekki haldið fram meðtrúverðugum hætti að endalok
Primera Air hafi komið Innherja al-
gjörlega í opna skjöldu. Ljóst var að
fyrirtækið hefur á síðustu mánuðum
unnið að endurfjármögnun samhliða
tröllauknum áætlunum um stærri
flugvélaflota og fleiri áfangastaði í
áætlunarflugi, m.a. yfir Atlantshafið.
Ekki fundust fjárfestar til aðleggja nægilegt fjármagn í þetta
mikla fyrirtæki.
Forsvarsmenn þess gáfu ýmsarólíkar skýringar á því af hverju
fór sem fór. Ekki er ástæða til að
rengja þær enda oftast margir sam-
verkandi þættir sem valda því að til
stórtjóns kemur.
En nú þegar Primera Air hefurlagt upp í sína hinstu för beinast
sjónir fólks að rekstri flugfélaga um
víða veröld. Hið umsvifamikla Ryan
Air virðist í kröggum og eru forstjóri
og stjórnarformaður félagsins orðnir
valtir í sessi. Olíuverð heldur áfram
að hækka og hefur ekki náð viðlíka
hæðum í fjögur ár. Þessar fréttir,
ásamt þeim sem varpað hafa ljósi á
harðnandi rekstrarumhverfi íslensku
flugfélaganna tveggja, Icelandair og
WOW air, bendir til að erfiður vetur
sé framundan. Búast má við því að fé-
lögin þurfi í allt í senn að hækka
miðaverð, leita hagræðingar með
fumlausum hætti og jafnvel að taka
sársaukafullar ákvarðanir en nauð-
synlegar til að bjarga verðmætum.
Fyrir tveimur árum þóttu menn öf-undsverðir af því að hafa lagt
flugrekstur fyrir sig og allt sem ráðist
var í virtist á svipstundu breytast í
gull. En þetta lögmál gekk að sjálf-
sögðu í báðar áttir. Á ótrúlega
skömmum tíma hefur gríðarleg sam-
keppni, hærra olíuverð í bland við
aðrar kostnaðarhækkanir, valdið því
að margir þeir sem stóðu með pálm-
ann í höndunum standa nú frammi
fyrir stærri áskorunum en nokkru
sinni áður.
Skjótt skipast veður í
háloftunum þessa dagana
Auglýsing kaffi-
húsakeðjunnar Costa
hafði letjandi áhrif á
neytendur til að neyta
ferskra ávaxta.
Mega ekki gera
lítið úr avókadó
1
2
3
4
5
SETTU STARFSFÓLKIÐ
Í BESTA SÆTIÐ