Morgunblaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018
Uppskrift
1 rúllubrauðtertubrauð
Fylling:
1 stk. beikonsmurostur
½ l rjómi
1 tsk. karrí
3 msk. majónes
1 stk. paprika – skorin smátt
1 epli – skorið smátt
50 g beikon – steikt og skorið smátt
Ofan á:
4 msk. ISIO4-olía
rifinn mozzarellaostur
snakk
Aðferð:
Beikonostur, rjómi, majónes og karrí sett í
pott og hitað þar til beikonosturinn hefur
bráðnað.
Beikonið er steikt, skorið smátt og bland-
að saman við blönduna. Paprikan og eplið
eru einnig skorin smátt og blandað saman
við.
Fyllingunni er þá smurt á brauðtertu-
brauðið, því rúllað upp og smurt að ofan með
smá olíu og síðan er ostinum sáldrað yfir.
Brauðréttur
með eplabitum
Botn:
10 stk. Caramel-nammikex. Mulið í matvinnsluvél og sett í
botninn á glasi.
Fylling
½ lítri rjómi
2 dósir Crème brûlée-skyr
Rjóminn þeyttur og skyrinu blandað saman við.
Blandan er sett ofan á Caramel-mulninginn.
Bingókúlusósa
1 poki bingókúlur
30 ml rjómi
Sett í pott yfir
vatnsbaði og
hitað þar til
bingókúlurnar
eru bráðn-
aðar.
Bingókúlu-
sósunni er hellt
yfir skyrfyll-
inguna.
Eplaskyrréttur með
bingókúlusósu
Uppskrift fyrir
tvo botna
8 stk. eggjahvítur
440 g sykur
1 tsk. lyftiduft
gelmatarlitur
Fylling:
½ lítri rjómi
2 stk. epli – brytjuð
smátt
10-15 vínber – skorin
í fjóra bita
3 stk. marssúkkulaði
Aðferð:
Eggjahvíturnar eru þeyttar, sykrinum blandað saman við og blandan stíf-
þeytt.
Lyftidufti er síðan blandað varlega saman við ásamt matarlit.
Til að móta hring er fínt að nota disk ca 26-28 cm og teikna meðfram á bök-
unarpappír. Marensblandan er sett í sprautupoka og sprautustúturinn 1M
notaður. Hægt að byrja að sprauta við línurnar á hringnum eða í miðjunni.
Marensblandan er bökuð við 130°C hita í um 1½ klst.
Rjóminn er þeyttur, eplin skorin í smáa bita ásamt vínberjunum og mars-
súkkulaðinu. Þessu er öllu blandað varlega saman og sett á milli marensbotn-
anna.
Marensterta með
eplum og vínberjum
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Ég hef mikið notað epli í hin-
um ýmsu uppskriftum þar sem
þau gefa gott bragð og lífga upp á
marga rétti. Marensterta er þar
efst á listanum en þegar ég byrj-
aði að setja eplabita út í rjómann
þá varð ekki aftur snúið. Ekki
má gleyma hvað það ert margt
sem passar með eplum en hægt
er að leika sér með hráefni eins
og kanil, súkkulaði og karamellu.
Hér eru á ferðinni þrír réttir
sem allir eiga það sameiginlegt
að innihalda epli. Marengsterta
stendur alltaf fyrir sínu en skyr-
rétturinn er ótrúlega ferskur
með rifnum eplum. Brauðréttur
með eplabitum er eitthvað sem
ég var að prófa í fyrsta skipti
og kom hann virkilega á óvart
og hvet ég aðra til að prófa,“
segir Hjördís um uppskriftirnar
þrjár sem eru hver annarri
girnilegri.
Ljósmyndir/Hjördís Dögg Grímarsdóttir
Hjördís Dögg Grímarsdóttir heitir konan á bak við hina vinsælu heimasíðu
mömmur.is en þar bakar hún eins og vindurinn og deilir með lesendum sínum.
Hjördís er sannkallaður sælkeri og hér deilir hún með okkur þremur upp-
skriftum sem allar eiga það sameiginlegt að innihalda epli.
Ljósmyndir/Hjördís Dögg Grímarsdóttir
Mömmur.is Hjördís
Dögg Grímarsdóttir
er vinsæll bloggari
og þykir sérlega
flink í kökubakstri.
Góðgæti Hér gefur
að líta dásemdirnar
sem Hjördís býður
lesendum upp á.
Með baksturinn í blóðinu