Alþýðublaðið - 22.12.1919, Side 1
Alþýðublaðið
O-efi.0 ait at Alþýð uflokknum.
1919
Jólaljós.
Jólin nálgast, og hugir manna
íyllast jólahugðum. Eitt af helztu
ráðunum til þess, að lyfta hugum
manna upp frá daglegu striti og
áhyggjum, er það, að gera alt um-
hverfi manna sem bjartast, með
kertum og öðrum Ijóstækjum.
í langan tímai hefir bær þessi
hvíll í hálfmyrkri, upphaflega vegna
gasskorts, en nú upp á síðkastið
vegna sparnaðar. Aðeins® örfá ljós-
ker hafa varið notuð, en hin eru
nú mörg í ólagi. Nú vil eg gerast
svo djarfur, að beina því til bæj-
arstjórnar eða þeirra, sem hlut
eiga að máli, hvort ekki mundi
tiltækilegt og vel við eigandi, að
gert væri við svo mörg ijósker,
sem unt er nú fyrir jólin, og síð-
an kveikt á þeim, svo ekki þurfl
að fara hrollur um menn, þegar
þeir á jólunum koma út úr vel
lýstum húsum og uppljómuðum
kirkjum. Óneitanlega yrði bjartara
1 hugum margra, ef augað sæi
sem fæst koldimm skúmaskot og
vera mætti að jólin hefðu þá
meira bætandi áhrif á menn, ef
birtan ljómaði víðar í kringum þá,
en hversdagslega.
Kostnaðurinn, sem leiddi af þess-
ari Ijósaviðbót, um skamma stund,
gæti aldrei orðið mikill, og eng-
inn bæjarbúa mundi sjá eftir því,
t>ó þetta væri gert. Enginn mundi
biðja þeim mönnum bölbæna, sem
kæmu þessu í framkvæmd, heldur
tniklu fremur hugsa hlýlega til
Þeirra. En nú hrýtur mörgum ó-
þarfaorð af vörum, er þeir verða
svo að segja að þreyfa sig áfram
um götur höfuðstaðarins.
I.
Skemtunin til ágóða fyrir leik-
núsbyggingarsjóðinn verður að lík-
indum endurtekin milli jóla og
Mýárs.
Mánudaginn 22. desember
47. tölubl. b.
með þessu heimsfræga merki,
úr mahogni með skáp
fyrirliggjandi. Seljast með
smiðjuverði, — ef til vill með mánaoanegri amorgun. wramm«
ötixv í miklu úrvali frá sömu verksmiðju.
Nálar, Plötuburstar og Albúm
^ímsfeeyti.
Khöfn. 20. des.
Ensk pólitík.
Lloyd George hefir skýrt frá
stefnu sinni í utanríkispólitíkinni.
Eranski samningurinn skal teljast
gildur. Eugland á ekki að skifta
sér af innri málum Eússlands.
Aðstoð Bandaríkjanna er nauð-
synleg til þess að geta hjálpað
Austurríki. Nauðsyn að semja
þegar frið við Tyrki, þó Ameríku-
menn séu eigi með í því. Það
verður að neyða Tyrki til þess að
láta af hendi Konstantinopel.
French sýnt banatilræði.
French lávarði [landstjóra Eng-
lendinga í írlandi] var sýnt bana-
tilræði í Dublin.
Erá I'jóðverjnm.
Frá Berlín er símað að stjórnin
hafi fengið umboð til þess að
banna allan útflutning.
í Bayern er óánægja með frum-
varpið um að gera Þýzkaland að
einu ríki.
Morgunblaðið á að sögn að
minka ofan í ísafoldarstærð frá
nýári.
Signrd Braa verður að íorfalla-
lausu leikinn annan dag jóla.
Hm dagiQQ og veginn.
Lá við skömm .,.! í gær voru
margar flutningabifreiðar á flegi-
ferð um Aðalstræti og Suðurgötu,
að flytja steinolíu úr skipinu Rollo,
sem liggur við hafnarbakkann.
Þótti ýmsum sem hraðinn mundi
helst tiJ mikill á bifreiðunum og
ekki vera ekið svo varlega sem
skyldi, enda lá við að slys hlytist
af akstrinum, því bifreið, sem kom
eftir Aðalstræti rakst á aðra, sem
kom úr Suðurgötu og beiglaðist
sú lítið eitt, en bifreiðarstjórarnir
kendu hvor öðrum um.
Einar Arnórsson hefir nú sótt
aftur um pvófessorsembættið í lög-
um, og hefir fengið hina próíess-
orana til þess að mæla með sér.
Hverfur þá nafn hans að líkindum
aftur af Morgunblaðinu, en hann
verður ritstjóri þess á laun eítir
sem áður, og berst framvegis á
móti alþýðunni, fyrir borgun.
óþrifnaðnr. Út úr portinu hjá
Uppsölum hefir undanfarna daga
runnið skólp eða vatn og gerir það
fremur óþrifalegt úti fyrir dyrum
kaffihússins, auk þess sem þarna
myndast svellbunki, sem er veg-
farendum til trafala. Ekki væri úr
vegi að hlutaðeigendur sæju um,
að þetta væri lagfært fyrir jólin.
i.