Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018FRÉTTIR Tekur ál, stál og ryðfrí hnoð upp að 4,8mm. LED ljós fyrir léleg birtuskilyrði. Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðum. Verð 59.900 kr. (með rafhlöðu) M12 BPRT Alvöru hnoðbyssa fráMilwaukee vfs.is VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 Breytingar eru framundan hjá Júlíu Rós en eftir góða syrpu hjá Vistor er hún á leið til Coca-Cola þar sem hún mun ganga til liðs við framkvæmdastjórn félagsins og leiða vörustjórnunarsviðið. Hverjar eru helstu áskor- anirnar í rekstrinum þessi misserin? Gjaldmiðill okkar, krónan, hef- ur verið mikil áskorun undanfarin ár. Það er krefjandi að gera betur í rekstri en að afkoman skuli engu að síður verða verri. Síðan er það áskorun að almennt er rekstrar- kostnaður að aukast umfram tekjur og þá liggja tækifærin í að gera hlutina á hagkvæmari hátt án þess að það komi niður á gæð- um. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Bókin Lean In: Women, Work, and the Will to Lead eftir Sheryl Sandberg. Hún fjallar um hvernig við konur getum tekið meira pláss í atvinnulífinu, en umræðan vill stundum verða um þær hindranir sem eru á vegi okkar kvenna. Bókin fjallar meira um tækifæri og hvað við konur getum sjálfar gert til að breyta stöðunni. Hver myndi leika þig í kvik- mynd um líf þitt og afrek? Mitt helsta afrek eru börnin mín fjögur, Robin Wright er mín uppáhaldsleikkona svo ég myndi vilja fá hana til að leika mig og myndin myndi fjalla um að það er vel hægt að samræma barnaupp- eldi og starfsframa. Þetta er allt spurning um hugarfar. Hugsarðu vel um líkamann? Já, ég geri það, ég hef rosalega gaman af allri hreyfingu svo lengi sem hún er utandyra. Við fjöl- skyldan förum saman á skíði og ég geng mikið á fjöll. Í september gekk ég um Friðland að Fjalla- baki í dásamlegu veðri og það er fallegasti staðurinn sem ég hef komið á. Síðan gaf eiginmaðurinn mér reiðhjól í afmælisgjöf í sumar – ég þarf að fara að prófa það. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Mastersverkefnið mitt fjallaði um kvenstjórnendur og leið þeirra í æðstu stjórnendastöðu, og er byggt á viðtölum við tíu konur. Eftirfarandi atriði nefndu flestar konurnar sem þeim þætti skipta máli til að komast í æðstu stjórnendastöðu: „Við þurfum að sleppa takinu á heimilinu, það getur verið erfitt að vera bæði framkvæmdastjóri í vinnunni og á heimilinu. Við þurfum að efla tengslanetið enn meira og í okkar tengslaneti mega ekki bara vera konur því meirihluti þeirra sem taka stærstu ákvarðanirnar í fyrirtækjum eru karlar. Við kon- ur þurfum að hafa meiri trú á okkur og stökkva á tækifærin þegar þau gefast.“ Þetta var mjög áhugavert verkefni og mig langar til að þróa það áfram. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Árangur í starfi er það sem hvetur mig áfram. Mér finnst hvetjandi að vinna með kláru og skemmtilegu fólki. Þá hef ég ver- ið með mentor undanfarin misseri og hann hefur verið mér mikill innblástur. SVIPMYND Júlía Rós Atladóttir, vörustjóri CCEP Áskorun þegar rekstrarkostn- aður eykst hraðar en tekjur NÁM: Ég lauk diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá HÍ árið 2006, diplóma í mannauðsstjórnun 2008, B.Ed.-gráðu 2011 og mastersgráðu í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2015. STÖRF: Ég starfaði í lyfjaframleiðslu Actavis, sem verkefnastjóri á þróunarsviði Actavis; verkefnastjóri á þjónustusviði Icelandair; deildarstjóri vöruhúsa Distica; og ég er núna markaðsstjóri hjá Vistor. Næsta skref er að taka sæti í framkvæmdastjórn CCEP á Íslandi og leiða vörustjórnunarsviðið. ÁHUGAMÁL: Ég er að ganga á 100 hæstu tinda Íslands með Ferðafélagi Íslands, en það verkefni mun taka nokkur ár. Ég prófaði nýlega sjósund og hlaup til skiptis í Swimrun í Svíþjóð og það var mjög gaman. Ég gæti hugsað mér að gera meira af því. Einnig hef ég verið svo lánsöm að hafa alla tíð verið í áhugaverð- um störfum sem hafa orðið áhugamál mín. FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er gift Hermanni Björnssyni, þjón- ustustjóra hjá Marel, og við eigum fjögur börn á aldrinum 8 til 16 ára: Hólmfríði, Björn Hermann, Friðgeir og Berglindi. HIN HLIÐIN RITFANGIÐ Sumir nota það til að réttlæta kaup- in á dýrum pennum að þeir týnist síður: fólk sé ekki jafn passasamt með plastpenna frá Bic og það er með kostagrip frá Montblanc, og því séu ódýrari pennarnir kannski ekk- ert svo praktískir þegar upp er stað- ið. Fyrirtækið Cross býður núna upp penna fyrir þá sem vilja fara meðal- veginn og ekki borga tugi eða hundr- uð þúsunda fyrir penna en geta samt stólað á að hann týnist ekki. TrackR kallast penninn og notar blátannartækni (bluetooth) til að tryggja að eigandinn geti fundið skriffærið vandræðalaust. Þarf ein- faldlega að tengja pennann við snjallsíma, og er þá hægt að nota símann til að hafa uppi á pennanum, eða láta vita ef penninn verður við- skila við eigandann. Ekki nóg með það, heldur má líka nota pennann til að finna símann, með alveg sömu tækni. TrackR-penninn kostar 80 pund hjá netversluninni Cross.com. ai@mbl.is Penni sem ekki týnist ÍBÚÐALÁN Fjármálaeftirlitið hefur gripið til að- gerða vegna tilboða sem verktakar í byggingariðnaði hafa gert væntum kaupendum íbúðarhúsnæðis um verðtryggð viðbótarlán í tengslum við kaupin. Slík tilboð fela í sér 95% veðsetningu af hálfu kaupenda á þeim eignum sem í hlut eiga. Slík til- boð hafa verið auglýst á und- anförnum misserum, m.a. við sölu á íbúðum í nýbyggingunni að Tryggvagötu 13 í Reykjavík. Þar hefur kaupendum verið boðið að festa kaup á eignum með 40 ára verðtryggðu grunnláni fyrir 70% kaupverðs en við það er bætt óverð- tryggðu 15% viðbótarláni til að há- marki 15 ára auk 10% seljendaláns. Má ekki fara yfir 90% Í tilkynningu frá FME er það áréttað að samkvæmt lögum um fasteignalán til neytenda er það gert að skilyrði svo að aðili megi veita fasteignalán til neytenda í atvinnu- skini að hann hafi verið skráður hjá FME. Á grundvelli sömu laga hefur FME sett reglur sem hámarka leyfi- legt veðsetningarhlutfall við 85% og 90% fyrir fyrstu kaupendur. Morgunblaðið/RAX Verktakar að baki uppbyggingu við Tryggvagötu hafa boðið seljendalán. FME setur verktökum stólinn fyrir dyrnar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Júlía Rós kveðst hafa lært mikið af Sheryl Sandberg og bók hennar Lean In.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.