Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.11.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018FÓLK SPROTI Isavia Sigrún Björk Jakobsdóttir hefur verið ráðin fram- kvæmdastjóri flug- vallasviðs Isavia. Í tilkynningu segir að Sigrún Björk hafi víðtæka reynslu af rekstri og þekki vel til ferðaþjónustu og sveitarstjórnar- mála. Þá segir að hún hafi fyrst kvenna orðið bæjarstjóri á Akureyri á árunum 2007-2009. Þá var hún hótelstjóri Icelandair Hótel Akur- eyri 2011-2017 og síðan fram- kvæmdastjóri Sinnum heimaþjón- ustu. Ráðin nýr framkvæmda- stjóri flugvallasviðs EY Margrét Péturs- dóttir, einn af eig- endum EY og sviðsstjóri endur- skoðunarsviðs fé- lagsins, hefur verið kosin í stjórn IFAC, Alþjóða- sambands endurskoðenda í Sydney í Ástralíu. IFAC saman- stendur af 175 endurskoð- unarfélögum í yfir 300 löndum og að baki standa félagsmenn sem telja þrjár milljónir endurskoð- enda. Margrét verður fulltrúi Ís- lands og Norræna endurskoð- unarsambandsins, NRF. Margrét Pétursdóttir kjörin í stjórn IFAC VISTASKIPTI Jón Axel Ólafsson er á því að það sé öllu fagfólki hollt að hafa áhugamál sem er alveg ótengt daglegum störfum þess. Okkur hætti öllum til að sökkva okkur ofan í það sem við fáum borgað fyrir, en gleymum að rækta aðra hæfileika, slaka aðeins á og líta inn á við. Jón Axel fann sitt „jóga“ í því að smíða útiborð og -bekki fyrir vini sína. „Þetta kom þannig til að við hjónin vorum farin að gefast upp á venjulegum garðhúsgögnum sem voru yfirleitt orðin ljót og ónýt eftir fyrsta veturinn. Konan mín bað mig því um að smíða fyrir sig eitthvað sem gæti helst dugað okkur ævina á enda. Hún hannaði bekk og borð og ég tók til við smíðina,“ útskýrir Jón Axel. Verkefnið vatt fljótt upp á sig. „Ég birti myndir af afrakstrinum á Facebook og verð þá var við mikinn áhuga hjá vinum mínum sem vildu endilega að ég smíðaði garðhús- gögn fyrir þá líka. Bættust við fleiri og fleiri pantanir og hef ég getað dundað mér við að smíða hvert hús- gagnið á fætur öðru.“ Fyrst og fremst til slökunar Smiðsgenið fékk Jón Axel frá föður sínum og afa en sjálfur kveðst hann ekki vera neinn listasmiður. Eru bekkirnir og borðin sem hann framleiðir tiltölulega einföld smíði úr níðsterkri furu sem þolir íslenskt veðurfar vel. „Þetta eru níðsterk húsgögn svo þau munu ekki fjúka burtu í vonskuveðrum og enginn á eftir að nenna að stela þeim. Ég læt eigandanum eftir að bera á hús- gögnin eða mála eftir smekk og síð- an þarf bara að bera á þau að vori til að halda þeim fallegum ár eftir ár.“ Í dag heldur Jón Axel úti sér- stakri Facebook-síðu utan um hús- gagnagerðina og hana má finna með því að leita að „JAX Hand- verk“. Hann smíðar ekki í hagn- aðarskyni, hyggst ekki stækka þennan litla rekstur og smíðar að- eins fyrir vini og kunningja … og kannski fyrir suma vini þeirra líka. Markmiðið er fyrst og fremst að fá tækifæri til að slaka á og gera það sem Jón Axel hefur gaman af: „Smíðin veitir mér huggarró, og svo get ég líka spilað kántrítónlist þegar ég er niðri á verkstæði en sú tónlist er ekki í miklu uppáhaldi hjá öðrum á heimilinu, þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir þar um,“ segir Jón Axel glettinn. „Það er svo gott að eiga einfaldlega athvarf þar sem maður getur dundað sér og það er sú andlega næring sem ég þarf.“ Andhverfan við skrifborðsvinnu Jón Axel ætti að vera flestum les- endum kunnugur. Hann hefur löngum verið tengdur við útvarp og sjónvarp, bæði í tengslum við dag- skrárgerð og stjórnun. Þess utan átti hann og rak útgáfufyrirtækið Eddu útgáfu, sem hann seldi árið 2016. Síðan þá hefur hann einkum fengist við rekstrartengd verkefni og fjárfestingar og nú síðast tók hann tímabundið að sér þátta- stjórnun í morgunþætti á útvarps- stöðinni K100. Segir Jón Axel að ein ástæða þess að húsgagnasmíðin reynist honum svona mikil upp- spretta ánægju sé að um sé að ræða vinnu af allt öðrum toga en hann fæst við daglega. „Trésmíði er and- hverfan við það að vinna við skrif- borð, og ólíkt svo mörgum öðrum verkefnum þá stendur maður uppi eftir u.þ.b. tuttugu stunda vinnu og getur virt fyrir sér afrakstur erf- iðisins í formi fallegra hluta, sem unnir eru í höndunum af alúð og natni.“ Kveðst Jón Axel vera á þeim stað í lífinu að hann sjái mikilvægi þess að fást helst aðeins við hluti sem hann hefur gaman af. „Ég hef á ýmsum skeiðum í lífinu tekið að mér verkefni sem hafa tekið frá mér mikla orku, tíma og gleði og kallað á það að brenna kertið á báð- um endum. Ekki er langt síðan ég áttaði mig á að það væri svo margt annað miklu mikilvægara í lífinu en að vera alltaf að keppast við og vera á stöðugum hlaupum, og ekki endi- lega það sem er vænlegast til ár- angurs,“ segir hann. „Ég staldraði við og fór að skoða hvað það væri sem mig langaði í raun að fá út úr lífinu og var niðurstaðan þessi: að fást aðeins við verkefni sem veita mér hamingju og mér þættu skemmtileg. Meira biður maður ekki um.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Jón Axel græðir eitthvað mikilvægara en peninga á því að smíða. Fæst aðeins við verkefni sem veita honum hamingju Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Fjölmiðla- og athafnamað- urinn Jón Axel uppgötvaði mikilvægi þess að vera ekki alltaf á stöðugum hlaupum. Hann finnur ró og fær útrás með því að smíða voldug og endingar- góð garðhúsgögn. Bekkirnir og borðin frá JAX Handverki eru sterkbyggð, þung og úr furu sem þolir íslenska rigningu og frost. Florealis Þrír nýir lykilstarfs- menn hafa verið ráðnir til Flo- realis. Daði Hannesson, fjár- málastjóri, er með M.Sc. gráðu í fjármálum frá Við- skiptaháskólanum í Kaup- mannahöfn og M.Acc. gráðu frá Háskóla Íslands. Hann hefur víðtæka reynslu úr fjármálageiranum. Dr. Margrét Bessadóttir, gæðastjóri, ber ábyrgð á uppbyggingu gæðakerfis félagsins. Hún er með M.Sc gráðu í lyfjafræði og doktorsgráðu í líf-og læknavísindum frá Háskóla Íslands og hefur meðal annars stundað rannsóknir á sviði náttúruefna. Dr. Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, vörustjóri, er lífeindafræðingur og með doktors- gráðu í líf- og læknavísindum frá Háskóla Íslands. Hún stofnaði sprota- fyrirtækið Platome og leiddi það þar til hún gekk til liðs við Florealis. Þrír nýir lykilstarfsmenn ráðnir til starfa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.