Morgunblaðið - 08.11.2018, Side 6

Morgunblaðið - 08.11.2018, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2018 Um allan heim er þróunin sú sama: í vaxandi mæli notar fólk internetið til að kaupa í matinn. Ef fram heldur sem horfir gætu netverslanir á borð við Ali Baba, AmazonFresh og Ocado orðið með mikilvægari sölu- stöðum íslenskra sjávarafurða. Valdimar Sigurðsson er prófessor við HR og forstöðumaður Rann- sóknaseturs í markaðsfræði og neyt- endasálfræði (RMN). Hann minnir á að netið kalli á önnur vinnubrögð en sala á fiski eftir hefðbundnum leið- um. Neytendur láti aðra þætti ráða valinu þegar matarinnkaupin eru gerð í netverslun frekar en í stór- markaði og láti t.d. umsagnir ann- arra viðskiptavina og gæði ljós- mynda af vörunni stýra því hvaða fiskur er keyptur og á hvaða verði. Bendir hann einnig á að verslun framtíðarinnar verði tæknidrifin þar sem netið og önnur tækni renna saman við hefðbundna verslun. Valdimar verður á meðal fyrirles- ara á Sjávarútvegsráðstefnunni 2018 sem haldin verður í Hörpu dag- ana 15.-16. nóvember og ber erindi hans yfirskriftina Markaðssetning og sala á sjávarfangi á netinu: Í hvaða viðskiptum erum við raun- verulega? Geta ekki grannskoðað fiskinn Hann segir neytendur vera að færa matarinnkaupinn hratt yfir á netið enda mikil þægindi sem fylgja því að spara sér ferð út í búð. „Árið 2016 seldu netverslanir 6,7% af allri matvöru í Bretlandi en ári seinna var hlutfallið komið upp í 7,3%. Þró- unin á innanlandsmarkaði á Íslandi er töluvert á eftir öðrum vestrænum þjóðum en til að gefa dæmi um hve langt netverslun með matvæli hefur náð annars staðar þá kom í ljós í ný- legri könnun að á þessu ári höfðu 49% bandarískra neytenda keypt matvæli á netinu a.m.k. einu sinni á því þriggja mánaða tímabili sem könnunin náði til.“ Eins og lesendur geta ímyndað sér er töluverður munur á að kaupa fisk í netverslun og að leita uppi bestu bitana í fisk- eða kæliborði matvöruverslunar. Úti í búð geti fólk virt fiskinn vandlega fyrir sér, hafi betri tilfinningu fyrir skammta- stærðum, geti metið áferð og gæði fisksins, og séð hvort stutt er í síð- asta söludag. Bendir Valdimar á að af þessum sökum gætu seljendur þurft að leggja sig sérstaklega fram við að ávinna sér traust kaupenda. Enginn vill jú fá fisk heim að dyrum til þess eins að uppgötva að fiskbitinn eða -flakið stenst ekki væntingar. „Bæði þarf að vera mikið samræmi í gæð- um vörunnar svo að neytandinn fái jafngóðan og jafnfallegan fiskbita í hvert sinn, en svo er líka hægt að beita ráðum eins og að bjóða endur- greiðslu ef gæðin eru ekki í sam- ræmi við gefin loforð. Jákvæð um- mæli og einkunnagjöf annarra neytenda eykur líka traust kaupand- ans á vörunni.“ Þurfa að rannsaka neytendur Hjá RMN hafa verið gerðar áhugaverðar tilraunir til að greina hvað hefur mest áhrif á val neytenda þegar þeir kaupa fisk hjá netversl- un. Valdimar segir æskilegt að ís- lenskur sjávarútvegur rannsaki við- horf og hegðun neytenda betur, því árangur í sölu á fiski á netinu bygg- ist á því að skilja þankagang og óskir neytenda vel. Mikil vitundarvakning sé innan geirans um þessi mál. „Kannanir okkar hafa gefið okkur gagnlega innsýn inn í hvað virkar best á neytendur. Þannig höfum við t.d. komist að því að mikill munur er á því að geta sýnt viðskiptavinum netverslana stóra og vandaða mynd, þar sem má jafnvel skoða dæmi- gerðan fiskbita í miklum smáat- riðum frá ólíkum sjónarhornum, frekar en að vera með smáa og lé- lega mynd. Hjálpar líka, til dæmis, ef að seljandinn veitir einhvers kon- ar vottun eða tryggingu fyrir gæð- um og ferskleika.“ Segir Valdimar að í netverslun skipti líka miklu máli að hafa fiskinn í fallegum umbúðum og jafnvel reyna að hampa vörunni á grundvelli hollustueiginleika, hreinleika eða upprunalands. „Er gaman að minna á að framtakssömum aðilum hefur tekist að selja ferðamönnum íslensk- an harðfisk og sælgæti á mun hærra verði með því einfaldlega að setja í nýjar umbúðir með myndum af ís- lenskri náttúru. Pakkningarnar, út- lit þeirra og þær upplýsingar sem þær miðla hafa áhrif á mat neytenda á vörunni og aðgreina íslenskan fisk frá öðrum fiski.“ Frekari rannsókna sé þörf og brýnir Valdimar fyrir seljendum sjávarafurða að vakta neytendur með kerfisbundnum hætti, og eiga í nánara samstarfi við smásala. „Með tiltölulega smávægilegum breyt- ingum og lagfæringum væri mögu- legt selja meira af fiski og selja hann á enn betra verði.“ Önnur lögmál gilda um sölu fisks á netinu Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Íslenskur sjávarútvegur þarf að búa sig undir að sala á fiski færist úr stór- mörkuðum yfir til netversl- ana. Neytendur láta ekki sömu hluti ráða valinu þeg- ar þeir velja fisk af tölvuskjá og þegar þeir standa fyrir framan kæliborð fisk- salans. Morgunblaðið/Árni Sæberg Valdimar segir viðskiptavini netverslana láta umsagnir annarra, gæða- og ferskleikavottanir, og gæðaábyrgð selj- anda hafa áhrif á hvaða fiskur verður fyrir valinu. Atriði á borð við stórar og góðar myndir geta ráðið úrslitum. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Varahlutir í allar Cummins vélar Fljót og áreiðanleg þjónusta Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík Afurðaverð á markaði 7. nóv. 2018, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 324,45 Þorskur, slægður 345,95 Ýsa, óslægð 334,02 Ýsa, slægð 310,61 Ufsi, óslægður 18,67 Ufsi, slægður 121,07 Djúpkarfi 192,00 Gullkarfi 253,24 Blálanga, slægð 232,34 Langa, óslægð 268,00 Langa, slægð 260,26 Keila, óslægð 121,55 Keila, slægð 168,63 Steinbítur, óslægður 213,00 Steinbítur, slægður 523,97 Skötuselur, slægður 615,04 Grálúða, slægð 293,22 Skarkoli, slægður 351,21 Þykkvalúra, slægð 451,92 Langlúra, óslægð 136,02 Langlúra, slægð 189,00 Bleikja, flök 1.587,33 Gellur 817,89 Grásleppa, óslægð 6,00 Gullkarfi, slægður 245,00 Hlýri, slægður 455,82 Lúða, slægð 486,20 Lýsa, slægð 122,00 Náskata, slægð 90,25 Stórkjafta, slægð 200,00 Tindaskata, óslægð 10,00 Undirmálsýsa, óslægð 157,42 Undirmálsþorskur, óslægður 175,09 Undirmálsþorskur, slægður 167,88

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.