Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Qupperneq 2
Er það rétt að þú sért að koma fram á
tuttugustu Airwaves-hátíðinni?
„Já, það er rétt. Þegar ég áttaði mig á því að ég hafði spilað á
öllum hátíðunum til þessa var róið öllum árum að því að
koma Dr. Spock inn á dagskrána í ár. Þetta varð að ger-
ast.“
Hvað hefurðu komið fram með
mörgum sveitum?
„Úff. Margt af þessu er í móðu; um nokkurra ára
skeið var ég aktífur með mörgum böndum. Að-
allega eru það samt Ensími og Dr. Spock en einnig
sveitir eins og Bang Gang og Cynic Guru. Síðan
vorum við Krummi í Mínus einu sinni með verk-
efni saman. Svona mætti lengi telja. Ætli þetta
séu ekki svona tíu atriði í heildina.“
Hvernig líst þér á hátíðina í ár?
„Mér líst vel á hana. Það eru ákveðnar breytingar í
gangi með nýjum rekstraraðila, Senu Live, og ég
er spenntur að sjá hvernig tekst til. Sena Live býr
að mikilli reynslu þegar kemur að tónleikahaldi og
fagmennskan er áberandi. Það myndast alltaf frá-
bær stemning á Airwaves; allir eru glaðir og komnir í
bæinn til að njóta tónlistarinnar.“
Hefur hátíðin breyst í áranna rás?
„Já, hún hefur farið í allar áttir. Fyrsta hátíðin var í flug-
skýli og stóð bara í eitt kvöld. Síðan þróaðist hátíðin og
stækkaði; lagði miðborgina undir sig, Laugardalshöll-
ina, Valsheimilið og Hörpu. Nú finnst mér hún komin
aftur í grasrótina; á litlu staðina. Airwaves er komin
heim.“
Áttu von á að verða þarna næstu 20 árin?
„Ég veit það ekki (hlær). Það er aldrei að vita; alla
vega er ennþá eldmóður í mér. Músíkin er alltaf innra
með mér og þörfin fyrir að skapa. Maður segir aldrei
nei við góðu giggi.“
Hvað er annars á döfinni?
„Það er ýmislegt. Við í Spock-flokknum ætlum að
gera eitthvað áhugavert á næstunni, líka Ens-
ími. Síðan gaf ég út sólóplötu í fyrra og það opn-
aði fyrir ýmsar gáttir. Mögulega held ég áfram
á þeirri braut; ég hef úr nægu efni að moða.
Þess utan hefur verið rætt að stofna nýjar
hljómsveitir og svo langar mig að gera
meira af tribute-tónleikum. Þá er ég
bæði að tala um ný verkefni og að
dusta rykið af gömlum. Það er nóg
að gera.“Morgunblaðið/Hari
FRANZ GUNNARSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Segi aldrei nei
við góðu giggi
Jæja, lagsi, hvernig líst þér svo á nýja forsetann?Við, þrjár dreifbýlistúttur ofan af Íslandi, höfðum komið okkur mak-indalega fyrir í leigubílnum í Georgetown í Washington og stefnan var
tekin heim á hótel eftir æsilega kosningavöku, þar sem niðurstaðan var sú að
bandaríska þjóðin vildi skipta George gamla Bush út fyrir Bill Clinton.
Hvernig skyldi leigubílstjóranum lítast á það, svona steinsnar frá Hvíta hús-
inu? Svarið kom eins og köld vatnsgusa framan í okkur.
„Nú, voru menn að kjósa nýjan forseta?“
Ha, vissirðu það ekki?
„Nei.“
Nú ertu að grínast!
„Nei, strákar mínir. Ég er ekki að grínast. Og það sem meira er, mér gæti
ekki verið meira sama. Það skiptir mig ekki nokkru einasta máli hver er for-
seti Bandaríkjanna.“
Við þögðum það sem eftir var ferðar – reyndum hver um sig að ná utan um
þessar óvæntu upplýsingar. Hvers
vegna hugsaði maðurinn svona?
Hvers vegna hafði hann gefist upp á
lýðræðinu? Hvers vegna stóð honum
á sama um það hver gegndi valda-
mesta embætti heims?
Við lærðum það þarna, liðlega tví-
tugir, að kosningaáhugi og -þátttaka
er alls ekki sjálfgefin. Einum við-
mælanda mínum á alþjóðlegu ráð-
stefnunni sem við sóttum í Wash-
ington þetta haust þótti ég raunar
tala af svo mikilli íþrótt um kosn-
ingar að hann spurði hvort það væri
þegnskylda að kjósa á Íslandi. Ekki
yrði undan því vikist, burtséð frá
áhuga. Og hörð viðurlög.
Til allrar óhamingju er ég ekki
með símanúmerið hjá leigubílstjór-
anum góða í Washington. Gaman væri nefnilega að vita hvort einhverjar
glæður hafi hlaupið í pólitískan áhuga hans á þessum aldarfjórðungi sem síð-
an er liðinn. Gerir hann sér til dæmis grein fyrir því að Donald Trump er orð-
inn forseti? Fór hann á kjörstað í vikunni? Er hann ennþá að keyra leigubíl?
Fyrir liggur að margir Bandaríkjamenn upplifa sig utan kerfis; ergó þetta
tómlæti gagnvart lýðræðinu. Hvað sem annars má segja um Donald Trump
þá hefur hann augljóslega hrist upp í kerfinu og kosningaþátttakan í vikunni
bendir til þess að lýðræðisástin sé að glæðast vestra. Hvort það verður til
þess að kerfið þokar sér nær fólkinu í landinu mun framtíðin leiða í ljós.
Næst þegar ég dett inn í leigubíl í Washington á síðkvöldi veit ég alltént
hver fyrsta spurningin verður.
Hvaða Bill?
Reuters
Gæti ekki verið
meira sama
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’ Einum viðmælandamínum á alþjóðleguráðstefnunni sem við sát-um í Washington þetta
haust þótti ég raunar tala
af svo mikilli íþrótt um
kosningar að hann spurði
hvort það væri þegn-
skylda að kjósa á Íslandi.
Í PRÓFÍL
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Guðrún Valgeirsdóttir
Þorpið eftir Ragnar Jónasson. Sög-
urnar hans eru svo spennandi og
grípandi.
SPURNING
DAGSINS
Hvaða bók
hlakkarðu
mest til að
lesa um
jólin?
Ásmundur Arnar Ólafsson
Ég veit ekki mikið um bækur og hef
ekki mikinn áhuga á þeim.
Ingibjörg Bjarney
Baldursdóttir
Ör eftir Auði Övu. Hún bíður á nátt-
borðinu.
Þorbergur Friðriksson
Ég er ekki kominn svona langt í
bókamessunni.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Franz Gunnarsson gítarleikari nær þeim áfanga í kvöld, laugardagskvöld, að koma fram á Iceland Airwaves í tuttugasta sinn þegar
Dr. Spock stígur á svið á Gauknum kl. 22.50. Þetta þýðir að hann hefur verið með frá upphafi en hátíðin var fyrst haldin 1999.