Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Síða 4
Hvað vildu Kirgisíu- menn á Króknum? 11.11. 1938 Þennan dag fjallaði aðalfréttin í Morgunblaðinu um „hamslausar gyðinga- ofsóknir um alt Þýskaland“. Heimildarmaður var „frjettaritari vor“ í Kaupmannahöfn. „Eftir að fregnin um dauða von Raths, starfsmanns í þýsku sendisveitinni í París, sem pólskur Gyð- ingur skaut, barst til Þýskalands, hófust þar hinar hamslausustu Gyðingaofsóknir, svo fá eða engin dæmi munu til annara eins ofsókna eftir að nazistar komust til valda. Ráðist hefir verið á verslanir Gyðinga víðsvegar um land og þær rændar eða vörur og verslunarhús þeirra eyði- lögð. Kirkjur Gyðinga hafa verið brendar og sprengdar í loft upp. Fjöldi Gyðinga hafa verið handteknir og margir hafa beðið um að þeir yrðu hafðir í varðhaldi til verndar gegn ofsókn- um.“ Einnig kom fram að hin opinbera þýska fréttastofa hefði tilkynnt að lát von Raths hafi vakið óhemju gremju gegn gyðingum, en að yf- irvöldin hefðu reynt að koma í veg fyrir ofsókn- ir. Reuterskeyti frá Berlín og München hermdu að Gestapo-lögreglan hefði handtekið alla karl- menn af gyðingaættum í München morguninn sem fréttin var skrifuð. 11.11. 1958 Á baksíðu Morgunblaðsins kom fram að látlaust væri unnið að rannsókn þjófn- aðarmáls á Keflavíkurflugvelli, „en segja má að þar hafi nú komið fram nýr þáttur málsins: Bíla- smygl“. Dagana á undan hafði mikil rannsókn og ýt- arleg farið fram í Reykjavík á því, að í umferð væru bílar sem smyglað hefði verið út af flug- vellinum. „Hafa menn sem átt hafa einhverja bílgarma keypt af varnarliðsmönnum þeirra gömlu bíla. Bílunum hefur verið ekið út af flug- vellinum, og eigendurnir farið með þá heim til sín, eða í einhverja geymslu. Þar hafa þeir haft aðstöðu til að rífa þá í sundur og nota í sína gömlu bíla hið nýtilega úr hinum, sem keyptir voru á flugvellinum. Síðan hafa þessir „flugvallarbílar“ verið „látnir hverfa“ sem brota- járn, eða hent. – Þannig benti einn af mönnum þeim, sem handtek- inn hefur verið, á stað þann er hann hafði hent „flug- vallarbílnum“, sem hann keypti, eftir að hafa skorið það í sundur með logsuðutæki, sem hann ekki gat notað úr fyrrgreindum bíl.“ Fiskifræðingar ósáttir 11.11. 1978. „Þessar aðgerðir eru að okkar mati alls ekki nægilegar,“ sagði Jón Jónsson, forstöðumaður Hafrannsóknastofnunar, er Morgunblaðið spurði hann álits á þeim tak- mörkunum á þorskveiðum sem sjávarútvegs- ráðuneytið hafði boðað á tímabilinu frá 15. nóv- ember til 31. desember. Það er gömul saga og ný að vísindamenn og ráðamenn líti þorskinn ekki alltaf sömu augum. Jón sagði að þessar ráðstafanir kæmu að vísu til móts við kröfur fiskifræðinga, en alls ekki nægilega langt. Benti Jón á að fiskifræðingar hefðu lagt til að há- marksþorskafli á árinu yrði 275 þúsund tonn, en hann væri nú þegar kominn yfir 300 þúsund tonn. 11.11. 1988 Forvitnileg frétt var á bak- síðu Morgunblaðsins sem fjallaði um að fulltrúar frá sovétlýðveldinu Kirgisíu hefðu óskað eftir samvinnu við Loðskinn hf. á Sauð- árkróki um uppbyggingu á skinnaiðnaði í lýð- veldinu. „Fulltrúar stjórnvalda í Kirgízíju ræddu við fulltrúa Loðskinns hf. og Búnaðarbankans í fyrradag og sagði Eyjólfur Konráð Jónsson stjórnarformaður Loðskinns að fyrirtækið hefði á fundinum tekið vel í þetta mál. Formlegt tilboð Kírgízíjumanna væri væntanlegt á næstu vikum.“ Ennfremur var sagt að „Kírgízíja“ væri fjallaland í Mið- Asíuhluta Sovétríkjanna, við landamæri Kína. Þar væri talsverð sauðfjárrækt og lítið gert með þær tíu milljón gærur sem til falla árlega, og þeim jafnvel hent í stórum stíl. Fulltrúar stjórn- valda í lýðveldinu voru hér á landi m.a. til að kanna möguleika á samvinnu við uppbyggingu skinnaiðnaðar á nokkrum stöðum í landinu. Eyjólfur Konráð sagði að þeir segðust geta samið sjálfir við erlenda aðila og þyrftu við- skiptin ekki að fara um Moskvu. 11.11. 2008 Fall íslensku bankanna var að vonum efst á baugi þennan dag. Á forsíðu Morgunblaðsins kom fram að skilanefndir bankanna myndu hitta erlenda kröfuhafa í bú þeirra á fundum í vikunni. Um var að ræða full- trúa evrópskra og bandarískra lánveitenda. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins höfðu ýmsir kröfuhafanna látið í ljós að fyrra bragði áhuga á að taka hlut í íslensku bönkunum upp í skuldir og taka þátt í áframhaldandi rekstri og fjármögnun þeirra. „Á fundunum verður gerð grein fyrir stöðu þrotabúa bankanna.“ 11.11. 1994 Morgunblaðið greindi frá því að Eiður Smári Guðjohnsen væri orðinn yngsti atvinnumaður Íslendinga í knattspyrnu en hann skrifaði daginn áður undir samning við hollenska liðið PSV Eindhoven, 16 ára og 56 daga gamall. Morgunblaðið/Þorkell Gyðingaofsóknir í Þýskalandi, þjófnaðarmál á Keflavíkurflugvelli, óánægja Jóns Jónssonar, samstarf Sauðárkróks og Kirgisíu á sviði skinnaiðnaðar og kröfur kröfuhafa í bú föllnu bank- anna er meðal þess sem verið hefur í fréttum á þessum degi gegnum tíðina, 11.11. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is 11.11. 1963 fjallaði Morgunblaðið um strand breska togarans Lord Stanhope vestur af Ingólfs- höfða. Slæmt veður var á strandstað en eigi að síður tókst að bjarga allri áhöfninni, átján manns. Ljósmynd/G. Zoëga Jón Jónsson fiskifræðingur. INNLENT 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2018 11.11. 1913 Morgunblaðið var aðeins ríflega vikugamalt þegar hermt var af afmæli broddborgara á forsíðu blaðs- ins, síra Matthíasar Jochumssonar. Og erfitt átti blaðið með að trúa því að hann væri orðinn 78 ára. „Ganghraður, snarlegur, orðglett- inn og hláturmildur, gáskafenginn og spilandi fjörugur. Svona er hinn árum aldni skáldþulur, sem nú skilur 78 árin að baki sér.“ Og ennfremur: „Vér Reykvíkingar erum svo hepnir að hafa hann meðal vor í dag, og ættum að láta hann sjá, að hann er oss meira en „núll og nichte“.“ Matthías 78 ára Séra Matthías Jochumsson. Jónas Jónsson alþingismaður frá Hriflu. Hriflu- Jónas í ham 11.11. 1948 Jónas Jónsson frá Hriflu hélt mönnum við efnið á Alþingi sem endranær. Morgunblaðið greindi frá því að hann hefði flutt þar fyrirspurn til flugmálaráðherra um njósnir yfir flugvöllum ríkisins. Fyrirspurnin hljóðaði svo: „Hve oft hafa menn orðið þess varir á yfirstand- andi ári, að erlendar flugvjelar virtust starfa að njósnum yfir flugvöllum rík- isins? Hvernig hindra þjóðir sem ráða yfir vopnuðu liði, þesskonar njósnar- starfsemi? Hvað ætlar flugmálastjórn- in að gera til að hindra að þessari njósnarstarfsemi verði haldið áfram hjer á landi?“ Hver er annars flugmálaráðherra í dag? Jónas deildi einnig á það fyrirhyggju- leysi að loka drykkjumannahæli í Kald- aðarnesi eftir að veittar höfðu verið til þess um 800 þúsund krónur á tveggja ára tímabili. Gísli Jónsson alþing- ismaður deildi einnig harðlega á ráð- herra og vefengdi lagaheimild til að selja hælið.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.