Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Side 8
Starf vitavarðarins hljómar eins og eitthvert það einmanalegasta starf sem hægt er að taka að sér en sjálfvirknin hefur nú leyst vitaverðina að mestu af. Vitabyggingarnar eru þó jafn einmana á að líta og áður. Vitar gegna veigamiklu hlutverki í að leiðbeina sjófarendum og fyrir landkrabba er gaman að horfa á þessar appelsínugulu súlur skjóta upp kollinum við sjóinn víðsvegar um land en skæri liturinn kallast skemmtilega á við náttúrulitina í lands- laginu. Vitinn á myndinni stendur við Helguvík. Kristinn Magnússon VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2018 Sumt er svo undarlegt. Maður getur haft ákveðnaskoðun á einhverju sem passar svo engan veginnvið aðra hluti sem maður gerir. Ég get til dæmis ekki hugsað mér að drepa dýr. Þegar ég fékk mús í bílskúrinn fannst mér algjört grundvallaratriði að nota gildru sem myndi ekki meiða hana. Ég náði músinni og sleppti henni úti í náttúrunni. Og var satt að segja soltið stoltur af því. Áður en þetta björgunarafrek var unnið hafði ég samt fyrst sigað köttunum á skúrinn. Sem betur fer án árangurs, en mér fannst sem sagt allt í lagi að fá leigumorðingja í verkið! Það er ekki glóra í þessu. Mér finnst mikilvægt að fólk fái mannsæmandi laun. Samt finnst mér frábært að fara til landa þar sem allt er ódýrt. Jafnvel þó að ég viti að forsenda þess er að fólkið í viðkomandi landi er á lúsarlaunum. Ég vil endilega bæta almenningssamgöngur og að sem flestir noti strætó. Sjálfur gerði ég það sennilega síðast þegar ég fór á löggustöðina að sækja öku- skírteinið. Við erum öll svona og dæmin eru óteljandi. Hversu marga þekkið þið sem brjálast yfir fréttum af skatt- svikum en eru svo alltaf til í að græja hluti nótulaust? Eða fyrirlíta stórfyrirtæki og auðhringi en voru svo al- gjörlega á trampolíninu yfir að fá Costco og H&M? Muniði hvað það var sjúklega mikið mál að halda sjálfstæði Seðlabankans? Þegar hann svo hækkar vexti (með einhverjum miklum hagfræðirökum) þá verðum við alveg galin og heimtum pólitísk afskipti. Við viljum líklega öll að þeir sem minna mega sín og eiga við ýmis vandamál að stríða fái einhvers konar mannsæmandi aðstöðu og geti búið einhvers staðar. Bara ekki í hverfinu okkar. Við styðjum líklega öll málfrelsi en verðum svo brjáluð þegar einhver segir eitthvað sem við erum ósammála. Viljum jafnvel banna honum að tala af því hann er með svo sjúklega vondar skoðanir. Við viljum fá ferðamenn en bara ekki svona marga. Þeir eiga samt að skila öllum peningunum sínum. Við viljum bílastæði en ekki bíla, við viljum draga úr mengun en fá ódýrara bensín. Við viljum kaupa ódýrt í stórmörkuðum en samt hafa kaupmann á horninu. Við viljum auka öryggi í umferð- inni en trompumst þegar við fáum hraða- sekt. Það er nefnilega svo að það er harla fátt sem er ókeypis. Ef við ætlum að fá eitthvað verðum við yfirleitt að láta eitthvað af hendi. Það get- ur hins vegar stundum verið erfitt að láta hljóð og mynd passa saman. Annað var það nú ekki. Góðar stundir. Hljóð og mynd ’Áður en þetta björgunarafrekvar unnið hafði ég samt fyrstsigað köttunum á skúrinn. Sembetur fer án árangurs, en mér fannst sem sagt allt í lagi að fá leigumorðingja í verkið! Það er ekki glóra í þessu. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.