Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2018
VETTVANGUR
Í vikunni sótti ég ráðstefnu í Mexíkóum áherslur í viðureigninni viðvímuefni. Skipulag fundarins var á
hendi starfseiningar sem kennd er við
Georges Pompidou – kallar sig Pompi-
douhópinn – en að uppistöðu til er
þetta samstarfsvettvangur þorra að-
ildarríkja Evrópuráðsins um málefnið.
Safnað er upplýsingum, fylgst með
þróun á þessu sviði, leitast er við að
greina hana, efna til umræðu og veita
þjálfun; allt til að búa í haginn fyrir vel
ígrundaða og skynsamlega stefnumót-
un.
Þetta samstarf hefur verið að víkka
út og þá einkum vestur um haf. Þannig
á gestgjafaríki þessa fundar, Mexíkó,
nú formlega aðild að þessu samstarfi
og fundinn sátu einnig fulltrúar ann-
arra Ameríkuríkja, bæði úr norðri og
suðri.
Áhugi Mexíkómanna kemur ekki til
af engu. Þar í landi brennur fíkniefna-
vandinn heldur betur á þjóðfélaginu
enda fylgir honum hrikaleg spilling og
mjög grimm glæpastarfsemi auk
harmkvæla af völdum eiturlyfjaneyslu.
Talið er að í Mexíkó láti tugir þúsunda
lífið árlega í stríðinu um eiturlyf.
Nú eru Mexíkómenn búnir að fá
nóg af þessu stríði við glæpagengin og
ekki síður mannskæðum átökum
þeirra í milli. Þetta á einnig við um það
sem kallað hefur verið á heimsvísu
„stríð gegn eiturlyfjum“. Það hefur
ekki skilað þeim árangri sem vænst
var.
Á fundum af þessu tagi ræða menn
því nýjar aðferðir og þá ekki síst þær
sem teljast vera fyrirbyggjandi. Þar
eiga Íslendingar sögu að segja sem
þykir vera eftirtektarverð. Var ég vel
nestaður af sérfræðingum landlæknis-
embættisins, SÁÁ, lögreglu, foreldra-
samtaka og fleiri aðila. Aðkoma mín
byggðist þó ekki á sérfræðiþekkingu á
málefninu í þröngum skilningi, heldur
var mér ætlað með innleggi mínu –
eins og reyndar á nokkrum fyrri fund-
um af þessu tagi sem ég hef sótt – að
örva umræðu um gildi þverfaglegs
samstarfs og tengingar fagfólks við
stjórnmálin og grasrótina.
Lærdómur minn af þessari ráð-
stefnu er hve varasamt það hljóti að
vera að alhæfa um lausnir, svo ólíkar
Fundað í greninu
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
eru aðstæður í heiminum.
Ísland á þannig fátt sameiginlegt
með Mexíkó. Þar er vandinn voðalegri
hvað glæpi áhrærir þótt slæmur sé
hann hér á landi. Í Mexíkó eru eitur-
lyfjabarónar ríki í ríkinu og eru auðæfi
þeirra gífurleg.
Og nú að greninu.
Bókaútgáfan Angústúra gaf nýlega
út í íslenskri þýðingu bók eftir Juan
Pablo Villalobos, Veislu í greninu. Þar
segir frá lífi eiturlyfjabaróns og sonar
hans í kastala sem baróninn hafði
reist, víggirtum og svo miklum að þar
var hægt að halda ýmis framandi dýr,
ljón, tígrisdýr og slöngur.
Fundurinn, sem ég sótti, var hald-
inn í miðstöð á vegum mexíkósku
fíkniefnalögreglunnar, kastala með
vörðum og víggirðingum. Okkur var
sagt að þessi kastali hefði verið bú-
staður eiturlyfjabaróns til ársins 2008.
„Þá náðum við honum á okkar vald og
ákváðum að nota hann í okkar þágu.“
Og svo var bætt við okkur til upplýs-
ingar: „ ... að svo mikill var auður fyrri
eiganda að hér var vísir að dýragarði,
haldin ljón, tígrisdýr, slöngur…“
Svona er allt í heiminum hverfult.
Þar sem áður var barist gegn sam-
félaginu er nú barist í þess þágu.
Kannski er þetta táknrænt og til upp-
örvunar, áminning um að í mann-
heimum megi öllu breyta með ein-
beitni og góðum vilja.
Það hugsuðum við held ég mörg
þegar við sátum fyrir til ljósmyndunar
fyrir framan grenið.
’Fundurinn, sem égsótti, var haldinn ímiðstöð á vegum mexí-kósku fíkniefnalögregl-
unnar, kastala með vörðum
og víggirðingum. Okkur
var sagt að þessi kastali
hefði verið bústaður eitur-
lyfjabaróns til ársins 2008.
Þórarinn Már
Baldursson,
hljóðfæraleikari í
Sinfóníu-
hljómsveit Ís-
lands, skrifaði á Facebook: „Eins
og alþjóð er kunnugt er þjóðar-
hljómsveitin á ferð um Japan til
að breiða út hróður íslensks
tónlistarlífs. Þó ekki fáum við
sérsaumuð jakkaföt og dragtir
og burðumst með og þvoum
okkar eigin sokkapör unum við
hag okkar vel. Ekki hefur frést af
fjölmenni á leið frá Fróni til að
hlýða á leik okkar, en það er
jafngott því innfæddir hafa
hamstrað alla miða á tónleika
fyrir sig eina og sitja þétt. Ég
treysti þó á að almenningur fylg-
ist vel með för okkar og klæðist
kjólfötum meðan á þessu ferða-
lagi stendur.
Hér í Japan herja reglufesta og
ósveigjanleiki sem mér eru mjög
að skapi. Er það mín sannfæring
að margir kollega minna komi
betri og agaðri menn úr ferða-
lagi þessu.“
Dóra Magn-
úsdóttir, blaða-
maður og um-
hverfisgæðingur,
skrifaði: „Saga úr
hversdagsleikanum. 15 hressir
fjórðubekkingar fara í strætó með
kennaranum sínum og eiga að
steinhalda kjafti á meðan. Annars
verður strætóbílstjórinn reiður og
hendir börnunum út.“
AF NETINU
Langar þig í ný gleraugu
Það fyrsta sem Marilyn Monroe
leikkona tók eftir þegar hún
hitti Arthur Miller rithöfund,
voru gleraugun!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Velkomin til okkar