Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Blaðsíða 19
Morgunblaðið/Guðrún Hálfdánardóttir MÁRÍTANÍA ALSÍR MAROKKÓ TÚNIS NÍGERÍA GÍNEA FÍLA- BEINS- STRÖNDIN GANA EG YP TA LA N D SPÁNN KAMERÚN TJAD SÍERRA LEONE LIBERÍA BENÍNTOGO SÚDAN M I Ð J A R Ð A R H A F FRAKKKLAND Fatou Sanneh sem er frá Gambíu, hóf ferða- lagið með rútu í febrúar 2015, 14 ára gömul. LÍBÝA NÍGER BÚRKÍNA FASÓ MALÍ SENEGAL GAMBÍA ÍTALÍA Kom til Sikileyjar í september 2016, 16 ára gömul. Sikiley Gambía er í Vestur-Afríku og fékk sjálfstæði frá Bretum árið 1965. Fyrsti forseti lýðveldisins var Dawda Jawara sem réð ríkjum þar til honum var steypt af stóli í byltingu, sem fór fram án blóðsúthellinga, árið 1994. Þriðji forseti lýðveldisins Adama Barrow tók við völdum í fyrra. Höfuðborgin heitir Banjul en Serekunda er stærsta borg landsins. Landið er friðsælt en það er eitt minnsta ríki Afríku. Um helmingur þjóðarinnar býr við fátækt og er meðalævilengd karla 58 ár en kvenna 60 ár.Alls eru íbúarnir 1,9 milljónir talsins og aðhyllast flestir íslam eða kristna trú. 11.11. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Flóttafólki sem kemur til Evr- ópu hefur fækkað jafnt og þétt undanfarin tvö ár. Flestir þeirra sem koma til Sikileyjar eru frá Túnis, Erítreu, Súdan og Níger- íu. Algengt er að fólk greiði glæpamönnum um 600 þúsund krónur fyrir það eitt að fara yfir landamærin til Líbýu en landið er eitt hættulegasta land heims og fólk sem blaðamaður ræddi við á Sikiley segir dvölina þar þá erfiðustu á flóttanum. Í raun hafi þau verið öruggari um líf sitt á siglingunni yfir Miðjarðar- hafið en tæplega tvö þúsund flóttamenn hafa drukknað á þessari siglingaleið það sem af er ári. Í greinum sem birtar verða í Morgunblaðinu og mbl.is á næstu vikum verður rætt við ungmenni frá nokkrum ríkjum Afríku auk starfsmanna hjálp- arstofnana á Sikiley. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á reglum sem gilda um móttöku fólks sem sækir um vernd á Ítalíu undanfarna mán- uði og eru margir uggandi um sinn hag. Til stendur að herða regl- urnar enn frekar en fáir, ef nokkur, vita nákvæmlega hvern- ig frumvarpið mun hljóða þegar það kemur fyrir ítalska þingið. Einhverjar þeirra breytinga sem hafa verið gerðar standast ekki alþjóðleg lög að sögn hjálpar- starfsmanna. Líbýa verst af öllu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.