Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Blaðsíða 25
Það er fátt betra en heima-
strokkað smjör en það
geymist í um 2-3 vikur í ís-
skáp.
3 dl þeyttur rjómi
2 msk. hvítlaukur, pressaður
¼ bolli parmesanostur, fínt
rifinn
½ tsk. sjávarsalt
½ tsk. svartur pipar
Hellið rjómanum í krukk-
una, gott er að miða við að
hún sé tæplega hálffyllt.
Snúið handfanginu og hrær-
ið smjörið í um 10 mínútur
og uppskeran er ferskt,
heimalagað smjör. Hellið
umframvökva af. Svo má
hefjast handa og leika sér að
því að bragðbæta smjörið á
ýmsa vegu. Hér er press-
aður hvítlaukur settur sam-
an við ásamt rifnum par-
mesanosti og best er að
smakka smjörið til með
salti og pipar. Parmesanost-
urinn saltar smjörið svo
passið að það verði ekki of
salt. Þessi uppskrift gefur
um 100 g af smjöri.
Sem dæmi um hverju má
bæta í smjörið má nefna
basilíku, hunang, chili-pipar,
safa úr sítrusávöxtum og
það sem hverjum og einum
dettur í hug til að prófa sig
áfram.
Eigið
parmesan-
og hvít-
laukssmjör
Smjörstrokkur sem
þessi fæst til dæmis í
Kokku og þar kostar
hann 6.590 kr.
11.11. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Gufusoðið grænmeti er meinhollt
en slíkir pottar taka oft mikið
pláss. Í dag er hægt að fá sérstakar
litlar skálar til að hengja inn á
venjulegan pott.
Fyrir tvo
1 bolli kínóa, helst svart en má líka
nota hvítt
100 g brokkólí
200 g sætar kartöflur
nokkrir tómatar
safi úr tveimur appelsínum
safi úr ½ sítrónu
2 msk. jómfrúarolía
1 msk. rauðvínsedik
½ tsk. sjávarsalt
½ tsk. svartur pipar
1-2 laukar, þunnt sneiddir
½ bolli fersk mynta, steinselja eða
ferskar kryddjurtir að eigin vali
Sjóðið kínóa eftir leiðbeiningum á
pakka en bætið sítrónu- og appels-
ínusafanum út í vatnið, kínóa þarf
yfirleitt 15-20 mínútna suðu, látið
það svo kólna aðeins.
Gufusjóðið brokkólíið í 4-5 mín-
útur og sætu kartöflurnar í 7 mín-
útur. Blandið olíu, rauðvínsediki,
salti og pipar saman í stál og hrær-
ið lauk og kryddjurtum saman við.
Blandið kínóanu saman við og
setjið loks grófskorna tómata
saman við.
Þessar sniðugu skálar frá Joseph Joseph
til að gufusjóða grænmeti í innan á venju-
legum potti fást í Epal og kosta 2.950 kr.
Kínóasalat með
gufusoðnu grænmeti
Til er fólk sem finnst svo leið-
inlegt að skræla og kjarn-
hreinsa epli að það kemur í
veg fyrir að hinir girnilegustu
eplaréttir verði til. Fyrir það
fólk er afar sniðugt að eiga
góðan eplaskrælara til að
henda í dýrindis eplarétti svo
sem þennan.
Smjör eða olía til að smyrja
formið
1½ bolli grísk jógúrt, vel
hrærð
1 bolli sykur
2⁄3 bollar ólífuolía
50 ml safi úr sítrónu
3 egg
1-2 tsk. vanilludropar
700 g epli
2½ bolli hveiti
2½ tsk. lyftiduft
¾ tsk. matarsódi
½ tsk. salt
hnífsoddur múskat
3 tsk. kanill
½ bolli púðursykur
1⁄3 bolli valhnetur, saxaðar (má
sleppa)
2 msk. ósaltað smjör
Hitið ofninn í 175°C, á
blæstri. Smyrjð ferhyrnt
form, ágætt er að það sé
Takið nú helminginn af
deigblöndunni með eplabit-
unum og hellið í formið.
Takið svo helminginn af
púðursykursblöndunni og
dreifið yfir. Takið svo aðra
umferð eins; setjið deig-
blönduna yfir púðursykurs-
blönduna og að lokum fer
afgangurinn af púðursykurs-
blöndunni yfir allt.
Bakið í miðjum ofni í 45-
55 mínútur en passið að
hylja kökuna með álpappír
þegar ykkur finnst hún
mátulega gyllt og hafið ál-
pappírinn á þar til hún hefur
bakast alveg.
um það bil 25x35 cm.
Blandið jógúrt, sykri, ol-
íu, sítrónusafa, eggjum og
vanillu og hrærið saman.
Afhýðið og kjarnhreinsið
eplin og skerið í bita. Setjið
eplin út í jógúrtblönduna og
blandið vel saman þannig
að eplin verði öll þakin súr-
mjólk. Blandið því næst
hveiti, lyftidufti, matar-
sóda, múskati og ½ tsk. af
kanil saman við. Setjið til
hliðar.
Blandið saman í annarri
skál 2 tsk. kanil, púðursykri
og smjöri, t.d. með gúmmí-
sleikju.
Eplajógúrtkaka
Eplaskrælarar fást til dæmis hjá Byggt og búið eins og þessi
Grunwerg-eplaskrælari sem afhýðir, fjarlægir kjarnann og getur
þar að auki skorið eplin í ræmur. Þessi kostar 3.995 kr.
„Þvílíkur munur!
Ég bæði sef fastar og sofna fyrr. Ég ligg ekki andvaka á koddanum og
vakna endurnærð og úthvíld. Ég sef alla nóttina og er ekki sífellt að
vakna upp eins og áður. Ég mæli hiklaust með Melissa Dream fyrir alla“
Elsa M. Víðis
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Nánari á icecare.is
Valið besta
bætiefni við streituhjá National Nutrition
í Kanada
Betri svefn
Melissa Dream er
vísindalega samsett
náttúrulyf, hannað til að
stuðla að djúpri slökun
og værum svefni.
Þessi blanda inniheldur ekki efni
sem hafa sljóvgandi áhrif.