Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Qupperneq 26
Sennilega er það of seint í rass-inn gripið en um helgina ferfram í Camp HRH, Vauxhall Holiday Resort, Great Yarmouth, East Anglia, Wales, málmmessan Hard Rock Hell, ellegar Bárujárns- vítið. Meira en fimmtíu bönd koma fram á hátíðinni en að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á gamalt rokk og málm. Þarna eru meðal ann- arra Michael Schenker Fest, Saxon, Femme Fatale, Blitzkrieg, Thund- erstick, Voodoo Blood og Smoking Martha. Greinarhöfundur við- urkennir að vísu að hann þekkir hvorki haus né sporð á síðastnefnda bandinu – en nafnið er gott. Að sjálf- sögðu eigum við Íslendingar okkar fulltrúa á Hard Rock Hell en Vin- tage Caravan tróð þar upp í gær- kvöldi. Vel fór á því enda fellur sú fróma sveit, þrátt fyrir ungan aldur, vel að þemanu. Heiti hátíðarinnar ráðgáta Ástæða er til að nefna aðra hátíð sem fer fram um helgina, Clocken- flap í Hong Kong. Á heimasíðu há- tíðarinnar kemur fram að heiti há- tíðarinnar sé ráðgáta (jafnvel fyrir skipuleggjendur) en það breyti ekki því að hún sé orðin flaggskip í tón- listarlífi borgarinnar enda yfirlýst markmið hennar að færa alþjóðlegu tónlistarsenuna heim í garð og koma Hong Kong á tónlistarhátíðakortið. Svo virðist sem það gangi ljómandi vel en búist er við yfir sextíu þúsund gestum um helgina. Of seint er að rjúka af stað núna en það kemur ár eftir þetta ár. Verði allt með felldu. Tvær popphátíðir standa fyrir dyrum í Ástralíu um næstu helgi, Harbourlife í Sydney og Strawberry Fields í Tocumwal, og eru gestir minntir á að muna eftir sólarvörn- inni enda hásumar þar neðra um þessar mundir. Aragrúi banda kem- ur fram og engin leið að nefna eitt öðru fremur. Örlítið nær okkur, nánar tiltekið í Verbier í Sviss, fer raftónlistarhá- tíðin Polaris fram dagana 27. nóv- ember til 2. desember. „Búið ykkur undir að verða hátt, hátt uppi,“ segja skipuleggjendur og meina það í orðsins fyllstu merkingu, þar sem hátíðin er haldin í 2.000 metra hæð yfir sjávarmáli á Le Mouton- skíðasvæðinu. Gestir eru hvattir til að skíða og dansa meðan fæturnir bera þá og láta líða úr sér í heita pottinum þess á milli. Hugsa má sér galnari áform í skammdeginu. Greinarhöfundur tókst á loft þeg- ar hann sá fulltrúa Íslands á hátíð- inni en á lista yfir flytjendur stendur skýrum stöfum: Hatari. Við nánari eftirgrennslan kom þó í ljós að ekki er um íslensku spútnikgrúppuna að ræða, heldur brasilísk/svissneskan plötusnúð sem gegnir sama nafni. Og er aukinheldur kona. Bræðurnir halda uppi merkinu Sömu helgi fer fram í Fort Lauder- dale í Bandaríkjunum rokkhátíð sem kallast Riptide. Enga Íslendinga er heldur að finna þar en aðalnúmerin eru þó ekki af lakari endanum, Pa- Morgunblaðið/Styrmir Kári Gestir geta séð söngkonuna Sóleyju á Wonderfruit Festival í Pattaya í Taílandi dagana 13. til 16. desember næstkomandi. Hróður Íslands berst víða. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jacksynir, Saxon, Sóley og Gunna Tónelskir Íslendingar þurfa ekki að sækja vatnið yfir lækinn þessa helgina, enda Iceland Airwaves-hátíðin í algleymingi. En hvert snúa hátíðaþyrstir sér eftir það og fram að áramótum? Kíkjum aðeins á málið á heimsvísu. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Þessi er auðvitað fallinn frá en bræður hans fjórir halda uppi merkinu. Reuters Vintage Caravan tróð upp á Hard Rock Hell í Wales í gærkvöldi. 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2018 FERÐALÖG

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.