Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Page 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Page 27
nic! at the Disco, 311 og The Jack- sons. Og, já, það eru Jackson- bræðurnir einu sönnu, að því er næst verður komist. Þeir sem eftir lifa, Jermaine, Jackie, Tito og Mar- lon. Michael lést sem kunnugt er fyrir tæpum áratug. Sjötti bróðirinn er raunar til (er það á allra vitorði?), sá heitir Randy og er yngstur þeirra allra. Hann hefur hins vegar lítið komið við sögu sveitarinnar gegnum tíðina. En það er allt önnur saga. Sheila E verður líka á Riptide, svona ef The Jacksons er ekki nóg. Og Matt og Kim? Hver? Matt og Kim. Einnig Sugar Ray og Bishop Briggs. Þann 1. desember fer ein stærsta danstónlistarhátíð Asíu, ZoukOut, fram í Sentosa í Singapúr. Nætur- klúbbamenningin kemur þá upp á yfirborðið og hreiðrar um sig á ströndinni – fram á rauðan morgun. Meðal atriða má nefna Timmy Trumpet, Goldfish & Blink, Che- ’Molly, Hong Ghetto, Lenerd og Nash D. Kannski ekki stærstu nöfn- in í nætursenunni í Reykjavík en örugglega ekkert verri fyrir það. Balí er með vinsælli áfangastöðum landans í seinni tíð og þar um slóðir fer fram hátíð sem nefnist Djakarta Warehouse Project dagana 7. til 9. desember. Aðalspíran þar er maður sem kallar sig DJ Snake. Fjöldi Íslendinga leggur líka leið sína til Pattaya í Taílandi á ári hverju en þar hitta menn fyrir fjöl- listahátíðina Wonderfruit Festival dagana 13. til 16. desember. Og bingó, hér erum við aftur með Ís- lending, söngkonuna Sóleyju, sem fær glimrandi umsögn hjá aðstand- endum á heimasíðu hátíðarinnar. Önnur númer eru okkur meira fram- andi en þó er ástæða til að vekja at- hygli á Horse Meat Disco, þó ekki væri nema nafnsins vegna. Aftur berst leikurinn til Banda- ríkjanna 14. til 15. desember, nánar tiltekið til Los Angeles, þar sem hipphopp-hátíðin Rolling Loud LA fer fram. Ekki er í kot vísað þetta árið en fram koma meðal annarra, Post Malone, Lil Wayne, Wiz Kha- lifa, Ty Dolla $ign, Cardi B, Lil Uzi Vert og Gunna. Já, Gunna. Enn verðum við Íslendingar þó fyrir von- brigðum, Gunna er frá Bandaríkj- unum. Efnilegur rappari sem er karl en ekki kona og heitir ekki Guðrún, heldur Sergio Giavanni Kitchens. Íshellahugleiðsla og fisflug Fyrir þá sem stefna á að verða búnir snemma með jólaverkin skal bent á hátíðina Rise í frönsku Ölpunum, sem stendur í heila viku frá 15. til 22. desember. Gerist næturlöng partíin gestum hvimleið benda aðstand- endur á dægradvöl eins og íshella- hugleiðslu, alpajóga, snjóbíla og fis- flug. Hljómar ekki illa. Loks ber að nefna Valhalla- hátíðina í Amsterdam í Hollandi 22. desember. Mest eru það raunar heimamenn, lítt þekktir utan land- steinanna, sem koma fram en bíður ekki Valhöll okkar allra þá? Ty Dolla $ign kemur fram ásamt fleirum á Rolling Loud LA í desember. AFP Gunna í essinu sínu ásamt Lil Baby á tónleikum í Miami fyrir skemmstu. Gunna er karl en ekki kona. Og bandarískur. AFP ’ Enn verðum við Ís-lendingar þó fyrirvonbrigðum, Gunna erfrá Bandaríkjunum. Efni- legur rappari sem er karl en ekki kona og heitir ekki Guðrún, heldur Sergio Giavanni Kitchens. Biff gamli Byford, söngvari Saxon, með grjóthörðum aðdáanda. 11.11. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 SÍGILDIR SUNNUDAGAR Fyrsta flokks kammertónlist Sígildir sunnudagar eru klassísk tónleikaröð þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval kammertónleika. Sunnudaga kl. 16:00 í Hörpu Rekaviðarhálsmen frá kr. 15.500 Teketill úr postulíni kr. 36.500 Smádúkur úr lífrænni bómull kr. 4.900 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Roðtöskur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.