Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.11. 2018 HEILSA Þessar stöðvar vinna aðendurhæfingu og hafabjargað mörgum frá einum erfiðasta sjúkdómi samtímans, of- fitunni.“ Þannig komst Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og landbún- aðarráðherra, að orði í grein í Morgunblaðinu 3. nóvember síðast- liðinn. Þar ræddi hann um það hvað líkamsræktarstöðvar væru dýrmætar í samfélagi nútímans. Og Guðni er reyndar lifandi sönn- un þess að lengi er hægt að taka sig á. Fyrir nokkrum árum varð hann var við að blóðsykurinn fór hækkandi „og að honum læddist einn duldasti og hættulegasti sjúk- dómur samtímans,“ sykursýkin. Hann sneri vörn í sókn og ákvað að taka til í eigin ranni. Skömmu eftir að honum varð ljóst að hann stefndi hraðbyri í átt að því að teljast sykursjúkur hitti hann Kára Stefánsson sem lagði honum lífsreglurnar. „Eins og menn vita er Kári færastur lækna. Ég sagði honum tíðindin og það stóð ekki á svari: „Þetta er enginn sjúkdómur, hel- vítis auminginn þinn. Þetta getur þú læknað sjálfur og sett út fyrir dyr. Til þess þarftu hreyfingu og bætt mataræði.““ Hann tók ráðum læknisins Á tveimur árum skóf karlinn af sér um 18 kg og hefur sjaldan eða aldrei verið í betra formi. Eftir lestur greinarinnar sló ég á þráðinn til Guðna. Við höfum oft rætt saman og ég var sannfærður um að erindinu yrði vel tekið. „Viltu ekki mæta með mér í tíma hjá Ívari Guðmundssyni og lyfta lóðum í klukkutíma eða svo?“ sagði ég og það stóð ekki á svari: „Hvar og hvenær á ég að mæta?“ Ekkert hik og engir fyrirvarar. Á næsta ári fagnar Guðni stór- afmæli og hann virðist staðráðinn í að halda í góða heilsu. Líkt og hann sagði í greininni fyrrnefndu þegar hann ræddi um stöðvarnar góðu: „Hinir sem eldri eru vinna gegn hrörnun og ellinni, ungir efl- ast, eldri yngjast upp.“ Guðni fetaði tvíþættan veg að betri heilsu að eigin sögn. Annars vegar breytti hann mataræðinu mikið en svo fór hann að hreyfa sig meira en hann hafði áður gert. „Ég tók út sykureitrið og lagði meiri áherslu á hreinni fæðu. Þar leikur íslenskur landbúnaður auðvit- að algjört lykilhlutverk, íslenska lambið, smjörið og mjólkurafurðir ýmiss konar. Það er besta prótín í heimi. Það er prótínið í mínum vöðv- um.“ Hann segist hins vegar ekki hafa sleppt brauðinu alveg eins og sum- ir telja lykilinn að öllum árangri í þessum efnum. „Ég tók út óholla brauðið. Núna vel ég gróft og hollt brauð og stilli neyslunni í hóf.“ Og hreyfingin hefur fylgt með. Hann mætir reglulega í World Class, bæði í Laugum og á Sel- tjarnarnesi. Þar finnst honum gott að fara í tækin, svitna og lyfta lóð- um. „Eftir sextugt fara vöðvarnir að rýrna nema unnið sé gegn þeirri þróun með því að svitna og lyfta lóðum. Þá finnst mér líka mjög mikilvægt að teygja vel og vinna gegn bóndabeygjunni sem maður sá aldraða í þegar maður var barn og unglingur.“ En það var fleira sem Guðni vildi varast með breyttum lífsstíl en sykursýkin. Hann var líka farinn að mælast hár í járni. „Of hátt járn í blóði getur verið banvænt og valdið allskonar sjúk- dómum, m.a. geðveiki. Það kemur reyndar engum á óvart þótt stjórn- málamenn séu með snert af geð- veiki en það verður að vinna gegn hættunni á slíkum vágesti sé þess nokkur kostur.“ Og Guðni segir að áhrifin af breyttum lífsstíl hafi m.a. birst í mun lægra járni í blóði hans. „Við Brúnastaðamenn erum auð- vitað miklir járnkarlar og það hef- ur ekkert breyst. Ég er einfaldlega hraustari en áður þótt minna sé af járni í æðum.“ Tókum vel á því Guðni lét ekki sitt eftir liggja á æf- ingunni. Fimmtudagarnir byrja á bekkpressunni sem er mín uppá- haldsæfing (ekki vegna þess að ég er góður í henni). En við létum ekki þar við sitja. Á milli lausra lóða og tækja þræddum við salinn. Var engu líkara en að hann væri að munda atgeirinn þegar hann æfði upphandleggina og hann þyrfti sannarlega ekki að æfa sig mikið til þess að geta stokkið hæð sína í fullum herklæðum eins og Gunnar forðum. Að lokinni æfingu kvaddi hann mig með þessum orð- um: „Segðu öllum sem heyra vilja, ekki síst þeim sem feitir eru, að láta mæla í sér sykurinn. Hann er eins og vofa að næturlagi. Þú ert kominn í flasið á henni áður en þú veist af og þá er erfitt að losna úr klóm hennar.“ Með íslenskt sveitaprótín í vöðvum Það er töggur í Guðna og eftir að hafa lesið grein þar sem karlinn dásamaði íslenskar lík- amsræktarstöðvar gat ég ekki annað en dregið hann með í tíma til Ívars. Þar reif hann í lóðin „eins og að enginn væri morgunmaturinn“. Morgunblaðið/Hari Það er töggur í Guðna og hann gaf sér yngri mönnum ekkert eftir þegar kom að lyftingunum á fimmtudag. Pistill Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR 92,9 kg 84,6 kg 83,4 kg Upphaf: Vika 8: Vika 9: 33.807 33.324 12.749 12.641 3 klst. 4 klst. HITAEININGAR Prótein 24,2% Kolvetni 31,4% Fita 44,4% Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Spiced Honey litur ársins 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.