Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.11.2018, Page 35
Á síðasta ári kom út fyrstaskáldsaga Hjalta Halldórs-sonar, sem nefndist Af
hverju ég? og sagði frá ungum pilti,
Agli Grímssyni, nemanda í Grunn-
skóla Borgarness, sem var sífellt að
lenda í vandræðum. Bókinni var vel
tekið og hér í blaðinu sagði til að
mynda gagnrýnandi hana vera kær-
komna viðbót í barnabókaflóruna,
sniðuga og öðruvísi. Fyrir stuttu
kom svo út önnur skáldsaga Hjalta
og nefnist Draumurinn.
Hjalti Halldórsson er kennari í
Langholtsskóla, kennir í unglinga-
deild, og segir að kennsla sé mjög
skapandi starf. „Maður er alltaf að
finna upp á nýjum verkefnum og
nýjum kennsluháttum til að virkja
nemendur, þannig að það er mjög
frjótt umhverfi. Svo vinn ég líka
með mjög skemmtilegu fólki, er
alltaf að segja krökkunum sögur og
í skemmtilegum samskiptum við
þau svo það ýtir allt undir þá sköp-
un sem það er að skrifa.“
Hjalti segist hafa gengið með það
mjög lengi að skrifa, hann hafi
langað til þess en alltaf fundið ein-
hverjar afsakanir fyrir því að setj-
ast ekki niður enda sé það líka svo-
lítið ógnvekjandi að setjast niður og
fara að vinna í draumnum. „Svo
ákvað ég að láta slag standa fyrir
þremur árum og byrjaði að skrifa
með það fyrir augum að gefa það út
og það endaði í Af hverju ég? sem
kom út í fyrra. Þá var ég búinn að
opna á þetta og hélt því áfram.“
— Í Af hverju ég? sækir þú inn-
blástur í Íslendingasögur og eins í
Draumnum.
„Af hverju ég? á sterk líkindi
með Egils sögu, en þó ég hafi
ákveðið að halda áfram með þá pæl-
ingu að nota Íslendingasögu sem
innblástur, nota núna Grettis sögu,
túlka ég hana á minn hátt. Það sem
ég tek úr henni er metnaður Grettis
að takast á við hverja áskorun og
að vera bestur. Þegar ég svo byrj-
aði að skrifa og vinna úr efniviðnum
þá fjarlægðist ég upprunalegu sög-
una smám saman svo það eru ekki
eins sterk líkindi með Grettis sögu
og Draumnum. Það er frekar að
Grettis saga sé innblástur, enda er
aðalpersónan drifin áfram af mikl-
um metnaði, þeim draumi að slá í
gegn á knattspyrnuvellinum og það
þarf að berjast við ýmsar hindranir
í umhverfinu og sem búa innra með
okkur.“
— Þetta er önnur bókin á tveim-
ur árum, ertu búinn að finna fjölina
þína?
„Já, það kvikna alltaf fleiri og
fleiri hugmyndir eftir því sem mað-
ur er duglegri að vökva skálda-
blómið inni í sér. Það er alveg hægt
að halda áfram með þessa pælingu.
Íslendingasögurnar eru klassík af
því þær segja okkur eitthvað á öll-
um tímum, það er bara spurning
um að finna hvað það er sem maður
vill koma á framfæri.
Fólk hefur ekki breyst, það eru
sömu þrár eftir frelsi, umhyggju,
metnaði og árangri sem drífa okkur
áfram. Ég fæ alltaf fleiri og fleiri
hugmyndir eftir því sem ég grúska
meira í þessu. Ég er þegar byrj-
aður á næstu bók en maður veit
aldrei í þessum bransa hvað kemur
út og hvenær, en ég er búinn að
finna það sem virkar fyrir mig að
skrifa um. Svo væntanlega þróast
ég og forsendur breytast og seinna
fer ég að vinna í einhverju allt öðru,
eins og gengur.
Þetta er ofsalega skemmtilegt og
það skemmtilegasta í þessu er að
hitta krakka og lesa fyrir þau og
vera í samtali við þau um bækur.
Það er það sem gerir þetta þess
virði.“
Sköpunin að skrifa
Hjalti Halldórsson sækir innblástur til barnabókaskrifa í Íslendinga-
sögurnar, enda segir hann þær segja okkur eitthvað á öllum tímum.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Hjalti Halldórsson
segist alltaf fá fleiri og
fleiri hugmyndir eftir
því sem hann fæst
meira við ritstörfin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
11.11. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA Í OKTÓBER
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Mín sökClare Mackintosh
2 Sænsk gúmmístígvélHenning Mankell
3 MiðnæturgengiðDavid Walliams
4 Beint í ofninnNanna Rögnvaldardóttir
5 Sextíu kíló af sólskiniHallgrímur Helgason
6 SvikLilja Sigurðardóttir
7 Prjónað af ástLene Holme Samsöe
8 NærbuxnaverksmiðjanArndís Þórarinsdóttir
9
Jól í Litla bakaríinu við
Strandgötu
Jenny Colgan
10 Verstu börn í heimi 2David Walliams
11 SálumessaGerður Kristný
12 Norrænu goðinJohan Egerkranz
13 LjóðpundariÞórarinn Eldjárn
14 Smáa letriðLinda Vilhjálmsdóttir
15 Afmæli hjá LáruBirgitta Haukdal
16
Amma – draumar í lit
Hólmfríður Helga
Sigurðardóttir
17
Skiptidagar – nesti handa
nýrri kynslóð
Guðrún Nordal
18
Binna B. Bjarna: Djúpa
laugin
Sally Rippin
19 Heyrðu Jónsi! GistivinirSally Rippin
20 HeiðurSólveig Jónsdóttir
Allar bækur
Ég er með nokkrar bækur í takinu
núna, en kláraði síðast Horfið ekki
í ljósið eftir Þórdísi Gísladóttur.
Hún er æðisleg lýsing á tíðaranda
og stemningu, og
þessum hryllilega
vandræðagangi við
að koma sér til
manns. Hún er hlý
og kaldhæðin og
fyndin, og svo eru
margar fallegar sen-
ur og sögur í henni.
Þar áður las ég the Nix eftir
Nathan Hill, bráðskemmtilega
bandaríska skáld-
sögu sem reynir að
ná utan um banda-
rískt þjóðfélag og
menningu í einum
hlemmistórum bita.
The Prospector
(Le Chercheur d’Or
á frönsku) eftir J.M.G. de Clezio
kom til mín eftir krókaleiðum,
hún hlýtur að vera
ein fegursta skáld-
saga sögunnar. Hún
gerist ýmist á Márit-
íus og öðrum eyjum
í Indlandshafi eða í
skotgröfunum í fyrri
heimsstyrjöldinni, og skilur eftir
sig saltbragð á vörunum og púð-
urlykt í nösunum á manni. Hún er
um leit að sjóræningjafjársjóði og
sjálfri hamingjunni.
ÉG VAR AÐ LESA
Sigríður
Hagalín
Sigríður Hagalín Björnsdóttir er
fréttamaður og rithöfundur.
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16
Mikið úrval af eigin
hönnun og framleiðslu
Gerið verðsamanburð
Kjóll kr. 9.990
Tunika kr. 8.990