Morgunblaðið - 22.11.2018, Side 1
Fyrstu nemendatónleikar Söngskólans í Reykjavík á þessu
námsári voru haldnir í Sturluhöllum, nýju húsnæði Söngskól-
ans í Reykjavík við Laufásveg, síðdegis í gær. Nemendur
grunndeildar skólans stigu á svið og fluttu íslensk og erlend
þjóðlög. Einnig voru haldnir örstuttir garðtónleikar undir
hlyni sem var ljósum prýddur og boðið upp á heitt súkkulaði.
Morgunblaðið/Eggert
Sungið í Sturluhöllum
F I M M T U D A G U R 2 2. N Ó V E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 275. tölublað 106. árgangur
ÆVINTÝRA-
OG HEIMÞRÁIN
TOGAST Á
FYRIRTÆKI
HUGSA
STAFRÆNT
GEYMIR
HELGA DÓMA
TERESU
VIÐSKIPTAMOGGINN SKRÍN KVENDÝRLINGS 16SIGMAR MATTHÍASSON 39
Formaður
Kirkjugarða-
sambands Íslands
segir að það við-
bótarframlag sem
meirihluti fjár-
laganefndar legg-
ur til að renni til
kirkjugarðanna
sé aðeins um 10%
af því sem vantar
upp á að ríkið
standi við samninga sína. Ef þessi við-
bót fari ekki inn í einingaverð fyrir
kostnað við rekstur kirkjugarða og
verði áfram, sé þetta skammgóður
vermir. Meirihluti fjárlaganefndar
leggur til að Kirkjugarðasambandið
fái tímabundið 50 milljóna króna
framlag á næsta ári. »2
Dugar kirkjugörð-
unum ekki
Hafnarfjörður
Mörg leiði lýst upp.
Gangi allt eftir áætlun verða
stofnskjöl vegna þróunarfélags
Finnafjarðarhafnar og rekstrar-
félags hafnarinnar undirrituð fyrir
lok ársins.
Samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra hefur veitt 18 milljóna
verkefnastyrk vegna undirbúnings-
vinnunnar.
Gert er ráð fyrir miklu atvinnu-
lífi við höfnina, m.a. 75.000 tonna
fiskeldi á landi. »4
18 milljóna styrkur
vegna Finnafjarðar
Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) hef-
ur sent út tölvubréf til sambandsaðila
og aðildarfélaga innan ungmenna-
félagshreyfingarinnar til að vara við
svikapóstum. Reynt er að véla gjald-
kera til að leggja inn fjárhæðir á er-
lenda reikninga. Tókst það í að
minnsta kosti einu tilviki þegar gjald-
keri deildar ungmennafélags lagði
700 þúsund kr. inn á slíkan reikning.
Fyrr á árinu tókst netsvikurum að
ná fjármunum út úr tveimur íþrótta-
félögum, 500 þúsund kr. í öðru tilvik-
inu. UMFÍ telur að nú sé ný svika-
hrina hafin.
Útpæld svik
Auður Inga Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, segir að þetta
séu útpæld svik. Glæpamennirnir hafi
undirbúið sig vel. Þeir viti nöfn gjald-
kera og formanna deilda og félaga.
Noti nöfnin þegar þeir sendi bréf til
gjaldkera og láti það líta út sem beiðni
frá formanni eða framkvæmdastjóra
viðkomandi félags eða deildar. Gjald-
kerinn er beðinn um að millifæra fjár-
hæð á erlendan reikning og það þurfi
að gerast strax.
Auður Inga segir að ungmenna-
félögin liggi vel við höggi. Fólkið sé
yfirleitt að sinna stjórnunarstörfum í
sjálfboðavinnu og sé því ekki með
sömu fastmótuðu verkferlana og fyr-
irtæki með starfsfólk á skrifstofum.
Því miður sé sjaldnast hægt að ná
þessum fjármunum til baka þótt strax
sé brugðist við með því að hafa sam-
band við viðkomandi banka og lög-
reglu. Þeir séu glataðir. Beinir UMFÍ
þeim tilmælum til forystumanna fé-
laganna að breyta verklagi. Besta
leiðin er að gjaldkeri, fjármálastjóri
eða hver sá sem fær póst í nafni for-
manns eða framkvæmdastjóra hringi
í viðkomandi og kanni hvort hann hafi
sent skeytið.
Svindlarar herja á
ungmennafélögin
Landsmót Stjórn UMFÍ hefur varað aðildarfélög sín við svikapóstum.
MStálu frá ungmennafélagi »4
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hefur tekist að stela 1-2 milljónum úr sjóðum deilda
Allt stefnir í hörð átök á hluthafa-
fundi í tryggingafélaginu VÍS 14.
desember. Til fundarins er boðað til
að kjósa nýja stjórn í félaginu. Það
er gert að kröfu tveggja af fjórum
stærstu hluthöfum félagsins, Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna og Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
Hermt er að sjóðirnir freisti þess
með stuðningi annarra stórra hlut-
hafa að ná tveimur til þremur nýjum
stjórnarmönnum og stilla í kjölfarið
til friðar í félaginu. Mikill styr hefur
staðið um VÍS um nokkurt skeið.
Stutt er síðan tveir sögðu sig úr
stjórninni vegna ágreinings við
meirihluta stjórnar.
»ViðskiptaMogginn
Morgunblaðið/Kristinn
VÍS Átök fram undan um stjórnina.
Átök um
stjórnina
Slagur í VÍS