Morgunblaðið - 22.11.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 22.11.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018 safnast hefur fyrir á skrifstofu Spalar og við bætist svo allt það sem á eftir að skila sér til mánaðamóta. Viðskiptavinir Spalar eru hvattir til að skila veglyklum og afsláttarmiðum fyrir lok nóvember og þessa dagana er umtalsverð ös á afgreiðslustöðum. Í desember er stefnt að því að ljúka uppgjöri við alla þá sem skiluðu lykl- um og miðum fyrir lok nóvember. Jafnframt því mun starfsfólk Spalar leggja sig fram um að reyna að ná sambandi við þá sem ekki létu í sér heyra fyrir 1. desember en eiga inni á áskriftarreikningum hjá félaginu. Hægt að er að nálgast upplýsingar um endurgreiðslur á vefsíðunni www.spolur.is. Unnið verður að lokauppgjöri Spalar og frágangi af ýmsu tagi fram á árið 2019. Félaginu verður síðan slitið. um (andvirði ónotaðra ferða á veg- lykli) þegar ríkið tók við rekstri Hval- fjarðarganga 1. október sl. eða um 120 milljónir króna af alls 231 milljón króna, sem var staðan í lok sept- ember. Verri skil á afsláttarmiðum Afsláttarmiðar hafa skilað sér hlut- fallslega verr en veglyklar, eins og fé- lagið bjóst við. Alls voru 111.000 ónot- aðir miðar útistandandi í lok septem- ber, þegar Spölur hætti innheimtu veggjalda, að verðmæti um 71 milljón króna. Nú hefur Spölur greitt á átjándu milljón króna fyrir liðlega 27.000 miða. Þessar tölur eiga einungis við um frágengin uppgjörsmál en mun fleiri veglyklar og afsláttarmiðar eru komnir í hús og bíða úrvinnslu. Nokk- urn tíma tekur að vinna úr því sem Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Spölur hefur sent út lokaútkall til þeirra sem eiga fjármuni hjá félaginu. Allra síðasti dagur til að skila veglykl- um og ónotuðum afsláttarmiðum í Hvalfjarðargöng er föstudagurinn 30. nóvember. Enn eru ógreiddar vel á annað hundrað milljónir króna. Búið er að endurgreiða um 195 milljónir króna samtals, þar af um 120 milljónir sem eru endurgreidd veggjöld, um 58 milljónir í skilagjöld af veglyklum og ríflega 17 milljónir í endurgreiðslu á afsláttarmiðum. Þetta upplýsir Anna Kristjáns- dóttir, framkvæmdastjóri Spalar. Starfsmenn félagsins hafa nú greitt viðskiptavinum félagsins lið- lega helming þeirra fjármuna sem þeir áttu á áskriftarreikningum sín- Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson Skrifstofa Spalar Starfsfólk með fangið fullt af veglyklum og afsláttarmiðum sem fólk hefur skilað inn undanfarið. Spölur hefur sent út lokaútkall í inneignir  Á annað hundrað milljónir ógreiddar  Vika til stefnu Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Nú þegar átta flokkar eru komnir í borgarstjórn þá virkar hreinlega gamla kerfið ekki. Ég tel því mikil- vægt að fjölga bæði borgarstjórnar- fundum, þannig að þeir verði alltaf haldnir einu sinni í viku, og borg- arráðsfundum sem yrðu þannig tvisvar sinnum í viku,“ segir Vigdís Hauksdóttir, fulltrúi Miðflokksins í Reykjavík, við Morgunblaðið. Vigdís hefur nú nokkrum sinnum vakið athygli á því að hún telji brýnt að fjölga fundum til að tryggja mál- um nægjanlega umræðu. „Ráðhúsið er ekki undirbúið fyrir fjölgun borg- arfulltrúa enda engin rök fyrir því að fjölga úr 15 fulltrúum í 23. Á fundi borgarráðs lagði ég til að öllum mín- um málum yrði frestað til næsta fundar í stað þess að leggja þau fram órædd. [...] Það er allt í vitleysu hérna,“ sagði Vigdís meðal annars í færslu á Facebook fyrir skemmstu. Borgarstjórnarfundir eru vana- lega haldnir klukkan 14 á þriðjudög- um. Vigdís segir hins vegar „ekkert vit“ í þeirri tímasetningu og leggur til að fundir borgarstjórnar hefjist klukkan 9, líkt og í borgarráði, til að tryggja eðlilega fundarlengd. „Það er ekkert vit í því að byrja borgarstjórnar- fundi klukkan 14 og leyfa þeim að standa langt fram á nótt. Slíkt fyrir- komulag er hvorki fjölskyldu- né fjöl- miðlavænt og heftir upplýsinga- flæði út af fundin- um,“ segir Vigdís og bætir við að nú- verandi fyrirkomulag sé einnig líklegt til þess að auka á pirring þeirra sem fundina sækja. „Það breytast allir fundir í eins konar krísufundi.“ Betra væri að klára málin Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir málum of oft slegið á frest innan borgarinnar. Hann sér þó ekki endilega ástæðu til að fjölga fundum, betra væri að nýta fundina betur en nú er gert. „Það að fjölga borgarfulltrúum hefur ekki létt á kerfinu, ég held að það sé alveg öruggt. En síðan er hitt að sömu málin eru lengi að fara í gegnum kerfið, sem er að mínu mati mjög óskilvirkt,“ segir Eyþór og bætir við að best sé einfaldlega að klára mál og þurfa þannig ekki að fjölga fundum frá því sem nú er. „En það eru fyrirspurnir sem hafa tafist í marga mánuði og mál hafa legið ókláruð árum saman, en dæmi um það er skólastefnan [sem sam- þykkt var í fyrradag]. Það var fyrst ákveðið að fara af stað með hana árið 2009, eða fyrir níu árum síðan. Það myndi því auðvelda hlutina mjög að klára málin,“ segir hann. Betra skipulag og skilvirkni Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir alla reiðubúna til að finna leiðir til að gera fundi borgarinnar skilvirkari. „En þetta er auðvitað allt undir okkur komið, sem sitjum á fundun- um, og þar eru menn ólíkir. Sumir vilja dvelja við einhver mál á meðan aðrir vilja það ekki,“ segir Líf og bætir við að borgarfulltrúar geti mætt mun betur undirbúnir og lesn- ir til fundar. „Ég held það sé óþarfi að fjölga fundum í kerfinu. Borgarfulltrúar þurfa að átta sig á því að minna er meira. Það ætti frekar að taka yfir- gripsmikil mál og fara betur yfir þau í umræðum í stað þess að skauta yfir fjölmörg minni mál,“ segir hún. Spurð hvaða áhrif fjölgun funda myndi hafa á minni flokka svarar Líf: „Ég er eini borgarfulltrúi Vinstri grænna og ég hef meira en nóg að gera, enda þarf ég að dekka allt og vera inni í öllum málum. Það er því mjög mikið að gera hjá eins manns flokkum. Að fjölga fundum yrði því mjög snúið,“ segir hún. Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata og forseti borgarstjórnar, tekur í svipaðan streng og vill sjá meiri skilvirkni á fundum. „Fundir í borgarstjórn hafa verið að standa yfir til klukkan 11 og 12 á kvöldin og það gerðist aldrei á síð- asta kjörtímabili, nema kannski í tengslum við fjárhagsáætlun,“ segir hún og bætir við að þetta fyrirkomu- lag sé ekki mjög hentugt. „Ég held að tíma borgarfulltrúa sé ekkert sérstaklega vel varið á svona löngum fundum, enda ekki hægt að búast við góðum umræðum þegar fólk er farið að þreytast. Eins held ég að tíma borgarfulltrúa sé heldur ekkert sérstaklega vel varið með því að fjölga fundum. Ég held að lausnin felist í því að vera markvissari á fundum og nýta þannig tíma okkar betur,“ segir Dóra Björt. „Ekki nema í algjörri neyð“ Kolbrún Baldursdóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins, vill að fundir borgarstjórnar hefjist klukkan 9 í stað 14. „Þegar fundir dragast svona þá eru allir orðnir steiktir í hausnum, þetta er því mjög erfitt,“ segir hún og bætir við að erfitt yrði fyrir Flokk fólksins, sem er eins manns flokkur í borginni, að fjölga fundum. „Ég vil það ekki nema í algjörri neyð.“ Fleiri fulltrúar og lengri fundir  Fulltrúi Miðflokksins vill fjölga fundum í borgarstjórn og borgarráði  Borgarfulltrúar segja ekkert vit í því að funda inn í nóttina  Fjölgun fulltrúa hefur ekki létt á kerfinu, segir oddviti Sjálfstæðisflokksins Eyþór Arnalds Dóra Björt Guðjónsdóttir Kolbrún Baldursdóttir Líf Magneudóttir Vigdís Hauksdóttir -24. nóvember Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 90% AFSLÁ TTUR ALLT A Ð „Það var sláandi að sjá ríkisstjórn- ina fella hverja góða tillöguna á eftir annarri,“ sagði Logi Einarsson, for- maður Samfylkingarinnar, eftir að stjórnarmeirihlutinn á Alþingi hafn- aði í gær öllum 17 breytingartillög- um Samfylkingarinnar við fjárlaga- frumvarpið fyrir árið 2019. Fraumvarpið var afgreitt til 3. um- ræðu í gærkvöldi. Allar breytingar- tillögur meirihluta fjárlaganefndar voru samþykktar. Í frétt frá Samfylkingunni segir að ríkisstjórnin hafi frekar kosið lækkun til öryrkja og aldraðra, lægri húsnæðisstuðning, lægri framlög til framhaldsskólanna og lægri veiði- gjöld. Flokkurinn telur að fjárlaga- frumvarpið tryggi hvorki félagsleg- an né efnahagslegan stöðugleika og vanræki félagslega innviði. Ekki sé heldur ráðist í nauðsynlega tekju- öflun til að tryggja grunnþætti vel- ferðarkerfisins. Stefna ríkisstjórn- arinnar sé óábyrg og ósjálfbær og láti byrðarnar á þá sem minnst hafi á milli handanna þegar kreppir að og hlífi breiðu bökunum. Ekkert sé gert til að mæta kröfum verkalýðshreyf- ingarinnar og tryggja réttlæti. ASÍ gagnrýnir einnig Miðstjórn Alþýðusambands gagn- rýndi einnig meirihluta fjárlaga- nefndar Alþingis í ályktun í gær. Sakar hún meirihlutann um að reka óábyrga fjármálastefnu. Hún segist hafa ítrekað varað við því að veikja tekjustofna ríkissjóðs með skatta- lækkunum sem séu til hinna tekju- hæstu. Fram kemur í ályktuninni að Alþýðusambandið muni aldrei sætta sig við að launafólki, öldruðum og öryrkjum verði gert að axla byrð- arnar af óábyrgri ríkisfjármála- stefnu. Mikilvægara sé að „stórbæta lífskjör, styrkja velferðina og tryggja almenningi gott húsnæði á viðráðanlegum kjörum,“ segir í ályktuninni. Stefnan sögð ósjálf- bær og óábyrg  Hörð gagnrýni á fjárlagafrumvarpið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.