Morgunblaðið - 22.11.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018
Ögmundur Jónasson, fyrrverandiráðherra VG, telur að flokkur-
inn hafni samþykkkt þriðja orku-
pakkans. Vaxandi andstaða við sam-
þykkt hans, ekki síst innan
Framsóknarflokks-
ins og Sjálfstæðis-
flokksins, er tilefni
skrifa Ögmundar
sem segist reikna
með að VG leggist
einnig gegn sam-
þykkt pakkans:
Annað væri hreinlega órökrétt.“Vísar Ögmundur til þess að VG
beitti sér gegn því að fyrsti og annar
orkupakki ESB yrðu samþykktir
hér á landi á sínum tíma en þriðji
pakkinn er framhald þeirra: „Er
málið þá ekki úr sögunni, afgreitt?“
Ögmundur segir að EES-samningurinn gerist sífellt
ágengari á íslensk innanríkismál.
Þar takist á lýðræðislegur vilji og
„málmköld markaðshyggja“.
Hvað þriðja orkupakkann varðarsegir Ögmundur að hann herði
enn fastar tök markaðshyggjunnar
á orkulindum þjóðarinnar:
Vonandi verður umræða umþriðja orkupakkann til þess að
opna á gagnrýna og upplýsta um-
ræðu um EES-samninginn, kosti
hans og þá ekki síður galla, sem eru
ótvíræðir og hafa að mínum dómi
valdið miklu félagslegu og efnahags-
legu tjóni.“
Þessu til viðbótar má nefna eitt„smáatriði“ til sögu sem er að
samþykkt pakkans gengi gegn
stjórnarskránni, sem fyrri skref
sama máls gerðu einnig. Þau voru
„agúrkusneiðing ESB“ sem lætt var
í gegn.
Nú er bitinn orðinn of stór.
Ögmundur
Jónasson
Sjálfdautt?
STAKSTEINAR
Björgun stefnir að því að endurnýja að hluta
skipakost félagsins á næstu misserum. Annað
hvort verður það gert með nýsmíði dæluskips eða
fjárfestingu í notuðu skipi. Ljóst sé að ferlið muni
taka töluverðan tíma. Þetta kemur fram í frétt á
heimasíðu fyrirtækisins. Eins og fram hefur kom-
ið í blaðinu hafa Vegagerðin og Björgun undirritað
verksamning um dýpkun Landeyjahafnar næstu
þrjú árin, þ.e. 2019 -2021.
Björgun átti langlægsta tilboð í dýpkun í og við
Landeyjahöfn, 620 milljónir. Núverandi verktaki,
belgíska fyrirtækið Jan De Nul, bauð 1.179 millj-
ónir. Björgun bauð núverandi skipa- og tækjabún-
að félagsins til verksins sem henta við mismunandi
aðstæður og á mismunandi dýpkunarsvæðum.
Það eru dæluskipið Dísa, efnisflutningapramm-
inn Pétur mikli og gröfupramminn Reynir. Einnig
mun stóra sanddæluskipið Sóley koma að verkinu,
þar sem það getur athafnað sig. Björgun hefur áð-
ur unnið við dýpkun Landeyjahafnar og var Dísa
þá aðallega notuð. Miðað er við að um 300 þúsund
rúmmetrum af sandi verði dælt úr höfninni árlega
næstu þrjú árin. sisi@mbl.is
Björgun endurnýjar skipastólinn
Mun dýpka Landeyja-
höfn næstu þrjú árin
Morgunblaðið/sisi
Björgun Dísa hefur áður unnið við dýpkunina.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) fer hörðum orðum um ráðstöf-
un vegafjár til ganganna undir
Húsavíkurhöfða og Vaðlaheiðar-
ganga í umsögn við þingsályktunar-
tillögurnar um samgönguáætlun,
sem nú eru til umfjöllunar í umhverf-
is- og samgöngunefnd Alþingis.
FÍB segir um Húsavíkurgöngin,
sem grafin voru milli hafnarinnar við
Húsavík og iðnaðarsvæðisins á
Bakka, að þau séu undarleg opinber
framkvæmd, vegfarendur um allt
land hafi borgað fyrir þau en megi
hins vegar ekki nota eigin veg.
,,Í upphafi var gert ráð fyrir að
kostnaður við framkvæmdina við
Bakka yrði 1,8 milljarðar króna.
Endanlegur kostnaður er um 4 millj-
arðar króna. Allur viðbótarkostnað-
urinn rann létt í gegnum fjárveit-
ingavaldið og enginn virðist bera
ábyrgð á þessari misnotkun á al-
mannafé og framúrkeyrslu á fram-
kvæmdatímanum,“ segir í umsögn
FÍB.
Ennfremur segir þar að vegurinn
um göngin sé lokaður til afnota fyrir
aðra vegfarendur en þá sem eiga er-
indi til eða frá PCC kísilverksmiðj-
unni og hann þjóni á engan hátt al-
mennum vegfarendum.
,,Það nýjasta í þessum farsa er að
nú er þess krafist, og ráðherrar í rík-
isstjórn Íslands taka undir það, að
rekstur þessara ganga og vegar sem
aðeins er fyrir PCC sé kostaður af
vegasjóði almennra vegfarenda.“
Framúrkeyrslan við Vaðlaheið-
argöng stefnir yfir 10 milljarða
Um fjármögnun Vaðlaheiðargang-
anna segir FÍB að Alþingi hafi þar
farið á svig við reglur um ríkis-
ábyrgðir.
„Framúrkeyrslan við fram-
kvæmdina stefnir í að fara yfir 10
milljarða króna auk margra missera
frestunar á opnun ganganna og eng-
inn virðist bera ábyrgð.“
FÍB segir verið að
misnota almannafé
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavíkurhöfði Göngin, tæpur 1
km að lengd, voru opnuð í fyrra.
Gagnrýnir ráðstöfun vegafjár í göng
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
NOKIAN stígvélabúðin | Mjóddinni | Reykjavík I Sími 527 1519 | Nokian Stígvélabúðin
Opið virka daga kl. 10.00-18.00
Loðfóðruð barnastígvél
fyrir veturinn