Morgunblaðið - 22.11.2018, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018
Íslenskir heysölumenn eru langt
komnir með að uppfylla samning
við samvinnufélög norskra bænda
um útflutning á 30 þúsund heyrúll-
um til Noregs. Þegar skip, sem nú
er verið að lesta í Sauðárkróks-
höfn, fer af stað verða farnar 27-28
þúsund rúllur, að sögn Ingólfs
Helgasonar, bónda á Dýrfinnustöð-
um. Er þetta fimmti skipsfarmur-
inn sem fer frá Sauðárkróki og Ak-
ureyri með hey úr Þingeyjar-
sýslum, Eyjafirði, Skagafirði og
Húnavatnssýslum.
Eftir er að ákveða hvernig þær
2-3 þúsund rúllur sem uppá vantar
verða fluttar út.
Í gær var unnið við að lesta skip-
ið. Ingólfur segir að vel hafi gengið
að fá hey til að fylla það en skipið
tekur 5.400 rúllur eða samsvarandi
rúllubagga. Þetta er þriðja skipið
sem fer frá Sauðárkróki en tvö
hafa lestað á Akureyri.
Enn er nóg til af rúllum og mikil
eftirspurn eftir heyi erlendis.
Bændur eru að huga að framhald-
inu. helgi@mbl.is
Langt komnir með
Noregs-samninginn
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Sauðárkrókur Unnið er að lestun í Sauðárkrókshöfn á heyrúllum í flutningaskip sem siglir til Noregs.
Kjörstjórn Sjó-
mannafélags ís-
lands komst að
þeirri niðurstöðu
í fyrradag að
framboð B-lista
Heiðveigar Mar-
íu Einarsdóttur
til stjórnar í fé-
laginu uppfyllti
ekki skilyrði laga
félagsins til mótframboðs. Því sé A-
listi stjórnar félagsins sjálfkjörinn.
Nýr formaður Sjómannafélags Ís-
lands verður samkvæmt þessu
Bergur Þorkelsson og tekur hann
við af Jónasi Garðarssyni á þar-
næsta aðalfundi.
Fram kemur í úrskurði kjör-
stjórnar að Heiðveig María sé
hvorki félagsmaður í félaginu né
uppfylli skilyrði um kjörgengi, þar
sem hún hafi ekki greitt í félagið í
a.m.k. þrjú ár. Af 111 meðmæl-
endum með B-lista hafi ekki verið
gerðar athugasemdir við 99, en að
lágmarki þurfi 100 meðmæli með
mótframboði til stjórnar í félaginu.
Listi Heiðveigar ekki
löglegur og Bergur
sjálfkjörinn formaður
Bergur Þorkelsson
Borgarráð hefur samþykkt tillögu
skrifstofu eigna og atvinnuþróunar
um að afturkalla úthlutun lóðanna
og sölu byggingarréttar að Lamb-
hagavegi 8 og 10. Jafnframt var
samþykkt að auglýsa lóðirnar að
nýju.
Diddubátum útgerðarfélagi ehf.
var úthlutað lóðunum í ágúst s.l. Fé-
laginu tókst ekki að fjármagna
kaupin innan tímamarka og féll það
frá úthlutun.
Fram kemur í bréfi skrifstofu
eigna og atvinnuþróunar að um sé
að ræða síðustu atvinnulóðirnar við
Lambhagaveg og hafi skrifstofan
fundið fyrir áhuga fleiri aðila á
þeim. Vegna samkeppnissjónarmiða
sé nauðsynlegt að bjóða lóðirnar út
með útboðsfyrirkomulagi fremur en
en að ráðstafa þeim á föstu verði.
Lambhagavegur er í Úlfarsárdal.
Þar er m.a. að finna verslun Bau-
haus og gróðrarstöðina Lambhaga.
sisi@mbl.is
Vinsælar lóðir við
Lambhagaveginn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Verslun Bauhaus við Lambhagaveg.
Virði 62,5 milljóna
dollara
Röng tala slæddist inn í frétt í
blaðinu á þriðjudag um sölu á 55%
hlut Origo (áður Nýherja) í fyrir-
tækinu Tempo. Heildarvirði samn-
ingsins er 62,5 milljónir dollara, ekki
5 milljónir eins og misritaðist. Beðist
er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
Valfrelsi
og árangur
Frjálsi lífeyrissjóðurinn stendur fyrir valfrelsi og leggur áherslu á að sjóðfélagar hafi val um fjölbreyttar leiðir til að
ávaxta iðgjöld sín. Frjálsi lífeyrissjóðurinn er margverðlaunaður sjóður* sem öllum er frjálst en enginn er skyldugur að
greiða í. Þeim sem velja Frjálsa lífeyrissjóðinn býðst að ráðstafa allt að 78% af 15,5% skylduiðgjaldi í erfanlega séreign.
Hæsta meðalávöxtunin í tíu ár
Fjárfestingarleiðirnar Frjálsi 2 og Frjálsi 3 hafa skilað hæstu meðalnafnávöxtun sl. 10 ár í sínum flokki, skv. samantekt
Landssamtaka lífeyrissjóða. Sjá nánar á www.ll.is.
Vilt þú slást í hópinn?
Bókaðu fund í
Borgartúni 19
Hringdu í síma
444 7000
Sendu póst á
frjalsi@frjalsi.is
Komdu á
fræðslufund
Kíktu á
www.frjalsi.is
10%
9%
8%
7%
6%
5%
4%
3%
2%
1%
0%
8,0%
8,5%
Frjálsi
Áhætta
Frjálsi 1 Frjálsi 2 Frjálsi 3
7,4%
8,2%
Nafnávöxtun séreignarleiða Frjálsa lífeyrissjóðsins sl. 10 ár**
Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá
31.12.2007 til 31.12.2017 á
viðbótarlífeyrissparnaði og séreignar-
hluta skyldulífeyrissparnaðar. Nánari
upplýsingar um ávöxtun sjóðsins er
að finna á www.frjalsi.is.
*Nánari upplýsingar á www.frjalsi.is.
**Athygli er vakin á því að ávöxtun í fortíð endurspeglar ekki endilega ávöxtun í framtíð.
Verið velkomin á fræðslufund um Frjálsa lífeyrissjóðinn í kvöld kl. 17.30.
Fundurinn verður í Arion banka, Borgartúni 19. Skráning á www.frjalsi.is.