Morgunblaðið - 22.11.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Svartur föstudagur
20%
afsláttur
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
La Mollla - fallegar jólagjafir
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Jóla
vörurnar
komnar
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
Nýjustu
jólalínurnar
10%
afsláttur
fimmtud.-laugard.
Bókin Lífið á efstu hæð, sem
fjallar um eftirlaunasparnað og
leiðir til að stuðla að góðum eftir-
launum, kemur út í dag. Bókin
verður kynnt á opnum fundi á
Grand Hótel Reykjavík, sem hefst
kl. 17 í dag. Höfundurinn, Gunnar
Baldvinsson, kynnir bókina en
einnig mun Kristrún Frostadóttir,
hagfræðingur Kviku, ræða um að
á næstu árum muni eftirlauna-
þegum á Íslandi fjölga mun meira
en fólki á vinnualdri.
Í bókinni og á fundinum verður
leitast við að svara spurningum
um lífeyrismál og benda á leiðir
til að stuðla að góðum eftir-
launum. Er m.a. umfjöllun um
hálfan lífeyri sem getur hentað
einstaklingum sem vilja draga úr
vinnu eða vera lengur á vinnu-
markaði, að því er segir í frétta-
tilkynningu.
Kynnir bók um líf-
eyrismál og sparnað
Lífeyrisbók Gunnar Baldvinsson skrifar.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Plast sem er flutt út héðan til Evr-
ópulanda hefur í auknum mæli farið í
orkuendurvinnslu. Þetta gerist í kjöl-
far þess að Kínamarkaður lokaðist
um síðustu áramót fyrir plasti til end-
urvinnslu og erfiðleikar hafa skapast
víða í Evrópu af þeim sökum.
Árið 2017 voru flutt út á vegum
Sorpu um 1.400 tonn af plasti til end-
urvinnslu en árið áður nam útflutn-
ingurinn tæpum 900 tonnum og var
aukningin um 56% á milli ára. Í ár er
útlit fyrir að sambærilegt magn verði
2.300 tonn.
Útflutningur á plasti var til um-
ræðu á stjórnarfundi Sorpu nýlega.
Þar kom fram að fyrirtæki í Svíþjóð,
sem hefur tekið við plasti frá Sorpu,
hafi neyðst til að senda allt plast til
orkuendurvinnslu frá 1. júní í stað
efnisendurvinnslu. Vonir standa til að
nýjar lausnir finnist í efnisendur-
vinnslu og verði komnar í gagnið í
ársbyrjun 2019 annað hvort í Þýska-
landi eða Svíþjóð, að sögn Björns H.
Halldórssonar, framkvæmdastjóra
Sorpu.
Brenna plastið
Heldur meira þarf að greiða með
plasti sem fer til orkuendurvinnslu
heldur en efnisendurvinnslu, að sögn
Björns. Í orkuendurvinnslu er plastið
brennt og nýtt til rafmagnsfram-
leiðslu eða til að búa til fjarvarma við
húshitun. Í efnisendurvinnslu er efnið
hreinsað og flokkað og búið til úr því
nýtt plast. Þá segir Björn óljóst hvað
fáist í endurgjald frá Úrvinnslusjóði
fyrir efni sem er brennt í orkuend-
urvinnslu.
„Eins og staðan er núna flæðir
plastið yfir, það eru allir í sömu stöðu
og kaupendur ráða markaðnum,“
segir Björn.
Plastið í auknum mæli í orkuendurvinnslu
Lokað í Kína og víða erfitt með endurvinnslu í Evrópu Gripið til nýrra lausna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á flugi Plast er víða til óþurftar og
gott að margir komi að hreinsun.