Morgunblaðið - 22.11.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.11.2018, Qupperneq 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Pompeii Á torgi borgarinnar sem grófst undir ösku árið 79, en var seinna grafin upp. Heimsminjastaður UNESCO. Hrundar borgir og horfinveröld hafa alltaf heillaðmig. Þetta kom strax íæsku og frásagnir af svona stöðum, svipaðar dulúð, náðu sterkum tökum á mér. Ferðalög fjölskyldunnar eru því oft á óvenju- lega staði sem eiga sér mikla sögu,“ segir Anna Sigrún Baldurs- dóttir hjúkrunarfræðingur og að- stoðarmaður forstjóra Landspítal- ans. „Þegar ég var að alast upp vest- ur í Stykkishólmi sótti ég mikið á Amtsbókasafnið þar. Þar kynntist ég til dæmis ævintýrabókum Enid Blyton og í einni þeirra sagði frá ítölsku borginni Pompeii sem er við Napólíflóann og grófst undir ösku í eldgosi úr fjallinu Vesúvíusi árið 79 eftir Krist. Strax þá vaknaði með mér löngun til að heimsækja þenn- an einstaka stað og fyrr á þessu ári rættist sá draumur, þegar ég og maðurinn minn, Jón Þór Sturluson, og dætur okkar vorum á Ítalíu í vor,“ segir Anna Sigrún. Árið 1748 var byrjað að grafa niður á Pompeii undir gjallinu og í fornleifarannsóknum aldanna hefur skapast mikil þekking um líf Róm- verja fyrr á öldum. „Borgin er ótrúlega heilleg; það er byggingar og götur. Það er líka mjög áhrifaríkt að sjá líkamsleifar fólks sem lést þegar helský fór yfir borgina. Margir urðu undir öskunni og urðu þar að engu, en eftir sat holrúm sem afsteypur hafa verið gerðar af. Þær fannst mér áhuga- vert að sjá og auðvelt er að ímynda sér hrikaleg örlög fólksins og skelf- ingu þess þegar þessar miklu nátt- úruhamfarir gengu yfir,“ segir Anna Sigrún sem kveðst hafa áhuga á fleiri myrkum stöðum, svo sem útrýmingarbúðunum í Ausch- witz í Póllandi sem Þjóðverjar ráku í síðari heimsstyrjöld. „Það sem ég les og nem leiðir mig oft áfram í lífinu. Vitund mín fyrir þessum hryllingi vaknaði er ég sem unglingur las frásögn Leifs Müller um veru hans í fangabúð- unum í Sachsenhausen. Saga hans í bókinni Býr Íslendingur hér? sem kom út árið 1988 hreyfir við öllum.“ Ferðalög um heiminn eru lærdómsrík og stækka sjóndeildarhring ferðalanga. Vegir liggja til allra átta, en við getum sjálf ráðið hvert förinni er heitið. Hér segir frá borg sem var grafin úr ösku, útrýmingarbúðum helfararinnar og mannlífinu á Manhattan. Góða ferð! Dulúðugir staðir heilla ÍtalíuförAnna Sigrún Baldursdóttir og Jón Þór Sturluson í ferðinni til Pompeii fyrr á þessu ári. „Áhugaverðasti staðurinn í heim- inum sem ég hef heimsótt er Kam- bódía. Að koma til Angor Wat var eftirminnilegt. Hofin miklu þar eru risavaxin musteri frá 8.-14. öld og standa í þéttum frumskógi. Í raun finnst mér ég þar vera staddur í Indiana Jones bíómynd,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar. „Seinni tíma saga Kambódíu er hins vegar blóðug og sorgleg. Valdatími Rauðu khmeranna á átt- unda áratug síðustu aldar var hreint helvíti. Ég heimsótti gaml- an barnaskóla sem hafði verið breytt í fangelsi og pyntingar- miðstöð og sá maður enn blóð- sletturnar á veggjum og lofti. Eft- ir heimsókn þangað verður maður ekki samur aftur.“ Af öðrum áhugaverðum stöðum í veröldinni segist Ágúst Ólafur hiklaust mæla með New York. Þar var hann í þrjú ár við nám og starfaði eftir það hjá Sameinuðu þjóðunum um skeið. „Þetta er borg sem stendur mér mjög nærri og New York er staður sem hefur allt að bjóða. Ég vil sérstaklega mæla með að fólk heimsæki mitt gamla hverfi sem er Upper West Side en forðist Midtown og Times Square. Það er ekki hægt að finna betri mat og drykk en á Manhatt- an og þá er Central Park endalaus uppspretta fyrir börn og gang- andi. Af stöðum sem ég á eftir að heimsækja þá er Kína á óskalist- anum. Kína hefur alltaf verið mið- depillinn á jörðinni enda býr stór hluti jarðarbúa þar og allt um kring. Þetta er augljóslega land andstæðna og ótrúlegrar náttúru- fegurðar. Ég er mikið náttúru- barn og mér finnst fátt betra en að ganga um í skógum og jafnvel faðma tré, sem mun vera mjög hollt. Síðan hef ég lengi átt þann draum að sjá villta pöndu og kannski á einhver panda þann draum að sjá þingmann frá Ís- landi.“ Bíómynd í frumskógi Ferðalangur Kína á óskalistanum, segir Ágúst Ólafur Ágústsson. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Angor Wat Hofin í Kambódíu eru vitnisburður um einstaka byggingarlist. Í tilefni af 90 ára afmæli Félags há- skólakvenna sem er um þessar mundir voru þrjár konur heiðraðar á dögunum fyrir störf sín, ýmist í þágu félagsins eða fyrir að vera brautryðj- endur á sínu sviði og öðrum konum fyrirmyndir. Konurnar þrjár sem hlutu viðurkenninguna eru Guðrún Erlendsdóttir, sem var fyrst íslenskra kvenna til að gegna embætti hæsta- réttardómara, séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir, fyrsta konan á Íslandi sem tók prestvígslu, og Margrét Kristín Sigurðardóttir, viðskiptafræð- ingur og fyrrverandi stjórnarkona í Félagi háskólakvenna, sem lengi vann í þágu Mæðrastyrksnefndar. Í tilefni afmælisins veitti Félag há- skólakvenna 500 þúsund króna rann- sóknarstyrk til Ingunnar Gunnars- dóttur, 28 ára doktorsnema í umhverfis- og auðlindafræði við Há- skóla Íslands, en hún sérhæfir sig í rannsóknum á sjálfbærri orkuþróun og möguleikum á því sviði. Tilgangur stofnunar Félags há- skólakvenna á sínum tíma var að hvetja ungar konur til mennta og berjast fyrir réttindum þeirra. Áherslur félagsins hafa breyst í takt við tíðarandann en tilgangurinn er enn sem fyrr að hvetja konur til mennta. Félagið hefur frá upphafi verið aðili að alþjóðlegum samtökum háskólakvenna sem fagna 100 ára af- mæli á næsta ári en það félag talar fyrir réttindum kvenna til menntunar, sérstaklega í þeim löndum þar sem konur njóta ekki sömu tækifæra til náms og karlar. Brautryðjendur og öðrum konum fyrirmyndir Háskólakonur Stjórn og viðurkenningarhafar, talið frá vinstri eru á myndinni: Halldóra Traustadóttir, Elísabet Sveinsdóttir, Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Ingunn Gunnarsdóttir, Guðrún Erlendsdóttir, Margrét Kristín Sigurðardóttir, Margrét Kristín Sigurðardóttir og Hanna Lára Helgadóttir. Þrjár háskólakonur heiðraðar Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Sími 588 0488 | feldur.is BELGINGUR mokka hanskar 6.200 BÁRA leðurhanskar 5.900 ÞYTUR prjónahúfa 9.200 SKJÓL leðurhúfa m/refaskinni 35.800 Velkomin í hlýjuna EIR úlpa m/refaskinni 158.000 ÞOKA ennisband 12 900.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.