Morgunblaðið - 22.11.2018, Page 16

Morgunblaðið - 22.11.2018, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Laserlyfting Þéttir slappa húð á andlit og hálsi Árangur af Laserlyftingu er sambærilegur við árangur af andlitslyftingu með skurðaðgerð en það sem laserlyfting hefur fram yfir andlitslyftingu er að einstaklingur getur farið í vinnu beint eftir meðferð. 15% afsláttur af gjafabréfum hjá Húðfegrun Bylting ímeðferð á línum, hrukkumog slappri húð. Hl. Teresa er verndardýrling- ur trúboða og messudagur hennar er 1. október. Hún er einnig verndardýrlingur Frakklands og Rússlands og þeirra sem misst hafa foreldra sína. Jóhannes Páll páfi II hóf hana í tign kirkjufræð- ara 1997. Teresa frá Lisieux er einn mesti kvendýrlingur kaþ- ólskra og eru víða kirkjur henni til heiðurs. Sjá má líkneski af henni í mörgum kaþólskum kirkjum, kap- ellum og heimilum um allan heim. Falleg líkneski af henni eru í Dómkirkju Krists konungs í Landakoti og í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. Helgir dómar Teresu af Jesú- barninu hafa verið í pílagrímsferð um Norðurlönd í haust. Í skríninu er hluti líkamsleifa hl. Teresu eins og t.d. bein eða hár. Í bæklingi sem Kaþólska kirkjan gaf út af þessu tilefni segir m.a. að frá Guðni Einarsson gudni@mbl.is Heilög Teresa frá Lisieux, eða Teresa af Jesúbarninu, fæddist í Alençon í Frakklandi 2. janúar 1873. Hún var 9. barn foreldra sinna, Lúðvíks og Silju Martin. Fjórar systur hennar gerðust nunnur. Foreldrar þeirra voru teknir í tölu dýrlinga 2015. Aðeins 15 ára gömul gekk Teresa í Karmelklaustrið í Lisieux. Hún leitaðist við að full- komna líf sitt, baðst mikið fyrir og lagði stund á sjálfsafneitun allt frá barnsaldri. Teresa skrifaði bókina Saga sálar og mörg bréf. Þar kennir hún hvernig við getum nálgast Guð eins og börn hans. Hún lést aðeins 24 ára 30. sept- ember árið 1897. Teresa var tekin í tölu blessaðra árið 1923 og árið 1925 var lýst yfir helgi hennar. fyrstu öldum hafi kirkjan „heiðrað helga dóma þjáninga Drottins og dýrlinganna. Fyrst voru það helgir dómar píslarvottanna sem minntu sérstaklega á þá köllun kristinna manna að breyta full- komlega eftir Kristi.“ Brátt hafi menn farið að dreifa helgum dómum píslarvott- anna. Skrín sem geymdu helga dóma urðu sífellt skrautlegri á miðöldum og voru varðveitt í kirkjum og klaustrum. Hér voru t.d. helgir dómar Þorláks helga geymdir í skríni sem stóð á há- altarinu í Dómkirkjunni í Skálholti og dró að sér fjölda pílagríma. Skrín heilagrar Teresu gefur hug- mynd um hvernig skrín Þorláks helga kann að hafa litið út. Skrín með helgum dómum foreldra heil- agrar Teresu var hér fyrr í mán- uðinum í tilefni af 50 ára afmæli kaþólska biskupsdæmisins. Skrín heilagrar Teresu frá Lisieux á Íslandi Morgunblaðið/Eggert Breiðholt Skrínið kom að norðan í gær og verður í kirkjum kaþólskra á höfuðborgarsvæðinu um helgina.  Geymir helga dóma eins mesta kvendýrlings kaþólskra Skrínið með helgum dómum heil- agrar Teresu frá Lisieux í Frakk- landi sem nú er á Íslandi, verður í kaþólskum kirkjum hringinn í kringum landið næstu daga. Búast má við að margir leggi leið sína í kirkjurnar til að sjá skrínið. Það var í St. Péturskirkjunni á Akur- eyri á þriðjudaginn var og í Maríu- kirkjunni í Breiðholti í gær. Kirkj- an var opin í alla nótt af þessu tilefni. Skrínið kemur í Karmelklaustrið í Hafnarfirði í dag kl. 10.30 og verð- ur í innri kapellu nunnanna þar til á morgun að það verður sett í kapellu sem opin er almenningi kl. 16.00 og verður kapellan opin alla nóttina. Skrínið verður síðan flutt í Dóm- kirkju Krists konungs í Landakoti á laugardag kl. 14.30 og verður þar fram á mánudag. Þá fer skrínið til Hafnar í Hornafirði og verður í Kirkju hl. fjölskyldu og hl. Jóhann- esar Maríu Vianney og frá kl. 16.00 á þriðjudag í St. Þorlákskirkju á Reyðarfirði. Skrínið verður svo flutt úr landi á miðvikudag í næstu viku. Heimsækir kaþólskar kirkjur Fagurt líkneski Heilög Theresa. Morgunblaðið/Eggert Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra af- henti viðurkenningar til sam- starfsaðila Icelandic lamb á sviði handverks og hönnunar í lista- rýminu Mengi í gær. Markaðs- stofan Icelandic lamb er í sam- starfi við yfir 200 innlenda aðila; veitingastaði, verslanir, framleið- endur, afurðastöðvar, listamenn, hönnuði. Með samstarfinu vinnur Icelandic Lamb að því að kynna íslenskar sauðfjárafurðir fyrir er- lendum ferðamönnum. Þau sem hlutu Award of Excel- lence viðurkenninguna í ár voru listakonan Anna Þóra Karlsdóttir, náttúrufræðingurinn Guðrún Bjarnadóttir, listhandverksmaður- inn Philippe Ricart, Smáspuna- verksmiðjan Uppspuni sem bænd- urnir Hulda Brynjólfsdóttir og Tyrfingur Sveinsson komu á fót og Erla Svava Sigurðardóttir hannar og framleiðir ullarvörur undir merkinu YARM. Fjögurra manna dómnefnd valdi þá sem viðurkenningu hljóta en í henni sátu Emma Eyþórsdóttir dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands, Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri Handverks og Hönnunar, Rúna Thors fagstjóri vöruhönnunar við Listaháskóla Ís- lands og Ninja Ómarsdóttir verk- efnastjóri hjá Icelandic lamb. Morgunblaðið/Árni Sæberg Verðlaun Menntamálaráðherra afhenti listamönnunum viðurkenninguna. Verðlaunuð fyrir að kynna íslenska lambið Hildur Sverris- dóttir, varaþing- maður Sjálfstæðis- flokksins, sagði fulla þörf á því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al- þingis myndi rannsaka fram- göngu Seðlabanka Íslands (SÍ) gegn Samherja, í ræðu sinni á Alþingi í gær. Hæstiréttur kvað nýlega upp dóm í máli SÍ gegn Sam- herja um að fella úr gildi 15 milljóna króna stjórnvaldssekt Samherja. Sam- herji er að undirbúa skaðabótamál á hendur SÍ. „Við megum ekki gleyma að það er hið opinbera sem er alltaf stærri og sterkari aðilinn gagnvart hverjum einasta einstaklingi og lög- aðila í landinu,“ sagði Hildur og velti fyrir sér af hversu lítil hneykslun hefur orðið á málinu í samfélaginu. „Kannski er það út af því að okkur er orðið tamt að treysta í blindni hinu opinbera. Kannski er það út af því að þolandinn í málinu er ekki minni máttar í sam- félaginu og þarf því síður stuðning samfélagsmiðlanna. Hvorugt er góð ástæða til að vera skeytingarlaus gagnvart hverskyns eftirlitsheimildum og valdbeitingu.“ Samherja- málið verði rannsakað Hildur Sverrisdóttir Við leit í skjala- kerfi Reykjavík- urborgar fund- ust engin tölvu- póstsamskipti frá Jóni Gnarr, fyrr- verandi borgar- stjóra Reykjavík- ur, sem tengjast listamanninum Banksy. Þetta kemur fram í svari Tinnu Garðars- dótttur, verkefnastjóra stjórnsýslu- mála hjá skrifstofu borgarstjóra, þegar óskað var eftir afriti af öllum tölvupóstsamskiptum Jóns Gnarrs við listamanninn á grundvelli upp- lýsingalaga. mhj@mbl.is Ekkert um Banksy í skjölum borgarinnar Jón Gnarr

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.