Morgunblaðið - 22.11.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 22.11.2018, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018 Mig langar að minnast Sigurðar Svavarssonar sem lést nýlega langt um aldur fram. Við kynntumst 1981 þegar ég gekk til liðs við ÍR í hand- bolta. Ég minnist þess enn hversu vel hann tók á móti mér. Hann fór að rifja upp að við hefðum spilað á móti hvor öðrum áður þegar ég spilaði með Þór frá Akureyri. Það er langt frá því sjálfgefið að taka strax á móti nýjum liðsmönnum með svo afgerandi hætti. Eitt skipti eftir æfingu þurftu tveir liðs- menn ÍR að komast að Laugar- vatni þar sem þeir voru við nám í Íþróttakennaraskólanum. Þetta var um miðjan vetur og Siggi ákvað að keyra þá. Hann stakk upp á því að ég slægist með í för- ina. Á leiðinni til baka festum við bílinn í miklum snjóbyl á Hellis- heiðinni og þurftum að skilja hann eftir. Við reyndum að húkka okkur far en margir bílar fóru framhjá án þess að stoppa. Ég hafði hins veg- ar engar áhyggjur af þessu, mér fannst gott að vera með Sigga sem alltaf var eins og klettur. Að lokum stoppaði rúta með sjómönnum sem voru að koma úr túr og við komumst í bæinn. Fljótlega var Siggi kominn í hrókasamræður við sjómennina. Það var einkennandi fyrir Sigga að hann gat talað við alla. Hann hefði örugglega getað far- ið um allan heim og talað við háa og lága og orðið vinur þeirra, svo mikil var manngæska hans og að- laðandi framkoma. Nokkrum árum eftir handbolt- ann í ÍR stofnuðum við nokkrir fé- lagar í Háskóla Íslands handknatt- leiksdeild innan Íþróttafélags stúdenta og kepptum í annarri Sigurður S. Svavarsson ✝ Sigurður S.Svavarsson fæddist 14. janúar 1954. Hann lést 26. október 2018. Útför hans fór fram 7. nóvember 2018. deild. Við fengum Sigga til að vera þjálfari og var hann með okkur í tvö ár. Hann var ótrúlega laginn í mannlegum samskiptum, góður þjálfari og félagslega var hann algjörlega frábær. Við fórum á Norðurlandamót í Finnlandi og urðum Norðurlandameist- arar 1987. Einn góður liðsmaður var okkar ágæti forseti Guðni Th. Jóhannesson. Ég er 100% viss um að ég get mælt fyrir munn allra í liðinu og staðfest hversu stórkost- legur þjálfari og vinur Siggi var og reyndist okkur vel. Við fórum í æf- inga- og keppnisferðir til Selfoss og Akureyrar og eftir leikina var glatt á hjalla og húmoristinn Siggi var hrókur alls fagnaðar. Ég flutti seinna til Gautaborgar í framhaldsnám. Þá hitti ég Sigga nokkrum sinnum á Bókamessunni þar. Gaman var að rifja upp gaml- ar minningar og oft gaukaði hann íslenskri barnabók að börnunum mínum sem voru með í för. Sam- eiginlegur vinur okkar nefndi ný- lega hversu lipur hann var þegar hann vantaði bókagjafir fyrir sína starfsfélaga, fékk góðan afslátt hjá Sigga. Lipur er gott lýsingarorð yfir Sigga hvað varðaði mannleg samskipti. En hann hafði líka svo marga aðra hæfileika. Hann var mikill mannvinur, vel gefinn, smekkmaður á bækur og svo margt annað. Hann hafði ríka rétt- lætiskennd og mikinn húmor sem er stundum vanmetinn sem hluti af mannlegri greind. Leiðir okkar hafa því miður ekki legið saman síðustu árin. Söknuðurinn er gífurlegur hjá öllum sem þekktu Sigga. Eftir lifa minningarnar um einstakan mann sem var sannur gleðigjafi í lífi þeirra sem voru svo lánsamir að kynnast honum. Að lokum vil ég votta nánustu fjölskyldu innilega samúð mína. Einar Stefán Björnsson. Elsku kæri vinur okkar. Mikið er skrítið að þú sért horfinn á braut. Söknuðurinn er mikill enda erum við að kveðja einn af okkar bestu vinum. Elsku Óli okkar, þú varst stór hluti af okkar lífi og mikið vorum við heppin að búa svona nærri hvort öðru og gátum skottast hvort yfir til annars í mas og maus. Við gát- um spjallað um allt milli himins og jarðar. Það skipti engu hvað bar á góma, við gátum rætt um alla hluti, bæði gleðilega og miður gleðilega. Þú varst sannur vinur, mikið hlýr og svo gaman að hlæja með þér. Það var alltaf stutt í hlátrasköllin. Einstaklega hlátur- mildur og yfirvegaður sem þú varst. Maður kom stundum yfir til þín með gusti ef dagurinn hafði verið erilsamur en það lægði fljótt þar sem nærvera þín gerði það að verkum að manni leið allt- af notalega í kringum þig. Það er tómlegt hjá okkur núna. Hver á að gogga í sig bananabrauðið eða nýju sulturnar sem þér þóttu svo góðar. Svo ég tali nú ekki um pönnsurnar. Ólafur Finnbogason ✝ Ólafur Finn-bogason fædd- ist 14. október 1937. Hann lést 8. nóvember 2018. Útförin fór fram 14. nóvember 2018. Elsku Óli okkar, það vantar svo mik- ið þegar þú ert ekki. Hörður Rafnar minn sagði: „Mamma, við eigum alltaf allar minning- arnar um elsku Óla okkar og kannski er hann búinn að kynn- ast Ólafi Rafnari afa á himnum og þeir að tala um hesta og Ólafur afi sýnir honum himna- ríkið.“ Já, það er svo sannarlega satt að við yljum okkur við góðar minningar, elsku vinur, þær munum við halda á lofti um ókomna tíð. Aldrei að vita nema þið pabbi séuð farnir í hestaferð um himnaríki, það þykir mér ekki ólíklegt. Nú ertu horfinn í himnanna borg og hlýðir á englanna tal. Burtu er kvíði, sjúkdómur, sorg í sólbjörtum himnanna sal. Þeim öllum sem trúa og treysta á Krist þar tilbúið föðurland er. Þar ástvinir mætast í unaðarvist um eilífð, ó, Jesú, hjá þér. (Ingibjörg Jónsdóttir) Megir þú hvíla í friði, okkar yndislegi vinur. Elsku kæra fjölskylda, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Auður B. Ólafsdóttir, Hörður Rafnar Auðarson Pálmarsson. ✝ AðalsteinnHallsson fædd- ist 6. mars 1938. Hann lést 10. nóvember 2018. Foreldrar hans voru Hallur Jónas- son, f. 8.1. 1903, d. 18.10. 1972, og Bergljót Guttorms- dóttir, f. 13.12. 1906, d. 21.9. 1946. Systkini hans voru: Einar, fæddur 1934, dáinn 1936, Erlingur, fæddur 1936, dáinn 2018, Ingunn, fædd 1942, dáin 2003, og Sigríður Björg, fædd 1945, dáin 2012. Eftirlifandi eiginkona Aðal- steins er Ebba Stefánsdóttir, f. 1940. Börn þeirra eru: 1) Atli Stefán, fæddur 27. mars 1958. Hans börn eru Heiðrún Matt- hildur, Snædís Ebba, Hallur Aðal- steinn og Amelía. 2) Bergljót, fædd 8. apríl 1960. Hennar börn eru Aðal- steinn Atli og Guð- mundur Snær. 3) Brynja, fædd 28. maí 1963. Sonur hennar er Stefán Arnar. Barnabörnin eru sjö og barna- barnabörnin eru fjögur. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 22. nóvember 2018, klukkan 13. Ástkær afi minn og nafni, Að- alsteinn Hallsson, er látinn. Hann fæddist á Húsavík 6. mars 1938 og lést á Droplaugarstöðum 10. nóvember, umkringdur öllum sínum nánustu. Aðalsteinn fór mjög ungur út á vinnumarkaðinn. Þetta voru aðr- ir tímar, þegar börn reru til sjós og braggarnir kostuðu eitthvað minna en þeir gera í dag. Hann vann fyrst um sinn á sjó, svo í sveit en fór síðan að vinna í mat- vöruverslunum. Allt frá því að sendast með vörur, upp í að reka sína eigin verslun, en margir þekkja hann eflaust frá þeirri tíð þar sem hann, ásamt bróður sínum, rak matvöruverslanirnar Búðargerði og Holtsbúð. En jafnvel fleiri hafa átt við hann viðskipti í hús- gagnaverslun hans sem fyrst bar nafnið Híbýlaprýði og síðar Heimilisprýði. Allir sem hann þekktu munu taka undir það að hér var einstak- lega geðþekkur og góðhjartaður maður á ferð. Hann hefur verið stoð mín og stytta í gegnum lífið. Hann bauð mér vinnu í húsgagnaversluninni og hélt mér á menntabrautinni þegar óþroskaður táningshuginn ætlaði sér einhverja ólukkans vit- leysu. Í æsku minni voru þau fá vandamálin sem ekki hurfu eins og dögg fyrir sólu á ísrúnti með afa. Þessir bíltúrar þróuðust snemma yfir í fastan lið á sunnu- dögum sem stóð eins og klettur á meðan heilsan lofaði og ísinn varð að algjöru aukaatriði. Stundum var farið í lengri bíltúra og var Stafnesið vinsæll viðkomustaður, en þar var hann í sveit á árum áð- ur. Hann kenndi mér að meta náttúruna, dýralífið og öll fallegu, litlu þorpin sem dreifa sér svo víða um eyjuna okkar. Hann kenndi mér að allt á sér sögu, nafn og tilgang. En umfram allt, kenndi hann mér mikilvægi þess að eiga góða að. Hann var mér allt í senn; afi, starfsbróðir, fyrirmynd og besti vinur. Ég mun ávallt minnast hans með brosi á vör. Aðalsteinn Atli Guðmundsson. Elsku afi. Á þessum erfiðu tímum rifjast upp allar dýrmætu stundirnar sem við áttum saman. Það var alltaf gott að koma til þín í Heim- ilisprýði eða í Þrastanes þar sem þú tókst á móti okkur með bros á vör. Þér fylgdi góð nærvera og það var svo gaman að sitja með þér og hlusta á allar skemmtilegu sögurnar sem þú hafðir að segja. Þú varst hjartahlýr og máttir ekkert aumt sjá og varst alltaf tilbúinn að gera allt fyrir okkur. Nú ert þú farinn en bros þitt og hlátur lifa áfram í hjörtum okkar. Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. En samt var nafn þitt nálægt mér og nóttin full af söngvaklið, svo oft, og þetta auða svið bar ætíð svip af þér. Og þungur gnýr sem hrynji höf, mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf. (Steinn Steinarr) Þín barnabörn, Heiðrún, Snædís og Hallur. Komið er að kveðjustund nú þegar Aðalsteinn Hallsson frændi minn hefur kvatt þetta líf eftir erfið veikindi. Alli, eins og hann var ávallt kallaður af fjöl- skyldu og vinum, er sá síðasti af börnum Halls föðurbróður míns og Bergljótar konu hans sem kveður. Hann var í miðjunni af syst- kinunum en eldri voru Einar sem lést aðeins tveggja ára gamall, og Erlingur sem lést í júlí á þessu ári en yngri voru systurnar Ingunn og Sigríður Björg sem báðar eru látnar. Alli var einstaklega ljúfur og hlýr persónuleiki sem auðvelt var að þykja vænt um. Hann var mik- ill fjölskyldumaður og mjög um- hugað um að halda vel utan um sitt fólk og veita því allt það besta. Margt af því sem hann sjálfur fór á mis við. Hann fæddist á Húsavík og bjó þar fyrstu árin með fjölskyldu sinni en árið 1946, þegar Alli var átta ára gamall, varð fjölskyldan fyrir því mikla áfalli að móðir hans féll frá mjög skyndilega og stóð Hallur, pabbi hans, þá einn uppi með fjögur ung börn. Heim- ilið flosnaði upp og fóru þau systkinin hvert í sína áttina. Alli fór um tíma til fjölskyld- unnar á Sólbakka á Húsavík, sem hann bar alltaf mjög hlýjar til- finningar til og tímans sem hann dvaldi þar. Hann varð fyrir slysi og fótbrotnaði, kom þá til lækn- inga suður, þá og eitthvað eftir það var hann hjá foreldrum mínum. Mjög sterk tengsl mynduðust milli hans og þeirra sem skipti þau öll miklu og átti hann alltaf sérstakan sess hjá þeim og þau hjá honum. Hann var um tíma í sveit hjá frændfólki fyrir norðan en síðan var hann með Halli föður sínum. Eftir að Erlingur bróðir hans kom suður voru þeir bræður báð- ir hjá föður sínum, sem hélt mjög vel utan um þá og börnin sín öll eftir því sem hann gat. Þeir bræður, hann og Erling- ur, „strákarnir“ eins og fjölskyld- an kallaði þá ávallt, sameinuðust um að koma sér áfram, sem þeim tókst við góðan orðstír. Unnu þeir ýmis störf, fyrst t.d. sem sendlar, urðu síðan verslunar- stjórar og stofnuðu loks sín eigin fyrirtæki, fyrst með nýlendu- vöruverslanir og síðar húsgagna- verslanir. Þeim gekk mjög vel og voru eftirsóttir, enda einstaklega liðlegir við alla sína viðskiptavini og margir minnast þeirra á þann hátt. Eftir að veikindin fóru að herja á Alla stóð Ebba konan hans eins og klettur við bakið á honum. Gerði allt sem hún gat til að hafa hann eins lengi heima og mögulegt var, sinnti honum einn- ig af mikilli natni eftir að hann fór á stofnun. Börnin þeirra og fjöl- skyldur voru hennar bakhjarl. Síðast þegar ég hitti frænda minn var hann enn heima. Hann þekkti mig, sem mér var mjög mikilvægt en veikindin voru farin að setja mjög sterkt mark á hann. Um leið og ég kveð frænda minn með þökk fyrir allt og allt, sendi ég Ebbu, börnunum og fjöl- skyldum þeirra innilegar samúð- arkveðjur og bið Guð að blessa þau á þessum erfiðu tímum. Elín Mjöll Jónasdóttir. Ég kynntist Aðalsteini Halls- syni fyrst fyrir rúmum sextíu ár- um. Við urðum góðir vinir og brösuðum margt saman. Mér varð ljóst mjög fljótlega að Alli var heiðursmaður og hreinn og beinn í öllu sem hann gerði. Aðalsteinn var á þessum tíma verslunarmaður hjá Kron á Skólavörðustíg í Reykjavík og þar varð hann síðar verslunar- stjóri. Á sjöunda áratugnum stofnuðu og ráku þeir bræður Aðalsteinn og Erlingur nýlendu- vöruverslanir í Reykjavík en söðluðu síðan um og stofnuðu húsgagnaverslunina Híbýla- prýði. Aðalsteinn reyndist mér ávallt vel, einkum þó þegar ég rak áfangaheimili fyrir alkóhólista. Mér er það minnisstætt, að þegar við vorum báðir 19 ára lenti ég á sjúkrahúsi vegna meiðsla í ung- lingalandsleik í handbolta. Móðir mín vitjaði mín og ég bað hana um að koma við á Skólavörðu- stígnum og láta Alla vita. Og hann var fljótur að koma í heim- sókn. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur, það er mér ljóst þegar ég skrifa þessi örfáu orð um Aðalstein vin minn, Að lokum vil ég senda Ebbu eiginkonu hans og börnum innilegustu samúðar- kveðjur. Guðlaugur Sveinsson. Nú er komið að því. Stundin sem ég var búinn að kvíða svo lengi, afi er farinn. Þegar ég hugsa til baka um afa kemur mér alltaf bros á vör. Alla ævi mína hefur hann verið stór hluti af lífi mínu. Ég fann fljótt að hér var ekki um neinn venjulegan afa að ræða. Hvort sem það var að fara til hans í heimsókn í Þrastanesið og fá þar að borða allt það góða sem annars staðar var bara í boði á hátíðum eða fara til hans í Heim- ilisprýði, sem var fyrir litla strák- inn eins og heill heimur, var alltaf hægt að treysta því að afi væri þar og tæki á móti manni með bros á vör og vildi allt fyrir mann gera. Allir sunnudagsbíltúrarnir út í sveit voru eins og ævintýri og alltaf fylgdu skemmtilegar upp- lýsingar um staðina sem ekið var framhjá og gerðu ferðirnar enn skemmtilegri. Mér er enn í fersku minni þegar bekkjarfélagi minn kom hlaupandi til mín og sagðist hafa séð hvíta bílinn hans afa keyra inn götuna. Svo vænt þótti mér um afa að allir í bekkn- um vissu það og vildi hann láta mig vita, svo ég missti ekki af því að hitta hann. Seinna þróaðist samband okk- ar afa yfir í vináttu sem varð mér mjög kær. Ég fékk að vinna með honum og lærði af honum margt um lífið. Að hafa átt hann sem afa, sem fyrirmynd og sem vin í 30 ár verð ég um alla ævi ómet- anlega þakklátur fyrir. Guðmundur Snær Guðmundsson. Aðalsteinn Hallsson Við kveðjum nú með söknuði vin okkar, Val Harðar- son, sem er fallinn frá aðeins 64 ára gamall. Við vorum á táningsaldri og bjuggum á Eskifirði þegar Kristín, elst okkar systkina, kynnti Seyðfirðinginn Val sem kærasta sinn. Við tókum honum í fyrstu með dálitlum fyrirvara, vógum hann og mátum og vorum á báðum áttum um hvort hann stæðist þær væntingar sem við Valur Harðarson ✝ Valur Harðar-son fæddist 11. mars 1954. Hann lést 24. október 2018. Útför Vals fór fram 5. nóvember 2018. höfðum fyrir hönd systur okkar. Hann var nokkr- um árum eldri en við og fljótlega þótti okkur mikið til hans koma, ekki síst vegna þess að hann var alþýðlegur töffari og heimsborgara- legur í fasi. Það er óhætt að segja að hann hafi víkkað sjóndeildar- hring okkar og kynnti okkur m.a. nýja tónlist og ljós- myndun. Valur og Kristín voru góð heim að sækja. Við eigum margar dýrmætar minningar um góðar samverustundir með þeim. Það voru mörg matarboð hjá þeim þar sem margt var um manninn og glatt á hjalla. Þar voru jafnan fjörugar og heitar og – oftast – málefnalegar um- ræður um menn og málefni. Eftir því var tekið hve góður og frumlegur kokkur Valur var. Sérstaklega var indverskur matur í uppáhaldi hjá honum og ekki síður okkur hinum sem höfðum ekki bragðað slíkan mat áður. Það var þar sem hug- takið matur féll í skuggann af hugtakinu réttur. Sambandið var áfram gott eftir að Valur og Kristín skildu og hann tók saman við Þuríði sem varð strax hluti af stórfjöl- skyldunni. Saman höfum við átt margar ánægjustundir, við undirbúning jóla, afmæla og annarra stórviðburða. Valur var einstaklega hlýr maður og mikill vinur vina sinna. Hann sýndi öðru fólki mikinn áhuga og skilning og var hjálp- legur og alltaf tilbúinn til þess að leggja öðrum lið – vináttan við hann var án allra fyrirvara og skilyrða. Þetta kom berlega í ljós eftir að hann veiktist af krabbameini. Hann tókst á við sjúkdóminn af miklu æðruleysi og bjartsýni. Þessa afstöðu til lífsins hafði hann þar til yfir lauk. Valur sótti Ljósið, stuðnings- miðstöð fólks sem hefur fengið krabbamein, og naut góðs af þeirri frábæru starfsemi sem þar fer fram. Hann var öðrum sjúklingum stoð og stytta og blés þeim bjartsýni í brjóst. Við vottum Þuríði, Sigrúnu, Þórdísi, Kristínu Líf, mökum þeirra og börnum samúð okkar, einnig Fríðu móður Vals og af- komendum hennar. Minningin um Val er björt og falleg og við minnumst hans með þakklæti. Við munum sakna hans um ókomna tíð. Blessuð sé minning hans. Halldór Árnason, Sigrún Árnadóttir, Guðmundur Árnason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.