Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 1
FYRST ÍSLENDINGA Í STJÓRN IFACBRÚAR BIL MILLI FÓLKS
Nýtt mótorhjól frá Ducati skilar 221 hestafli 4
Unnið í samvinnu við
Á Sjávarútvegsráðstefnunni, sem
hefst í Hörpu í dag gefst kærkomið
tækifæri til að mynda ný tengsl. 6
VIÐSKIPTA
Margrét Pétursdóttir endurskoðandi hefur
nú tekið sæti í stjórn Alþjóðasambands
endurskoðenda, fyrst Íslendinga. 4
FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018
Enn minnkandi vanskil
Vanskil fyrirtækja hafa dregist sam-
an samkvæmt gögnum Creditinfo
sem í gær birti lista yfir framúrskar-
andi fyrirtæki og gerð eru ítarleg
skil í sérútgáfu Morgunblaðsins í
dag. Í ljósi umræðu um versnandi
rekstrarskilyrði fyrirtækja og kólnun
hagkerfisins virðast fyrirtæki betur í
stakk búin til þess að takast á við það
sem framundan er. Rekstur fyrir-
tækja fer aftur á móti almennt
versnandi en framúrskarandi fyrir-
tækjum Creditinfo fækkaði um 2% á
milli ára eftir 25% fjölgun að meðal-
tali á listanum frá 2010.
Sé horft til fyrirtækja landsins og
borin saman tímabil frá nóvember til
nóvember, frá 2016-2017 annars veg-
ar og 2017-2018 kemur í ljós að van-
skil hafa minnkað um 0,7 prósentur.
Á fyrrgreinda tímabilinu voru van-
skil 4,9% en 4,2% á síðarnefnda tíma-
bilinu. Hlutfallsleg minnkun er því
14% á milli ára. Sé horft til síðustu
sex mánaða og borin saman tímabilin
maí til nóvember, árin 2017 og 2018,
kemur í ljós að vanskil eru enn að
dragast saman en hlutfall fyrirtækja
sem nýskráð voru á vanskilaskrá á
þessum tímabilum fer úr 3,2% í 2,8%.
Vanskil dragast aukinheldur sam-
an í níu stærstu geirum landsins á
milli ára. Tíundi stærsti geirinn er
gististaða- og veitingarekstur og þar
aukast vanskil á milli ára, fara úr
8,8% í 8,9% en sögulega séð er þessi
geiri yfirleitt með hæst hlutfall van-
skila. Samkvæmt gögnum Lands-
bankans hafa heildarvanskil minnkað
jafnt og þétt en í lok september
námu þau 0,5% en voru 0,9% í lok
árs 2017. „Vanskil fyrirtækja eru af-
ar lítil og það er jafnvel erfitt að sjá
fyrir sér að þau minnki meira en orð-
ið er. Toppi hagsveiflunnar er náð og
það er að hægjast um í efnahagslíf-
inu. Við slíkar aðstæður má alltaf bú-
ast við að vanskil aukist,“ segir Árni
Þ. Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs Landsbankans. Van-
skil lánasafns Íslandsbanka nema 1%
í dag en námu 2,6% í lok síðasta árs.
„Vanskilum á meðal lítilla og með-
alstórra fyrirtækja hefur fækkað
verulega að undanförnu. Þetta er
jákvæð þróun og við sáum í nýrri
skýrslu um lítil og meðalstór fyrir-
tæki að fyrirtæki hafa búið í haginn
og eru betur í stakk búin í dag fyrir
áföll í rekstri. Fyrirtæki hafa því nýtt
síðustu ár í að byggja upp skynsam-
legan rekstur,“ segir Una Steins-
dóttir, framkvæmdastjóri viðskipta-
banka Íslandsbanka. Að sögn
Haraldar Guðna Eiðssonar, upplýs-
ingafulltrúa Arion banka, eru vanskil
lítil. „En vissulega eru vanskil mis-
mikil á milli árstíða og á milli at-
vinnugreina, í sumum atvinnugrein-
um er ljóst að ákveðnar blikur eru á
lofti.“
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Vanskil fyrirtækja hafa
dregist saman um 0,7%
á árinu frá fyrra ári sam-
kvæmt Creditinfo og
dragast þau saman í
öllum helstu geirum.
Morgunblaðið/Golli
Vanskil drógust saman í stærstu geirum landsins samkvæmt Creditinfo.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
15.5.‘18
15.5.‘18
14.11.‘18
14.11.‘18
1.731,75
1.681,6
135
130
125
120
115
122,65
140,25
Tómas Hilmar Ragnarz, fram-
kvæmdastjóri og eigandi Regus-
skrifstofufyrirtækisins, segir að það
skekki samkeppnisstöðuna á mark-
aðnum þegar ríki og sveitarfélög nið-
urgreiði sambærilegt húsnæði. „Þar
er ég að tala um fyrirtækjaklasa fyrir
frumkvöðla í Reykjavík, Akureyri og
Ísafirði til dæmis, sem niðurgreiddir
eru af skattfé, hvort sem er með bein-
um hætti eða með lægri fasteigna-
gjöldum. Þarna kemur fram mikil
skekkja því við erum að bjóða það
sama, en borgum fullt markaðsverð
fyrir okkar húsnæði. Þetta er eflaust
niðurgreitt með góðum hug en skekk-
ir alla samkeppni,“ segir Tómas í
samtali við ViðskiptaMoggann.
Regus á Íslandi hefur vaxið með
miklum hraða síðustu ár. „Við höfum
farið úr 15 skrifstofum í 200 á fjórum
árum. Svo bætist Höfðatorg við sem
og Urðarhvarfið á næsta
ári.“
Klasar skekkja samkeppnina
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tómas Hilmar segir að Regus borgi
fullt markaðsverð fyrir sitt húsnæði.
Regus hefur stækkað
hratt síðan fyrirtækið hóf
starfsemi í Ármúlanum
fyrir fjórum árum.
8
Þó að margir samlandar hans
séu hrifnir af Mohammed bin
Salman þá þykir öðrum hann
vera hvatvís og
valdagráðugur.
Krónprinsinn
þarf að vara sig
10
Að eiga í viðskiptum við
tæknirisann Apple getur verið
hvalreki fyrir smá fyrirtæki
en gerir þau um
leið berskjölduð.
LEX: Apple getur
verið stór biti
11
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta