Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 7
sensational
exceptional
original 8. – 12. 2. 2019
www.thespirit.video
trailer by M.B. x S.H.
#ambiente19
Hinn einstaki fjölbreytileiki alþjóðlegs neytendavörumarkaðar.
Áberandi hönnun og nýjungar innan seilingar. Þetta er
vörusýningin sem færir greinina þína inn í framtíðina.
Sími: +45 39 40 11 22
dimex@dimex.dk
the
show
Áhugavert er að skoða hvernig
gengisþróun og rekstur sjávar-
útvegsfyrirtækja hafa haldist í
hendur í gegnum tíðina. Erna
Björg Sverrisdóttir, sérfræðingur í
greiningardeild Arion banka, segir
að oft virðist gengi krónunnar hafa
sveiflast í takt við það hvort áraði
vel eða illa í sjávarútveginum.
„Stundum var talað um það að
krónan hefði verið felld til að hjálpa
greininni en raunin er að á þeim
tíma var sjávarútvegur lang-
samlega stærsta gjaldeyrisskap-
andi atvinnugreinin og gangurinn í
sjávarútvegi nátengdur gangi efna-
hagslífsins hverju sinni. Þetta
þýddi að þegar veiddist vel
streymdi gjaldeyririnn inn og gerði
það að verkum að krónan styrktist,
en þegar kom aflabrestur fylgdi því
gjarnan gjaldeyriskreppa enda
fáum öðrum útflutningstekjum til
að dreifa en þeim sem voru frá
sjávarútvegi komnar.“
Erna mun flytja erindi um krón-
una og sjávarútveginn á Sjávar-
útvegsráðstefnunni 2018 sem hald-
in verður í Hörpu á fimmtudag og
föstudag. Auk Ernu taka til máls
fleiri sérfræðingar frá Arion banka
og kynna ítarlegar skýrslur og
greiningar um rekstrarumhverfi ís-
lensks sjávarútvegs.
Ekki lengur stærsta
uppspretta gjaldeyristekna
Að sögn Ernu er alkunna að þeg-
ar gengi krónunnar er veikara séu
aðstæður alla jafna betri fyrir
sjávarútveginn, enda tekjur
greinarinnar að langmestu leyti í
erlendum myntum en kostnaðurinn
að einhverju leyti í krónum. Veik-
ara gengi þýði að fleiri krónur fást
fyrir sjávarafurðir og meira aflögu
þegar búið er að draga kostnaðarlið
frá. Árin eftir bankahrun voru því
hagfelld greininni en róðurinn tek-
inn að þyngjast undanfarin tvö til
þrjú ár í takt við styrkingu krón-
unnar.
En fleira gerðist í kjölfar banka-
hrunsins: mikill vöxtur varð í ferða-
þjónustugeira og raunar svo mikill
að í dag hefur þjóðarbúið meiri
gjaldeyristekjur af erlendum ferða-
mönnum en af fiski. Erna bendir á
að þar sem búið sé að renna fleiri
stoðum undir innstreymi gjaldeyris
megi reikna með að hagkerfið geti
viðhaldið sterkara raungengi og að
krónan sveiflist ekki með sama
hætti í takt við árferðið í sjávar-
útvegi. „Þetta þýðir að greinin
stendur frammi fyrir nýjum veru-
leika og öðrum rekstrarskilyrðum
en áður.“
Minnkað vægi gjaldeyristekna af
sölu sjávarafurða sást m.a. í sjó-
mannaverkfallinu í ársbyrjun 2017.
„Margir bjuggust við því að krónan
myndi veikjast mikið en í staðinn
stóð gengið í stað og styrktist svo
bara enn meira þegar verkfallinu
lauk.“
Vænta styrkingar á næsta ári
Greiningardeild Arion banka hef-
ur gert spá um gengisþróun kom-
andi ára og segir Erna Björg
óvenjumiklar hreyfingar á gengis-
spánni að þessu sinni. „Gengið
veiktist töluvert og á skömmum
tíma í lok sumars en virðist sú
lækkun einkum hafa verið drifin
áfram af væntingum um rekstur
flugfélaganna, og um komandi
kjarasamninga. Okkur finnst mark-
aðurinn hafa brugðist full harka-
lega við, þ.e. að gengið hafi veikst
meira en undirliggjandi efnahags-
aðstæður gáfu tilefni til. Veikingar-
hrina krónunnar stöðvaðist þó að
einhverju leyti þegar tilkynnt var
um kaup Icelandair á WOW og það
myndi ekki koma okkur á óvart ef
gengið styrktist á næsta ári, að því
gefnu að það náist þokkaleg lend-
ing í samningum á vinnumarkaði.“
Segir Erna að spá Arion banka
stemmi að miklu leyti við nýlega
efnahagsspá Seðlabanka Íslands
fyrir næsta ár. „Við reiknum með
að krónan geti styrkst á næsta ári,
en sé síðan líkleg til að gefa örlítið
eftir þegar fram í sækir.“
Fyrirtæki í sjávarútvegi hafa
mörg ekki farið leynt með þá skoð-
un sína að þeim þyki krónan orðin
of sterk svo að farið er að þrengja
að rekstrinum. Gangi spá Arion
banka eftir má vænta þess að geng-
ið breytist ekki til batnaðar fyrir
greinina, að minnsta kosti ekki á
næsta ári, og segir Erna Björg að á
sama tíma sé sennilegt að útgjalda-
liðir á borð við launakostnað fari
hækkandi. Hagræðing, nýsköpun
og markvissar fjárfestingar kunni
að vera það sem þarf til að grein-
inni takist að vaxa áfram og dafna
við þessar kringumstæður.
„En gengið er aðeins ein af
mörgum breytum sem spila inn í
rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. og
þurfa þau að takast á við breyting-
ar á fiskverði í heiminum, breyt-
ingar á aflaheimildum, sveiflur í
gengi gjaldmiðla helstu viðskipta-
landa, og sveiflur í útgjöldum s.s
launa- og eldsneytiskostnaði, svo
nokkur dæmi séu nefnd. Að vissu
marki geta fyrirtækin varið sig
gegn þessum sveiflum s.s. með því
að skuldsetja sig í erlendri mynt
frekar en í krónum, og greiða laun
sjómanna með þeim hætti sem gert
er þar sem launakostnaður sveifl-
ast í takt við tekjur. Sams konar
varnir eru aftur á móti ekki í boði
þegar kemur t.d. að launakostnaði í
landi sem hefur verið á hraðri upp-
leið.“
Krónan fylgir
ekki lengur gangi
sjávarútvegsins
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það kom mörgum á óvart að krónan skyldi ekki veikjast
þegar sjómenn fóru í verkfall á síðasta ári, en gjald-
eyristekjur streyma núna inn úr fleiri áttum, s.s. í gegnum
ferðaþjónustu. Hefur það styrkjandi áhrif á krónuna og
breytir um leið rekstrarskilyrðum sjávarútvegsfyrirtækja.
Morgunblaðið/ÞÖK
Þegar sjávarútvegurinn var stærsta útflutningsgreinin var hægt að vænta
þess að gengið sveiflaðist í takt við hversu vel fiskaðist. Mynd úr safni.
Erna Sverrisdóttir væntir þess að krónan styrkist á næsta ári en gefi svo
örlítið eftir. Hagkerfið getur viðhaldið sterkara raungengi en oft áður.
Afurðaverð á markaði
14. nóv. 2018, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 290,41
Þorskur, slægður 326,59
Ýsa, óslægð 273,45
Ýsa, slægð 248,46
Ufsi, óslægður 128,79
Ufsi, slægður 124,45
Gullkarfi 259,15
Blálanga, óslægð 279,95
Blálanga, slægð 219,93
Langa, óslægð 237,38
Langa, slægð 248,14
Keila, óslægð 110,03
Keila, slægð 119,77
Steinbítur, óslægður 349,62
Steinbítur, slægður 561,13
Skötuselur, slægður 618,11
Grálúða, slægð 382,86
Skarkoli, slægður 318,57
Þykkvalúra, slægð 598,34
Sandkoli, óslægður 80,00
Bleikja, flök 1.570,95
Hlýri, óslægður 246,00
Hlýri, slægður 528,16
Lúða, slægð 426,91
Lýr, óslægður 10,00
Lýsa, óslægð 91,44
Lýsa, slægð 95,64
Skata, slægð 37,86
Stórkjafta, slægð 197,72
Tindaskata, óslægð 10,00
Undirmálsýsa, óslægð 146,56
Undirmálsýsa, slægð 122,00
Undirmálsþorskur, óslægður 153,02
Undirmálsþorskur, slægður 136,96