Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018FRÉTTIR Framleiðum allar gerðir límmiða af mismunandi stærðum og gerðum Thermal Hvítir miðar Litamiðar Forprentaðir Athyglismiðar Tilboðsmiðar Vogamiðar Lyfsölumiðar Varúðarmiðar Endurskinsmiðar Flöskumiðar Verðmer Selhellu 13 • 221 Hafnarfirði • Sími 554 0500 • bodtaekni.is kimiðar Límmiðar ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum Sádi-arabíski krónprinsinn Moham- med bin Salman (MbS) á í vök að verjast heima fyrir. Að sögn vest- rænna embættismanna hefur morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi orðið til þess að sumir samlandar prinsins vilja skerða völd hans. Þessir sömu ónafngreindu emb- ættismenn segja að Salman, konungi Sádi-Arabíu, hugnist að draga úr völdum sonar síns eftir að Khas- hoggi var ráðinn af dögum í sendi- ráði Sáda í Istanbúl. Vestrænu embættismennirnir lýsa prinsinum þannig að hann sé „ófyrirleitinn“ og valdagráðugur ungur maður sem vilji drottna bæði yfir landinu og öllu áhrifasvæði þess. Þeir segja að þrátt fyrir óánægju með prinsinn, jafnt innan sem utan konungsríkisins, sé líklegt að hann muni halda stöðu sinni sem næsti erfingi krúnunnar. Með margt á samviskunni Stjórnvöld í Tyrklandi hafa lýst árásinni á Khashoggi sem morði að yfirlögðu ráði. Ráðamenn í Ríad segja að þeir séu að rannsaka málið og að þeir sem báru ábyrgð á dauða Khashoggi verði látnir svara til saka. Bandamenn Sádi-Arabíu á Vesturlöndum líta svo á að landið gegni lykilhlutverki við að stuðla að stöðugleika í arabaheiminum og hafa hemil á Íran. Þessir sömu banda- menn standa nú frammi fyrir þeim vanda að prinsinn virðist hvatvís líkt og má t.d. sjá á blóðugu stríði Sáda við Jemen, eða þegar forsætisráð- herra Líbanons var tímabundið numinn á brott, viðskiptabann sett á Katar og nú síðast með Khashoggi- málinu. Salman konungur hefur nú þegar þurft að grípa fram fyrir hendur sonar síns vegna eindregins stuðn- ings MbS við friðaráætlun Hvíta hússins fyrir Mið-Austurlönd, en áætlunin þykir ganga fullmikið á hlut Palestínumanna. Segja vest- rænir heimildarmenn að konungur- inn gæti gripið til þess ráðs að dreifa völdum víðar, svo að fleiri en nán- ustu ráðgjafar prinsins fái að koma að borðinu. En einn heimildarmaður sem er vel tengdur valdhöfum landsins seg- ir engar slíkar breytingar fyrirhug- aðar. Vestrænar þjóðir leita núna leiða til að nýta sér veikari stöðu prinsins til að fá Sádi-Arabíu til að gefa eftir í ákveðnum málum, s.s. að landið láti af hernaðaraðgerðum sínum í Jemen og bindi enda á viðskiptabannið sem lagt var á Katara, sem eru vinaþjóð Vesturlanda. „Við viljum sjá aðgerðir á sviði mannréttinda og í málum fólks sem fangelsað hefur verið að ósekju,“ segir ónafngreindur vestrænn emb- ættismaður. „Þá myndu allir vilja sjá jákvæðar fréttir frá Jemen – að kon- ungsríkið komi þar einhverju góðu til leiðar.“ Bandaríkin draga úr samstarfi Bandaríkin ætla að hætta að bjóða herþotum á vegum hernaðarbanda- lags Sáda, á leið til eða frá Jemen, að bæta á sig eldsneyti á flugi, en þær raddir verða æ hávarari sem krefj- ast þess að bundinn verði endi á þriggja ára blóðug stríðsátök sem hafa valdið miklum hörmungum í landinu. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti fund með krón- prinsinum á sunnudag og ítrekaði að Bandaríkin myndu „láta alla þá sem voru viðriðnir morðið á Jamal Khas- hoggi sæta ábyrgð, og að Sádi- Arabía þurfi að gera slíkt hið sama,“ að því er fram kom í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Aðili sem þekkir vel til konungs- fjölskyldu Sádi-Arabíu segir að litlir hópar fólks hafi lagt á ráðin gegn krónprinsinum og þyki hann hafa teflt stöðu konungsríkisins á al- þjóðavettvangi í tvísýnu með því að hafa ekki haft nægilega stjórn á því fólki innan hirðarinnar sem ber ábyrgð á því að hafa banað Khas- hoggi. Í samtölum sín á milli hafa ætt- ingjar prinsins viðrað áhyggjur sín- ar af því að hann skyldi hafa orðið fyrir valinu sem næsti arftaki krún- unnar. Að sögn heimildarmanns sem þekkir vel til segja sumir að fjöl- skyldan eigi að koma í veg fyrir að prinsinn taki við konungstigninni þegar Salman fellur frá. Ríkisstjórn Sádi-Arabíu, sem í fyrstu neitaði allri aðild að málinu, hefur síðan þá handtekið átján menn sem grunaðir eru um að hafa átt þátt í morðinu á Khashoggi. Þá hafa tveir nánustu ráðgjafar prinsins; Saud al- Qahtani og Ahmed al-Assir verið látnir taka pokann sinn vegna meintrar aðildar að málinu. En vestrænu embættismennirnir eru efins um að prinsinn, sem er 33 ára gamall, eigi á hættu að vera bol- að frá völdum því hann hefur nú þeg- ar náð sterkum tökum á valdataum- unum og ræður t.d. yfir bæði her og löggæslu landsins. Þeir benda líka á að ekki blasi við hver gæti komið í stað prinsins, en hann hefur fengið unga fólkið í land- inu og frjálslyndari Sáda til að fylkj- ast að baki sér, þökk sé ýmsum um- bótum sem ráðist var í eftir því sem völd hans og áhrif jukust. Helsti keppinautur MbS um krúnuna, Mohammed bin Nayef, var á síðasta ári sviptur titli krónprins og titillinn færður Mohammed bin Salman. Mohammed bin Nayef hef- ur reynst traustur bandamaður Bandaríkjastjórnar í baráttunni við hryðjuverkamenn en í dag býr hann við skert ferðafrelsi. Fjölskylduhagsmunir Krónprinsinn sýndi síðan með fólskulegum hætti hve mikið vald hann hefur yfir ættingjum sínum þegar hann fangelsaði þá í hundr- aðavís á Rits-Carlton hótelinu í Rí- ad, undir því yfirskini að uppræta spillingu. Segja sumir af þeim sem þar var haldið föngnum að þeir hafi verið barðir og þurft að sæta pynt- ingum. Konungsfjölskyldan er að þétta raðirnar til að tryggja áframhald- andi tilvist sína, segir Kristian Coa- tes Ulrichsen sem starfar við Baker Institute for Public Policy við Rice- háskóla. „MbS myndi ekki vilja að nokkur maður héldi að hann stefndi framtíð konungsættarinnar í voða, og kannski að núna verði bundinn endi á einræðislega tilburði við ákvarð- anatöku um málefni fjölskyldunnar, líkt og prinsinn hefur gerst uppvís að undanfarin eitt eða tvö ár,“ segir hann. „Það gæti verið verðið sem þurfi að greiða til að halda honum í stóli krónprins.“ Margir vilja draga úr völdum prinsins Eftir Simeon Kerr í Ríad og Andrew England í London Mohammed bin Salman er ekki búinn að missa tökin en margir hugsa honum þegjandi þörfina. Kon- ungurinn gæti þurft að grípa inn í til að koma aft- ur skikk á hlutina. Krónprinsinn stýrir bæði her og lögreglu og nýtur hylli frjálslyndari íbúa Sádi-Arabíu. Hann þarf samt að gæta sín.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.