Morgunblaðið - 15.11.2018, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018 11FRÉTTIR
Af síðum
Með reglulegu millibili birtast greinar sem vara við hættunni af að
ánetjast snjallsímum. En ef það eru einhverjir sem ætti að vara við
snjallsímafíkn þá eru það samstarfsfyrirtæki snjallsímaframleiðend-
anna. Það sem af er þessari viku hefur hlutabréfaverð Apple verið á
niðurleið. Tilefnið er að fjárfestar hafa enn á ný áhyggjur af að eftir-
spurnin eftir iPhone-símum sé hætt að vaxa. Neðar í aðfangakeðju
Apple voru afleiðingarnar ennþá verri: Hlutabréfaverð Lumentum
Holdings í Kaliforníu, sem framleiðir andlitsgreiningartækni, og jap-
anska skjáframleiðandans Japan Display tóku dýfu eftir að fyrirtækin
lækkuðu tekjuspár sínar.
Markaðurinn gæti verið að bregðast of harkalega við. Þegar birgjar
verða þess valdandi að fjárfestar fara að hafa áhyggjur af sölu iPhone
hefur óróinn yfirleitt verið skammvinnur. En eftir situr að fyrir minni
fyrirtæki hefur það verulega áhættu í för með sér að vera einn af birgj-
um Apple. Félagið Imagination Technologies er ágætis dæmi. Í fyrra
samþykkti þetta breska félag yfirtökutilboð fyrir upphæð sem var rétt
um einn fjórði af virði félagsins þegar það náði toppi, skömmu eftir að
stærsti viðskiptavinurinn upplýsti að hann hygðist hætta að nota
tæknina sem fyrirtækið smíðar. Er ekki að furða að verðmat sam-
starfsfyrirtækja Apple er hlutfallslega lægra en hjá öðrum félögum í
sama geira.
En það getur líka verið mikill hvalreki að hefja viðskipti við Apple.
Apple leggur ofuráherslu á gæði og býður upp á tækifæri til að stækka.
Þá hefur Apple verið að auka hjá sér fjárfestingarútgjöldin, þökk sé
fjármagni sem geymt var utan Bandaríkjanna en er núna verið að taka
aftur heim, og gæti það leitt af sér stórar pantanir. Svo getur Apple
líka verið háð samstarfsfyrirtækjum sínum, rétt eins og þau eru háð
Apple. Samsung er stærsti keppinautur Apple en bandaríski tækniris-
inn getur ekki verið án suðurkóresku samsteypunnar sem framleiðir
skjái sem Apple þarf á að halda.
En birgjar þurfa að hafa varann á, því þeir gætu orðið æ berskjald-
aðri. iPhone-símar virðast alla jafna endast lengur en áður og bitnar
það harðar á birgjunum en á Apple sem selur viðskiptavinum sínum
líka ýmsa þjónustu eins og streymandi tónlist og geymslu gagna. Þeir
sem eiga á hættu að verða of háðir Apple hafa úr nokkrum kostum að
velja:
Með því að sameinast gætu þeir átt auðveldara með að halda hagn-
aðinum í lagi. Í síðasta mánuði var gerður 3,2 milljarða dala samningur
um samruna ljósleiðarafyrirtækjanna II-VI og Finisar og er útkoman
félag með sterkari samningsstöðu. Það getur líka veitt ákveðna vernd
gegn því að verða gefinn upp á bátinn að hafa tæknilega yfirburði. En
gáfulegast væri að reyna að finna fleiri viðskiptavini, þó að með því sé
hætt á að styggja heimsins stærsta fyrirtæki mælt í markaðs-
virði.
LEX
Samstarfsaðilar Apple:
langt frá eikinni
Rekstrarráð Volkswagen mun hittast
á föstudag til að greiða atkvæði um
tillögur um yfirgripsmiklar breyting-
ar sem gætu leitt til þess að stærsti
bílaframleiðandi heims flýtti áætl-
unum sínum um að auka framboðið á
rafmagnsbílum.
Handelsblatt hefur eftir tveimur
heimildarmönnum sem þekkja til
málsins að stjórnendur félagsins vilji
endurnýja tvær bílaverksmiðjur
Volkswagen í Þýskalandi; aðra í
Emden og hina í Hannover, svo að
þar verði hægt að hefja framleiðslu
rafmagnsbíla í upphafi næsta áratug-
ar.
Það er ekki bara formsatriði að
stjórnin veiti tillögunum blessun sína
því fulltrúar valdamikilla verkalýðs-
félaga starfsmanna VW – sem ráða
yfir helmingi sætanna í stjórninni –
hafa verið óhressir með sumt af því
sem fyrirtækið vill gera, s.s. að færa
hluta af þeirri smíði sem í dag fer
fram í Þýskalandi yfir til Tékklands.
Nýja áætlunin – sem kann líka að
fela í sér að hagnaðarmarkmiðum fé-
lagsins verði breytt – er einnig tæki-
færi fyrir Herbert Diess, sem tók við
stöðu forstjóra í apríl, að setja mark
sitt á samsteypuna.
Tyrklandsmarkaður á niðurleið
Volkswagen framleiðir bíla af gerð-
inni Passat og Arteon í Emden en þar
starfa meira en 8.000 manns. Eru
sum þessara starfa í hættu því að sala
Passat-bifreiða hefur gengið erfið-
lega. Einn viðmælandi lýsti tyrk-
neska markaðinum – sem er mikil-
vægur fyrir þennan fernra dyra bíl –
á þá vegu að hann væri í „frjálsu falli“
og salan í september hefði dregist
saman um 68% frá sama mánuði í
fyrra.
Tveir heimildarmenn hafa upplýst
að stjórnendur VW telji að ef ekki
eigi að verða röskun á starfseminni í
Emden og Hannover þurfi að færa
flóknari framleiðslu bíla með sprengi-
hreyfilsvél, sem kalla á fleiri vinnu-
stundir að smíða, yfir til Tékklands
þar sem launakostnaður er lægri.
Væri þá hægt að laga þýsku verk-
smiðjurnar að framtíðarþörfum bíla-
markaðarins með þeim búnaði sem
þarf til að smíða rafmagnsbíla, en því
er spáð að sprenging muni verða í
sölu þeirra. Að skipta yfir í fram-
leiðslu rafbíla myndi minnka þörfina
fyrir vinnuafl enda eru, samkvæmt
greiningum Goldman Sachs, þriðj-
ungi færri íhlutir í rafmagnsbíl en
hefðbundnum bíl.
Stjórnendurnir gera sér grein fyrir
því að færsla yfir í framleiðslu rafbíla
mun þýða að fækka þarf starfsfólki,
að því er einn heimildarmaður greinir
frá, en vilja ráðast í niðurskurðinn
með ábyrgum hætti svo að þeir tugir
þúsunda starfsmanna félagsins sem
eru í eldri kantinum geti sest í helgan
stein frekar en þeim verði sagt upp
störfum.
Verði svipaðir öðrum bílum
Lagt hefur verið til að búa verk-
smiðjuna í Emden undir smíði ódýr-
asta bílsins í ID-línu Volkswagen.
Hönnun bílsins er ekki lokið að fullu
en hann ætti að vera á marga vegu
sambærilegur við VW Polo. „Mark-
miðið er að bjóða upp á rafmagnsbíla
sem eru svipaðir þeim bílum sem fólk
er vant að sjá á götunum í dag,“ segir
heimildarmaður.
Verksmiðjuna í Hannover, sem í
dag framleiðir sendibíla, mætti upp-
færa svo að hún réði við smíði bæði
rafmagns- og sprengihreyfilsbíla, þar
á meðal smíði ID Buzz-smárútunnar
sem svipar til gamla VW-„rúgbrauðs-
ins“ í útliti.
Þykir líka heppilegt að framleiða
rafmagnsbíla í Emden og Hannover
vegna þeirrar stefnu þýskra stjórn-
valda að draga úr notkun jarðefna-
eldsneytis.
Gætu borgirnar tvær séð fram á
sams konar breytingar og eiga sér
núna stað í verksmiðjunni í Zwickau í
Saxlandi sem er verið að umbreyta
svo að þar megi hefja framleiðslu á
fyrsta bílnum í ID-línunni seint á
næsta ári.
Þrír heimildarmenn segja að
Volkswagen finni sig knúið til að flýta
fyrir orkuskiptum í ljósi þeirrar
stefnu ESB að minnka kolefnislosun
um 40% fram til ársins 2030.
VW mun ráðstafa 20 milljörðum
evra í framleiðslu 50 gerða af rafbíl-
um og 30 gerða af tengiltvinnbílum
fram til ársins 2025. Þá verða 50 millj-
arðar evra til viðbótar notaðir til að
tryggja nægjanlegt framboð af raf-
hlöðum. Er ætlunin að árið 2025 muni
fyrirtækið selja að jafnaði 2-3
milljónir rafmagnsbíla ár hvert.
Volkswagen skoðar að
hraða rafbílavæðingu
Eftir Patrick McGee
í Frankfurt
Ef verksmiðjur í Þýska-
landi verða uppfærðar til
að geta framleitt rafbíla
þýðir það að starfsfólki á
eftir að fækka.
Volkswagen sér hvert stefnir og vill vera í fararbroddi í orkuskiptum. Reiknað er með sprengingu í sölu rafbíla.
Tekur ál, stál og ryðfrí
hnoð upp að 4,8mm.
LED ljós fyrir léleg birtuskilyrði.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem
virkar með öllum Milwaukee®
M12™ rafhlöðum.
Verð 59.900 kr. (með rafhlöðu)
M12 BPRT
Alvöru hnoðbyssa
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888