Morgunblaðið - 15.11.2018, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018SJÓNARHÓLL
FORRITIÐ
Eitt af mikilvægustu hlutverkum
góðs stjórnanda er að búa þannig um
hnútana að starfsmenn miðli þekk-
ingu sín á milli og að ferlar séu þann-
ig úr garði gerðir að þeir nýti alla þá
visku sem vinnustaðurinn býr yfir.
En þetta er hægara sagt en gert og
allt of oft að söfnun og miðlun þekk-
ingar er látin sitja á hakanum, enda
ótalmörg önnur og meira aðkallandi
verkefni sem sinna þarf hvern einasta
dag.
Slite (www.slite.com) er nýtt forrit
sem gæti komið að gagni, en höf-
undar þess segjast hafa skapað nokk-
urs konar „wiki“ fyrir vinnustaðinn.
Í Slite geta starfsmenn t.d. skrifað
hvers kyns leiðbeiningar og fróðleik
inn í skjöl sem allir geta átt við og
uppfært. Forritið gætir þess að fram-
setningin sé skýr og frágangurinn
snyrtilegur svo auðvelt sé fyrir aðra
starsfmenn að tileinka sér þær upp-
lýsingar sem safnað hefur verið sam-
an á Slite.
Forritið má t.d. nota til að skrifa og
uppfæra reglulega leiðbeiningar fyrir
nýja starfsmenn, hagnýt ráð fyrir
söludeildina eða tryggja að allir séu á
sömu blaðsíðu þegar kemur að gild-
um, stefnu og markmiðum fyrir-
tækisins. Slite má líka nota til að
skipuleggja fundi, með opnum skjöl-
um þar sem öllum er frjálst að bæta
við nýjum atriðum á dagskrána.
ai@mbl.is
Þekkingu starfsfólks
safnað á einn stað
EGGERT
Harla ólíklegt er að hræðsluáróður og dómsdags-yfirlýsingar á opinberum vettvangi muni skilasér í farsælli samningagerð milli aðila vinnu-
markaðarins í lokuðum fundarherbergjum á næstu vik-
um og mánuðum. Þó vissulega þurfi að standa vörð um
hagsmuni þeirra sem að borðinu koma ættu allir að
vera sér meðvitaðir um að finna þarf einhvers konar
snertiflöt þar sem samningsaðilar fá einhverju haldið
en öðru sleppt til að skapa sátt. Kúnstin er að gera það
á þann veg að aðilar gangi sáttir
frá borði – án þess að hagkerfið
taki kollsteypu í kjölfarið.
Eins og sakir standa er tónn-
inn harðari nú en oft áður og við
gætum horft fram á erfiðari við-
ræður en í kjaralotum síðastlið-
inna áratuga eða allt frá þjóð-
arsáttarsamningunum árið 1990.
Á meðan vinnuveitendur bíða
nánast með hnút í maganum yfir
því sem koma skal veltir starfs-
fólk fyrir sér hvað kröfur
stéttarfélaganna raunverulega
munu þýða fyrir efnahag þess.
Víst er að þetta er fyrir löngu
orðið aðalumræðuefnið á kaffi-
stofum landsins.
Líkt og í öðrum þjóðmálum er
manni nánast hrint út í að skipa
sér í fylkingu – með eða á móti –
annars telst maður ekki gjald-
gengur í umræðu dagsins. Hvað
ef maður finnur sig ekki í þess-
um fylkingum? Hvað ef þessi al-
varlegu mál horfa öðruvísi við manni?
Við erum í raun öll farþegar á sama báti, kjaraskút-
unni, sem haga þarf seglum eftir vindi til að tryggja
áframhaldandi ferð. Ekki getur ætlunin verið að
skemma þann góða meðbyr sem okkur hefur hlotnast
undanfarin ár? Þó við hægjum kannski á um nokkra
hnúta, þá er það okkar allra að samstilla bönd og trissur
til að halda áfram siglingunni – og horfa til allra mögu-
legra leiða og lausna sem sagan hefur kennt okkur að
reynist vel. Þenji maður seglin of hátt eða kippi of hart í
vitum við að voðinn er vís.
Forsvarsmenn fyrirtækja landsins eru ekki í vígahug
þegar kemur að kjaraviðræðum – heldur vilja þeir flest-
ir hag starfsfólks síns sem bestan innan þess ramma
sem rekstur þeirra leyfir. Gott og öflugt starfsfólk er
það dýrmætasta sem fyrirtæki eiga og því er það þeirra
hagur að fólk uni sér vel og sé sátt við sín kjör.
Aftur á móti er vert að benda á að launakostnaður
fyrirtækja er mjög hár og erfitt getur reynst fyrir
starfsfólk að setja sig í spor atvinnurekenda, sem bera
ábyrgð á rekstrinum. Um 65% af
verðmætasköpun fyrirtækja fara
í launakostnað og af þeim kostn-
aði er það ekki nema önnur hver
króna sem skilar sér í vasa laun-
þegans. Hinn helmingurinn fer
annars vegar í lífeyrisframlag,
tryggingagjöld, orlof og önnur
hlunnindi sem atvinnurekandi
greiðir ofan á laun og hins vegar
í skatt- og lífeyrisgreiðslu starfs-
mannsins. Hvernig væri þess í
stað að huga að leiðum til að
hækka laun eftir skatt og tryggja
hærri greiðslur í vasa launa-
þega?
Útborguð laun mætti hækka
með því að lækka tekjuskatt,
hækka persónuafslátt og lækka
útsvar. Lækkun trygginga-
gjaldsins, sem er enn í hæstu
hæðum þrátt fyrir afar lítið at-
vinnuleysi, myndi óneitanlega
skapa aukið svigrúm atvinnurek-
enda til að greiða hærri laun. Þá
mætti ennfremur endurskoða fyrri hækkanir lífeyris-
greiðslna en ýmislegt bendir til þess að iðgjöld séu of
há. Þau samsvara nú meira en einum sjöunda af
heildartekjum launþega. Við það bætist oft séreignar-
sparnaður og er hlutfall lífeyrisgreiðslna þá orðið einn
fimmti af tekjum.
Margar leiðir má skoða til að bæta hag launþega – en
taka verður tillit til afar takmarkaðs svigrúms atvinnu-
rekenda til að koma til móts við þær kröfur sem lagðar
hafa verið fram. Siglum ekki í strand heldur kapp-
kostum að fanga áfram vindinn saman.
VIÐSKIPTALÍF
Ásta Sigríður Fjeldsted
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Kjaraskútan
”
Um 65% af verðmæta-
sköpun fyrirtækja fara í
launakostnað og af
þeim kostnaði er það
ekki nema önnur hver
króna sem skilar sér í
vasa launþegans. Hinn
helmingurinn fer annars
vegar í lífeyrisframlag,
tryggingagjöld, orlof og
önnur hlunnindi sem at-
vinnurekandi greiðir of-
an á laun og hins vegar í
skatt- og lífeyrisgreiðslu
starfsmannsins.
Með Firmavörn+ geta stjórnendur fylgst með og
stýrt öryggiskerfi, myndeftirliti og snjallbúnaði
fyrirtækisinsmeð appi í símanum hvar og hvenær
sem er. Stjórnstöð Securitas er á vaktinni allan
sólarhringinn, alla daga ársins.
www.firmavorn.is
HVAR SEM ÞÚ ERT