Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 14
Pétur Már Halldórsson, framkvæmdastjóri Nox Medical, veitti nýsköpunarverð- launum viðtöku. Harpa var þéttsetin síðdegis í gær. Fólk sló á létta strengi að athöfn lokinni og skellti í „sjálfu“ fyrir framan merki Framúrskarandi fyrirtækja 2018. á 1960 rslur í boð 00,- stk. Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Íslensk hönnun og framleiðsla /solohusgogn i E-60 Stólar Klassísk hönnun fr Ýmsir litir og útfæ Verð frá 28.1 Retro borð m/stálkanti Fáanlegt í mörgum stærðum Verð frá 109.200,- E-60 Bekkur Til í fleiri litum og lengdum Verð frá 71.200 14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2018FÓLK SPROTAR gjörið liggur ekki fyrir fyrr en bú- ið er að skrifa skýrslu löngu seinna og töluverð hætta á að óprúttnir aðilar geti komið pen- ingum og hjálpargögnum annað en skjöl og skýrslur segja til um.“ Geta fylgst með í rauntíma Hugbúnaður Eirium notar bálkakeðjuna til að halda utan um hvernig hjálpargögnum og fjár- magni er ráðstafað. Bálkakeðjan er örugg, skjótvirk og um leið gagnsæ leið til að skrá og vista gögn af öllu mögulegu tagi og myndar tækni Eirium grunn sem hægt er að tengja við þau kerfi sem hjálparstofnanir nota í dag, ellegar byggja ofan á nýjar lausn- ir sem einfalda hjálparstarfs- mönnum að halda nákvæmar skrár á ferðinni. Gísli segir bálka- keðjuna auka rekjanleika til muna og jafnvel hægt að fylgjast með hvernig fjármunir eru notaðir í rauntíma. „Og þessi 15% sem í dag fara í skýrslugerð og ut- anumhald gætu í staðinn nýst í að hjálpa þeim sem eiga um sárt að binda,“ útskýrir Gísli en viðskiptaáætlun Eirium gerir ráð fyrir því að lækka þennan kostnað niður í 1-3% gjald fyrir þjón- ustuna. Með betri skráningu og vand- Gísli Rafn Ólafsson þekkir það manna best hvað stuðningur hjálparsamtaka getur komið að miklu gagni á hamfarasvæðum. Hann hefur starfað við hjálp- arstörf um árabil, var m.a. einn af stjórnendum al- þjóðasveitar Landsbjargar, og hefur sér- hæft sig í notk- un upplýs- ingatækni til að láta hjálp- arstarf ganga betur fyrir sig. Í dag vinnur Gísli að því að smíða nýja lausn sem notar bálkakeðjuna (e. blockchain) til að einfalda utan- umhald fjármagns og tryggja að það fé sem fer til hjálparstarfs sé notað eins og til var ætlast. Fyrirtæki Gísla heitir Eirium (www.eirium.tech) og hafnaði á dögunum í þriðja sæti í keppninni um Gulleggið. „Hjálparsamtök glíma við það vandamál að töluvert mikla yfir- byggingu þarf til að fylgjast með því hvert peningarnir fara. Tryggja þarf að fjármagni sé rétt varið og gagnist þeim sem ætl- unin var að hjálpa, en að jafnaði má reikna með að um 15% af fjár- magninu fari í eftirlit og skýrslu- gerð,“ útskýrir Gísli. „Frægt er þegar Ban Ki-moon, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, sagði að um þriðjungur af því fjármagni sem stofnunin hefði úr að spila tapaðist vegna spill- ingar.“ Ekki nóg með það heldur eru vinnubrögðin í kringum eftirlit með fjárhagshlið hjálparstarfs ekki skilvirk og segir Gísli að þess þekkist dæmi að færslur séu jafn- vel handskrifaðar í bækur. „Upp- aðri gögnum gefst líka kostur á að gera hjálparstarfið skilvirkara. „Það getur t.d. gerst að hjálp- arsamtök komi í þorp og afhendi 500 íbúum hjálpargögn, og að önnur samtök komi á sama stað klukkustund síðar og afhendi þessum sömu íbúum enn meira af hjálpargögnum. Í bókhaldinu lít- ur þetta út eins og búið sé að hjálpa 1.000 manns, því gögnin segja ekki nægilega vel til um hvert aðstoðin fór. Með bálka- keðjunni má skrásetja af ná- kvæmni hvar aðstoð hefur verið veitt og hverjir viðtakendurnir voru.“ Verkefnið hefur fengið góðar viðtökur og hefur Gísli, í félagi við aðra reynslubolta á þessu sviði, þegar fengið fjárfesta til að leggja fram hluta þess fjármagns sem þarf til að gera Eirium að veru- leika. Stofnuðu þeir félag í Delaw- are utan um reksturinn og stend- ur smíði hugbúnaðarins yfir. Þessar vikurnar er unnið að því að ljúka englafjármögnun upp á hálfa milljón dollara, en stefnt er að því að á næsta ári komi 1,5 milljónir dala til viðbótar inn í reksturinn. Fyrsta tilrauna- útgáfan af Eirium verður tilbúin í vor og undir lok næsta árs ætti fyrsta útgáfan að koma á markað. AFP Eirium gæti sparað hjálparsamtökum miklar fjáræðir og gert hjálparstarf mun markvissara. Myndin sýnir afgönsk börn í flóttamannabúðum. Nota bálkakeðju til að bæta hjálparstarf Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sprotafyrirtækið Eirium þróar hugbúnað sem á að draga úr umsjónar- og eftirlitskostnaði hjálpar- samtaka og gera hjálpar- starf um leið skilvirkara. Gísli Rafn Ólafsson FUNDUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.